Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 44
Færeyingar eru fangar sög-unnar,“ segir SigurpállHelgi sem hefur áralöng kynni af frændum okkar í suð- austri. Ingibjörg, eiginkona hans, er færeysk en þau bjuggu saman í Danmörku þar til fyrir ári er þau fluttu til Færeyja að ósk Ingi- bjargar sem lengi hafði langað heim. Um leið réði Sigurpáll sig til Dimmalætting en hann hafði áður unnið á dagblaði á Jótlandi. „Ég hef á tilfinningunni að Færeyingar hræðist bæði nútíð- ina og framtíðina og fyrir vikið vita þeir ekki hvað þeir eiga að gera.“ Sigurpáll líkir ástandinu í eyjunum við það sem ríkti á Ís- landi fyrir tuttugu árum og ber færeyskum stjórnmálamönnum ekki vel söguna. „Þeir hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig og að tryggja endurkjör á næsta kjör- tímabili. Þeir hugsa ekki um heill þjóðarinnar til framtíðar og taka fáar langtímaákvarðanir.“ Sigurpáll segir mikilvægt að tekið verði af skarið og gerist það ekki á næstu misserum einangrist Færeyingar endanlega frá um- heiminum. Hann bindur vonir við að aukið frjálsræði í fjármálalíf- inu leysi einhver öfl úr læðingi í samfélaginu, líkt og gerðist á Ís- landi þegar hlutabréfamarkaður- inn varð virkur. Hins vegar kjósi valdaöflin í landinu óbreytt ástand og sterk staða þeirra kunni að aftra þeirri þróun. Frjálst og óháð blað Tvö víðlesin dagblöð eru gefin út í Færeyjum; Dimmalætting og Sos- ialurin. Báðum er dreift í um níu þúsund eintökum og koma þau út síðdegis. Sá munur er þó á að í haus Sosialurins er dagsetning morgundagsins en Dimmalætting breytti út af þeirri áralöngu venju á haustdögum og ber nú dagsetn- ingu útgáfudagsins. Blöðin voru bæði nátengd stjórnmálaflokkum og fluttu fréttir sem voru flokkunum í hag. Sú tíð er liðin hjá Dimmalætting og Sigurpáll og samstarfsmenn hafa frjálsar hendur í skrifum sínum.“Fyrir tíu árum kom nýr ritstjóri að blaðinu og ákvað að tími væri kominn til að slíta á tengslin við Sambandsflokkinn og setja fréttirnar í öndvegi. Áður gat formaður flokksins pantað forsíðuna án þess að fá gagnrýnar spurningar og svona er þetta enn þá á Sosialurin þar sem Jafnaðar- mannaflokkurinn ræður ríkjum.“ Slíkt fyrirkomulag er Íslend- ingum í fersku minni en blöðin hér voru jú flest hver í eigu stjórnmálaflokka og drógu taum þeirra í fréttum sínum. Auk dagblaðanna tveggja koma Eyjatíðindi út tvisvar í viku í Færeyjum en þau flokkast til gulrar pressu. Í þeim eru fréttir af einkalífi fólks og segir Sigur- páll að ritstjóri þeirra sé oftar en ekki kærður fyrir brot á friðhelgi einkalífsins. Dagblöðin tvö haldi hins vegar sínu striki og láti Eyja- tíðindum nærgöngula umfjöllun um persónuleg málefni eftir. Fordómar í Færeyjum Innlendar fréttir er helsta efni Dimmalætting og segir Sigurpáll það ráðast af áhugasviði Færey- inga sem láti sig málefni um- heimsins litlu varða. Hann hefur nokkrar áhyggjur af ástandinu enda geti fordómar grasserað við slíkar aðstæður. „Manneskjan er eins og hæna í búri að þessu leyti. Hugsanir okkar eru bundnar við það sem við sjáum og upplifum og því minna sem við vitum um um- heiminn því meiri hætta er á for- dómum. Hænan er hæst ánægð í búrinu sínu því hún þekkir ekkert annað.“ Saman við þetta ástand bland- ist svo sterkar rætur kristinnar trúar í Færeyjum þar sem yfir 30 kristnir söfnuðir eru starfræktir. „Færeyskir bókstafstrúarmenn hafa sannfært mjög marga um að múslimar séu vondir og gera til dæmis engar athugasemdir við gjörðir Bush Bandaríkjaforseti í Írak. Í Færeyjum er líka lítið pláss fyrir fólk sem fellur ekki inn í fjöldann og umburðarlyndið er lítið. Samkynhneigðir eiga erfitt uppdráttar í landinu og flestir þeirra flytja til Dan- merkur. Þar er líka erfitt að vera útlendingur og heilu vikurnar líða á milli þess sem blökkumaður sést í Færeyjum.“ Sigurpáll er gagnrýninn á fær- eyskt samfélag og harðorður í garð þjóðarinnar. „Það er skylda mín sem fjölmiðlamaður að líta samfélagið gagnrýnum augum,“ segir hann en tekur um leið fram að Færeyingar séu ljúfir og þægi- legir í umgengni. Þjóðin sameinists Íslendingar hafa lengi fylgst með umræðum um hugsanlegt sjálf- stæði Færeyinga frá Dönum enda þekkja þeir slík mál á eigin skinni. Sigurpáll fylgist vitaskuld grannt með og finnst umræðan spenn- andi. „Stríðið hefur staðið frá 1948 þegar naumur meirihluti Færey- inga samþykkti sjálfstæði í þjóðar- atkvæðagreiðslu en ekkert var gert með niðurstöðurnar. Mín skoðun er að það þurfi að fara var- lega og áður en til sjálfstæðis getur komið er mikilvægt að fær- eyska þjóðin sameinist.