Fréttablaðið - 23.07.2005, Page 56
DÁSAMLEGIR
Top Shop
Smáralind
Það kveður við nýjan tón í hausttískunni í ár. Þjóðernistískan
sem hefur verið svo áberandi að undanförnu er farin að teygja
anga sína aftur í tímann. Ekki er laust við áhrif frá sjóræningjatím-
anum en um leið er þeim áhrifum blandað við gömul stríðshetjuföt.
Hér erum við að tala um vesti og jakka með þungum gylltum tölum,
spælum á herðum og veglegum vösum. Þessar flíkur eru vel sniðn-
ar og í þrengra lagi. Við þetta þykir afar flott að klæðast skyrtum.
Annað hvort þröngum með síðum ermum og blúndulegum sjóræn-
ingakraga. Á hinn bóginn koma þjóðernislegu hippaskyrturnar
sterkar inn og er flott að nota þær undir jakkana og vestin. Við
þessa múnderíngu koma hnébuxur afar sterkar inn. Annað hvort
þröngar niður að hnésbótum eða hólkvíðar með rykkingum um hné
eins og sjóræningjarnir voru svo hrifnir af. Buxur með föllum að
framan flokkast undir nýjungar. Madonna klæddist einmitt slíkum buxum á Live 8-
tónleikunum um daginn. Svo má nota síð pils við vestin og jakkana eða hnésíð í dökk-
um tónum. Litasinfónía þessa tískustraums er náskyld haustinu þar sem allir brúnir
tónar eru gjaldgengir ásamt hvítu, beige-lituðu og gylltu. Þetta er því hinn sanni
hausttónn sem kemur ferskur inn eftir alla litagleði sumarsins. Þegar þú ert
komin í hnébuxur, skyrtu og vesti er sjúklega dömulegt að
vera í fallegum sokkum, helst með gatamynstri, og penum
háhæluðum skóm. En þegar kuldaboli mætir á svæðið
koma gróf leðurstígvél að góðum notum. Þessi sjóræn-
ingja-her-þjóðernistíska kallast ýmist „Soho Boho“ eða
„Admirality“ á útlensku en enn hefur rétta heitið ekki
fundist á íslensku. Við þessa tísku er skvísulegt að
vera með nógu mikið af skarti, síðum perlufestum,
armböndum og eyrnalokkum. Þegar skart er valið er
málið að hafa það í gylltum tón. Stórar töskur toppa
heildarútlitið. Munið svo bara að hægt er að
blanda einfaldari flíkum með ef þið þorið ekki að
fara alla leið.
martamaria@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Teri Hatcher & ég
Ég man ekki hver heilaþvoði mig en síðastliðin ár hef ég verið hald-
in voðalegu snobbi varðandi val á sjampói. Þetta flokkast kannski
ekki undir einhvern voðalegan lúxus en „alvöru“ sjampó kosta þó
sitt þegar saman safnast. Ég hélt því lengi vel fram að ég yrði að
eiga fín sjampó því ég væri með svo voðalega „sérstakt“ hár. Með
þetta að leiðarljósi eyddi ég mörgum gullpeningum í sjampóbrúsa,
hárnæringar og annað hárfínerí. Ég skipti reyndar nokkrum sinn-
um um týpur á þessum snobbferli en alltaf var hárið á mér í svipuð-
um skorðum. Sjampósnobbið tók þó á sig breytta mynd þegar ég
byrjaði að búa með tilvonandi eiginmanni mínum. Nenni níski
hreiðraði um sig í sál minni og skyndilega hætti ég að tíma að eyða
mínum peningum í annarra þágu. Sér í lagi af því viðkomandi fann
engan mun á sjampótegundum. Í hans augum var sjampó bara
sjampó. Skiljanlega. Auðvitað hefði ég getað dottið í þann
pakka að fela sjampóið mitt og kaupa eitthvað ódýrt
handa honum. Samviska mín sagði mér að svoleiðis
gerði maður ekki og maður ætti alltaf að hugsa sem
best um þá sem manni þykir vænst um. Þegar maður
hættir að hafa áhyggjur af hlutunum leysast þeir yfir-
leitt án þess að maður taki eftir því. Á dögunum fór ég
að dást að hári vinkonu minnar. Það var glansandi
fallegt og ilmaði eins og nýkreistur appelsínusafi. Ég
fékk nánast vatn í munninn. Hún sagði mér stolt í
bragði að hún notaði nú bara Fructis frá Garnier sem
fengist í hvaða matvöru-
verslun sem er. Hún bætti því
við í leiðinni að hárið á henni
hefði hætt að flækjast eftir að
hún byrjaði að nota það. Ég
rauk að sjálfsögðu til og sé
ekki eftir því. Hárið er mýkra
en áður og nánast eins og á
Barbídúkku. Ég er alsæl og
ekki skyggði á gleði mína
þegar ég komst að því að
uppáhaldsleikkonan mín notar
sama sjampó. Ótrúlegt en satt.
Skál fyrir Teri Hatcher!
40 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
HLÝTT
Loðvesti úr Zöru
Smáralind.
JUST CAVALLI veit um
hvað tíska snýst.
BJÚTÍFÚL
Belti úr Top
Shop
ÆÐISLEGAR
TÖLUR Top
Shop
DÖMULEG Þessi er
frá Karen Millen.
ÆÐISLEGUR JAKKI
sem hannaður er af
Cavalli.
Í ANDA FORFEÐRANNA
Top Shop Smáralind.
ÓMÓTSTÆÐILEGIR Karen Millen
veit hvað konur vilja.
SNILLDARLEGAR
hnébuxur úr Karen
Millen Kringlunni.
MAGNAÐAR stuttbuxur
frá Burberry.
FALLEGUR BOÐUNGUR
frá Top Shop.
GLYS þessi passar vel við
nánast allt. Fæst í Top Shop.
HNÉBUXUR úr Karen Millen, hægt
er að fá vesti í stíl.
fijó›ernissinnar,
allir til orrustu!
SJÓRÆNINGJA-
LEG Karen Millen
Kringlunni.