Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 50
Hinn lífshættulegi sjúkdóm-ur lystarstol, eða anorexía,er ekkert gamanmál. Hann
hefur marga einstaklinga í heljar-
greipum sínum og engin aðferð
virðist veita fullkomna lækningu.
Lystarstol er nátengt öðrum sjúk-
dómi sem heitir body dysmorphic
disorder (BDD) og mætti kalla
líkamsfirringu á íslensku. Lík-
amsfirring getur brotist út á
margan hátt í öfgum tengdum út-
liti. Aðaleinkenni sjúkdómsins er
að manneskja sem þjáist af hon-
um er gríðarlega ósátt við líkama
sinn eða útlit vegna ímyndaðra
galla. Manneskjan hefur óbilandi
áhyggjur af ákveðnum útlitseigin-
leikum sem annað fólk tekur jafn-
vel ekki eftir.
Stjörnur er sérstaklega við-
kvæmar fyrir útlitsröskunum.
Það er vissulega skiljanlegt þar
sem þær lifa og hrærast í heimi
sem byggir að stórum hluta á út-
litinu. Þær eru sífellt í kastljósinu
og hvert einasta smáatriði í útliti
þeirra er gaumgæft og gagnrýnt.
Ekki eru öll líkamsfirring jafn
hættuleg og anorexía. Sum getur
verið allt að því spaugileg en
önnur er hreinlega sorgleg. Hér
verður fjallað um fjórar raskanir
sem sífellt meira hefur borið á
undanfarin ár.
Plastorexía
Plastorexía er ekki eiginlegt nafn
sjúkdómsins en blaðamaður hefur
kosið að kalla röskunina því nafni.
Hér er ekki verið að vísa til orðs-
ins plast eins og það er oftast not-
að í íslensku heldur er orðið plast
dregið af gríska orðinu plastikos
sem þýðir að móta eða breyta.
Sjúkdómurinn lýsir sér í því að
einstaklingurinn verður háður
lýtaaðgerðum. Það sem byrjar
sem smá lagfæring á óæskilegum
útlitseiginleika, vindur upp á sig
og verður að sjúklegri áráttu.
Fólk með þennan sjúkdóm heldur
að það verði ánægt eftir næstu að-
gerð en verður svo sífellt fyrir
vonbrigðum. Það hættir að sjá
raunverulega spegilmynd sína og
þótt tilgangur hverrar aðgerðar
sé bætt útlit, er niðurstaðan allt
önnur en sú. Dauðsföll tengd lýta-
aðgerðum eru vissulega þekkt
stærð því eins og allir vita fylgir
svæfingunni einni ákveðin
áhætta. Þess má einnig geta að
dánartíðni einstaklinga sem fara í
fitsog er með því hæsta sem ger-
ist á spítölum.
Dæmi um fræga einstaklinga sem
þjást af þessari röskun: Michael
Jackson, Pamela Anderson, Dolly
Parton og Joan Rivers.
Tanorexía
Tanorexíu þekkja margir. Í henni
felst óhófleg ljósabekkjanotkun
og sólbaðsdýrkun en þessi sjúk-
dómur er að verða að faraldri í
hinum vestræna heimi. Sjúkling-
um sem þjást af tanorexíu finnst
þér glærir og guggnir ef þeir
komast ekki í ljós eða sólbað
mörgum sinnum í viku og eru
hreinlega óstöðvandi í eftirsókn
sinni eftir dekkri húðlit.
Í Englandi deyja um eitt hundr-
að manns á ári í beinum tengslum
við þennan sjúkdóm og fjölmargir
valda óafturkræfum skemmdum
á húð sinni. Þetta hefur gengið svo
langt að nú liggur fyrir frumvarp
á enska þinginu sem bannar börn-
um undir sextán ára að fara í ljós.
Einstaklingar með tanorexíu
hafa að einhverju leyti tekið upp
notkun brúnkukrema en þau eru
aðeins viðbót við þann dökka húð-
lit sem þeir hafa þegar náð.
Brúnkukrem þykja ekki jafn flott
og raunveruleg brúnka, því litur
þeirra dofnar á örfáum dögum og
er ekki jafn djúpur og sá raun-
verulegi.
Dæmi um fræga einstaklinga sem
þjást af þessari röskun: George
Hamilton, Victoria Beckham, Julio
Iglesias og Lindsay Lohan.
Fashionorexía
Áráttan sem kölluð er fashionor-
exía er ekki jafn lífshættuleg og
þær tvær sem nefndar eru að ofan
en hún getur valdið þunglyndi
vegna slæmrar fjárhagsstöðu.
Einstaklingum með þessa röskun
líður illa ef þeir eiga ekki öll nýj-
ustu tískufyrirbærin og eru
óstöðvandi þegar kemur að fata-
og fylgihlutakaupum. Þessi fíkn
er því nátengd viðurkenndu fyrir-
bæri sem kallast kaupæði eða
„shopaholism“. Einstaklingar með
fashionorexíu er alltaf með putt-
34 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30
PAMELA ANDERSON
Er alltaf óhóflega brún og
nú eru
farin að sjást augljós mer
ki sólarskemmda í andlit
i hennar.
MICHAEL JACKSON Er einn frægasti s
kemmtikrafur heims. Hann þjáist af alva
rlegri
plastorexíu en, eins og sumir fíklar, getu
r hann ekki viðurkennt það fyrir umheim
inum.
JOCELYN WILDENSTEIN
Hástéttarkona frá Banda-
ríkjunum sem er með
hrikalega plastorexíu.
DOLLY PARTON Hefur
látið hafa eftir sér að sé
eitthvað farið að slappast
og hanga þá láti hún strax
„gera við það“. Hún ætti
betur að sleppa því.
BURT REYNOLDS Var
afar myndarlegur maður
og væri það enn ef hann
hefði ekki ákveðið að
strekkja andlitið á sér aft-
ur á hnakka.
CHARLIZE THERON Lítur út eins og
kjáni við hliðina á Renee Zellweger sem
þjáist ekki af tanorexíu.
VICTORIA BECKHAM Er drottning fashionorexíunnar. Hún kaupir föt í öllum „trendum”
og gengur helst í þeim öllum í einu.
GEORGE HAMILTON Er einn frægastibrúnkukarl í heimi.
JULIO IGLES
IAS Er komin
n með hrika-
lega leðurhúð
eftir margra
ára tanorexíu
.
LINDSAY LOHAN
Þótt undarlegt megi
virðast, þolir hún ek
ki freknur sínar og
reynir að fela þær m
eð brúnum húðlit.
Fegur›in hefur alltaf veri› eftirsóknarver›. Fólk leggur mismiki› á sig til a› ö›l-
ast hana en fla› vill breg›a vi› a› fleir sem reyna mest, uppskera minnst.
Sóley Kaldal sko›ar fla› nánar.
Sjúkleg útlitsárátta á