“ Með þeim orðum á hann við að of skörp skil séu milli íbúa höfuðstaðarins Þórs- hafnar og landsbyggðar og eins milli íhaldsaflanna og þeirra sem vilji sjálfstæði hið fyrsta. „Ég er smeykur við þá leið að slíta á öll tengsl í einum vetvangi því þjóðin er ekki undir það búin. Hins vegar get ég séð fyrir mér að þetta þróist hægt og sígandi og það er mikil- vægt að mikill meirihluti þjóðar- innar sé samþykkur sjálfstæði.“ Sjálfur veit Sigurpáll ekki hvort hann búi í Færeyjum ef og þegar eyjarnar hljóti sjálfstæði því segja má að hann búi þar til reynslu. „Við bjuggum í Danmörku þar sem konan mín þjáðist af heimþrá. Við ákváðum að prófa að vera í Fær- eyjum í tvö ár og sjáum svo til að þeim árum liðnum.“ 28 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR Sigurpáll Helgi Arnflórsson er fréttastjóri Færeyska dagbla›sins Dimmalætting. Hann er gagnr‡ninn á færeyskt samfélag og segir Færeyinga lítt umbur›arlynda gagnvart hinu óhef›bundna. Björn fiór Sigbjörnsson hitti Sigurpál a› máli flegar hann kom í frí til Íslands á dögunum. ÁHRIFAVALDAR SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON ÞINGMAÐUR Það gefur augaleið að foreldrar mínir hafa verið miklir áhrifavaldar í lífi mínu. Þau ólu mig upp og gáfu mér allt það besta sem þau gátu gefið mér. Uppeldi mitt hefur mótað líf mitt allar götur síðan. Ég kem frá afar venjulegu heimili þar sem maður þurfti að leggja mikið á sig til þess að ná árangri og þannig hefur það verið allt mitt líf. Vinir mínir, Gísli Marteinn Baldursson stjórnmálamaður, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Pétur Marteinsson knattspyrnu- maður, Viðar Þór Guðmundsson listamaður og Ólafur Örn Guðmundsson flugmaður hafa ekki síður verið miklir áhrifa- valdar í lífi mínu. Við höfum verið vinir frá því í æsku, lékum okkur í sama sandkassanum, gengum saman í grunnskóla og síðan Verzlunarskólann og höfum í raun verið óaðskiljan- legir alla tíð. Enginn okkar kemur frá pólitísku heimili en í gegnum allar þær ræðukeppnir og rökræður, háskóla- og ungliðapólitík hefur þróunin orðið sú að ég hef aðhyllst hægrisinnaða hugmynda- fræði. Ekki má heldur gleyma mönnum eins og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, Jóni Steinari Gunnlaugs- syni og fleirum sem hafa alltaf reynst mér vel, hvatt mig áfram í mínum störfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og á öðrum vett- vangi og verið traustir og ráðagóðir. Ég gleymi því heldur aldrei að hafa fengið tækifæri til þess að vinna með Davíð Odds- syni og öðrum forystu- mönnum Sjálfstæðis- flokksins. Að lokum hlýt ég að nefna það að strax eftir að ég lauk stúd- entsprófi hóf ég nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Það má segja að lögfræðin sé mitt annað áhugamál ásamt stjórnmál- unum. Ég held að ég geti þakkað þann áhuga að miklu leyti mínum gamla kennara Sigurði Líndal og áðurnefndum Jóni Steinari, sem ég starfaði hjá meðfram námi, og ekki síður mínum gömlu félögum á lögmannsstofunni Lex, mönnum eins og Jónasi A. Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni, Guð- mundi Ingva Sigurðssyni hæstaréttarlögmanni og öllu því góða fólki sem ég starfaði með þar. JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON Hæstarréttardómarinn. Foreldrar, vinir og lærife›ur SIGURPÁLL HELGI ARNÞÓRSSON „Það er skylda mín sem fjölmiðlamaður að líta samfélagið gagnrýnum augum,“ segir Sigurpáll sem óttast að Færeyingar einangrist enn frekar frá umheiminum vegna lítils áhuga á því sem gerist utan eyjanna. Samkynhneigðir eiga erfitt uppdráttar í land- inu og flestir þeirra flytja til Danmerkur. Þar er líka erfitt að vera útlendingur og heilu vikurnar líða á milli þess sem blökkumaður sést í Færeyjum. ,, Manneskjan er eins og hæna í búri FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H Ö RÐ U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.