Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 62
46 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
ÁtónleikumEmiliönu
Torrini á NASA
var margt um
manninn enda
söngkonan að
heiðra landann
eftir langt hlé.
Það kom fáum
á óvart að idol-
stjarnan Hildur
Vala skyldi vera
mætt á svæðið enda sló hún í gegn
með lagi Emilíönu. Þarna mátti
einnig sjá Sigga Hall yfirkokk Ís-
lands og Dagur B. Eggertsson lét
sig ekki vanta. Þá
kom Markús
Máni Mikealsson
strax að loknum
fræknum sigri
Vals gegn KR og
fyrrum félagi hans
úr íslenska lands-
liðinu í handbolta,
Ragnar Óskars-
son var einnig á
svæðinu.
Strákarnir í hljómsveitinni Trabanteru staddir í London til að spila á
tónleikum. Í gærkvöldi komu þeir
fram í Camden Monarch í Camden
en á miðvikudaginn í næstu viku
skemmta þeir
gestum á hin-
um virta lista-
klúbbi Notting
Hill Arts Club
í Notting Hill
ásamt hljóm-
sveitunum
Lyca Sleep og
The Rank
Deluxe. Ann-
ars hefur vak-
ið athygli að drengirnir í Trabant láta
sér ekki nægja Innipúkann um
verslunarmannahelgina þetta árið
og ætla að bregða sér til Vest-
mannaeyja til að anda að sér frísku
sjávarloftinu á Þjóðhátíð.
Sindri Eldon, tónlistarmaður ogsonur Bjarkar Guðmundsdóttur
virðist vera yfir sig hamingjusamur
þessa dagana. Það
sást til kappans á
Ægisíðunni ný-
lega þar sem
hann leiddi
ansi huggu-
lega stúlku og í
framhaldinu
velta margir fyrir
sér hvort hin eina
og sanna
tengdadóttir
Bjarkar sé
fundin.
Lárétt: 1 hrap, 5 pota, 6 sex, 7 sólguð, 8
tíma, 9 skatt, 10 hlotnast, 12 vörumerki,
13 títt, 15 á nótu, 16 biblíunafn, 18 rán-
dýri.
Lóðrétt: 1 fer rétt að öllu, 2 maka, 3
tónn, 4 óhemju, 6 skyssa, 8 slönguteg-
und, 11 sómi, 14 traust, 17 sting.
Lausn.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Humar
1.290,-kr.kg
Ótrúlegt verð á fínum humri.
Forsíðugrein tímaritsins Sirkus
RVK hefur fengið gríðarlega
góð viðbrögð. Í greininni er
fjallað um tískuviðburðinn
Iceland Fashion Week, sem
haldinn var af Kolbrúnu Aðal-
steinsdóttur. Í greininni er við-
tal við tískudívuna Diane Per-
net, sem boðið var hingað til
lands, en hún starfaði lengi sem
fatahönnuður og einbeitir sér nú
að heimasíðunni www.ashaded-
viewonfashion.com. Hún var al-
gerlega gáttuð á sýningunni og
sagðist í viðtalinu í Sirkus aldrei
hafa lent í öðru eins. Hönnuð-
urnir Harpa Einarsdóttir og
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir ætl-
uðu að taka þátt í Iceland Fas-
hion Week en hættu báðar við á
síðustu stundu vegna ágreinings
við tískusýningarhaldarann Kol-
brúnu. Jón Sæmundur Auðarson
ætlaði líka að vera með en hætti
við af svipuðum ástæðum. Jón
Sæmundur tók forsíðumyndina
af Diane Pernet og fannst við-
eigandi að prenta myndina á
boli til að vekja athygli á mál-
inu. Síðdegis í gær voru bolirnir
komnir til sölu í Nonnabúð á
Klapparstíg. ■
Tískusirkus á boli
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Pompea Napoli
Páll Pálsson
Brjóstakrabbamein
Glænýtt glanstímarit um heim-
ili og lífsstíl kemur á markað í
haust. Ritstjórar eru hjónin
Halla Bára Gestsdóttir og Gunn-
ar Sverrisson sem áður rit-
stýrðu Lifun, fylgiblaði Morgun-
blaðsins. Einhverjar vangavelt-
ur hafa verið uppi um að blaðið
verði tengt sjónvarpsþættinum
sem Vala Matt sér um á sjón-
varpsstöðinni Sirkus en því
neita ritstjórarnir þó.
„Þetta verður alveg sjálfstætt
blað og tengist ekki beint sjón-
varpsþættinum. Kannski verða
einhver óbein tengsl á milli þátt-
arins og blaðsins. Það getur ver-
ið að við notum hugmyndir sem
koma í þættinum eða að hún noti
hugmyndir frá okkur en þetta
eru tvær sjálfstæðar einingar og
tvær sjálfstæðar ritstjórnir,“
segir Halla Bára.
Að sögn Höllu Báru verður
blaðið ekki eins og Lifun því
þetta blað er með aðeins öðru
sniði og af annarri stærð. „Lifun
var fylgirit en þetta blað verður
sjálfstætt tímarit. Núna förum
við út í aðeins aðra hluti og víð-
tækari efnistök og höfum mjög
frjálsar hendur. Hins vegar
fjallar þetta blað auðvitað um
það sama og Lifun – heimili, lífs-
stíl og hönnun í víðum skiln-
ingi,“ segir hún en getur ekki
sagt til um hvort Lifun lifi
áfram með Morgunblaðinu.
„Við hjónin vinnum blaðið frá
a til ö. Gunnar tekur myndirnar
en við sjáum í sameiningu um
hönnun, umbrot og ritstjórn. Auk
þess vinnur að sjálfsögðu fleira
gott fólk með okkur efni fyrir
blaðið,“ segir Halla Bára. Fyrsta
tölublað nýja blaðsins kemur út
fyrri partinn í september og svo
mánaðarlega eftir það. ■
RITSTJÓRAHJÓNIN Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson ritstýra þessu nýja blaði í sameiningu en áður ritstýrðu þau Lifun, fylgi-
riti Morgunblaðsins.
HALLA BÁRA OG GUNNAR: BLAÐ UM HEIMILI, LÍFSSTÍL OG HÖNNUN
Glænýtt glanstímarit
Seinfeld. Ó, já, hver er ekki himinlifandi yfir því aðSeinfeld og félagar séu mætt aftur á skjáinn? George
er jafn óborganlegur og áður, Kramer jafn klikkaður,
Elaine jafn fyndin á sinni yndislega hátt og Jerry, hann
bregst aldrei. Yndislegir þættir.
Köflóttir jakkar. Þeir eru heitari en nokkru sinniáður. Þetta er partur af ömmu-afa tískunni sem
er svo heit þessa dagana. Því stærri reitir og klikk-
aðri litir, þeim mun betra. Þessi á myndinni er úr
síðustu herralínu Soniu Rykiel.
Langar festar. Perlufestar hafa sjaldan verið jafnheitar og sjaldan verið til í jafn ólíkum gerðum.
Það er eiginlega allt sem virkar í dag þegar kemur
að perlufestum en helst eiga þær að vera langar.
Núna eru festar sem líta út eins og þær séu gerðar
úr brjóstsykrum afar vinsælar. Svo eru tréfestarnar
og hinar klassísku festar úr perlum alltaf töff.
Dökkt naglalakk. Af hverju að velja dökkt naglalakk í staðinnfyrir ljóst þegar dagarnir eru jafn bjartir og raunin er? Sumar-
ið er tíminn fyrir bjarta og fallega sumarliti en ekki dökka vetrar-
liti. Geymdu þá í tvo, þrjá mánuði, þá verður tíðin komin.
Að spara sólarvörnina Til er fólk semdvelur lengi í sólinni án nokkurrar sól-
arvarnar og gjörsamlega steikir húðina. Af hverju
að eyðileggja húðina fyrir aldur fram? Er verið að
safna hrukkum? Eða jafnvel verið að plana það að
fá húðkrabbamein? Nei, sólarvörn er algjörlega
málið, hugsum vel um líkamann okkar. Við eigum
nú bara einn.
Fléttur. Það er ótrúlegt hvernig sumir hlutir getaverið bæði flottir og ekki svo flottir á sama tíma.
Núna eru fléttur í alls konar myndum ótrúlega heit-
ar og vinsælar. Hins vegar má ekki ofgera þessu og
gamli stíllinn þar sem allt hárið var fléttað í margar
litlar fléttur og jafnvel bætt gervihári við er algjör-
lega úti. Nei, takk!
INNI ÚTI
...fær Emilíana Torrini, sem fékk
afhenta gullplötu í fyrradag fyrir
nýjustu plötu sína, Fisherman’s
Woman. Emilíana er vel að gull-
plötunni komin enda er platan
með eindæmum skemmtileg.
HRÓSIÐ
Lárétt:1fall,5ota,6vi,7ra,8bil,9toll,
10fæ,12ali,13ört, 15an,16sara,18
úlfi.
Lóðrétt:1formföst,2ata,3la,4villingi,
6villa,8boa,11æra,14trú,17al.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FYRST MEÐ FRÉTTIRNAR Guðríður
Sturludóttir afgreiðslukona í Nonnabúð
tók sig vel út í Sirkusbolnum sínum.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR