Fréttablaðið - 27.07.2005, Blaðsíða 43
Átta þúsund
prósent vextir
Breski okurlánarinn Mark John-
son var á dögunum dæmdur í
fjögurra ára fangelsi. Johnson
var sakaður um að hafa rekið
lánastarfsemi án þess að hafa til
þess tilskilin leyfi.
Johnson rak lánaskrifstofu í
Birmingham í rúm þrjú ár og
hafði upp úr krafsinu tæpar
hundrað milljónir króna. Vextir
af lánum skrifstofunnar voru
allt að átta þúsund prósent á ári
og var lánþegum hótað líkams-
meiðingum stæðu þeir ekki í
skilum.
Á sama tíma og Johnson var á
atvinnuleysisskrá ók hann um á
átta milljóna króna sportbíl: ,,Þú
níddist á þeim sem minnst mega
sín í samfélaginu. Fólki sem ekki
átti í nein önnur hús að venda“,
sagði dómarinn í málinu áður en
hann kvað upp úrskurð sinn. -jsk
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 17
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Gömlu erkifjendurnir frá Glasgow, Celtic og
Rangers, hafa endurnýjað auglýsingasamning
sinn við bjórframleiðandann Carling. Auglýsing
frá Carling verður því á treyjum liðanna næstu
fimm árin. Upphæð samningsins er um tveir
milljarðar króna.
Forsvarsmenn Carling eru ánægðir með sam-
starfið og benda á að kannanir sýni að staða fyr-
irtækisins í huga skoskra karlmanna á aldrinum
18-34 ára hafi aldrei verið sterkari.
Það vakti mikla athygli á sínum tíma þegar
Celtic og Rangers gerðu sameiginlegan auglýs-
ingasamning við bandaríska gagnaveitufyrir-
tækið NTL. Þrátt fyrir að grunnt sé á því góða
meðal áhangenda sjá eigendur félaganna mikinn
hag í því að auglýsa saman og fá þannig betri
samninga fyrir vikið. - eþa
Celtic og Rangers semja saman
Hagnaður Intel jókst um 16 pró-
sent á öðrum ársfjórðungi þessa
árs miðað við sama tímabil í
fyrra. Hagnaður félagsins á
fjórðungnum nam tveimur
milljörðum Bandaríkjadala eða
um 130 milljörðum króna.
Tekjur Intel á tímabilinu juk-
ust um 15 prósent á milli ára.
Samkvæmt Vegvísi greining-
ardeildar Landsbankans var af-
koma félagsins í takt við vænt-
ingar flestra sérfræðinga. Sum-
ir fjárfestar höfðu hins vegar
gert ráð fyrir að afkoma Intel
yrði betri en spáð hafði verið
um. Bréf í félaginu lækkuðu því
lítillega eftir að afkomutölurnar
voru birtar.
Intel er bandarískt hátækni-
fyrirtæki sem framleiðir meðal
annars örgjörva og aðra íhluti í
tölvur. -dh
165 milljónir hjá Vodafone
Farsímarisinn Vodafone
hefur bætt við sig 4,1 millj-
ón nýrra notenda það sem
af er ári, sem er mun meira
en spár gerðu ráð fyrir og
35 prósent meiri aukning en
á sama tíma í fyrra.
Alls eru nú 165 milljónir
skráðra notenda hjá Voda-
fone og munar mestu um
gríðarlega fjölgun notenda
á Spáni, Ítalíu og í Rúmeníu. Það eina sem skyggir á framúrskarandi
árangur fyrirtæksins er taprekstur í Japan, þar sem Vodafone er að-
eins með þriðju mestu markaðshlutdeildina: ,,Árangurinn er framar
vonum í Bandaríkjunum og Evrópu, nú munum við einbeita okkur að
því að auka markaðshlutdeild okkar í Japan“, sagði Arun Sarin
stjórnarformaður Vodafone. -jsk
ALLT Í GÓÐU HJÁ VODAFONE Notendum Voda-
fone hefur fjölgað það sem af er ári. Alls eru nú 165
milljónir skráðra notenda hjá fyrirtækinu.
Hagnaður Intel eykst
Afkoma hátæknifyrirtækisins í takt við væntingar.
INTEL Í SÓKN Tekjur félagsins jukust
milli ára.
Manchester United goðsögnin
Eric Cantona gagnrýndi á dögun-
um nýjan eiganda félagsins,
Malcolm Glazer. Cantona
segir Glazer ekki koma til
með að hafa svipuð áhrif á
United og rússneski auðkýfing-
urinn Roman Abramovich hefur
haft á Chelsea: „United er ekki
Chelsea og Glazer er ekki
Abramovich,“ sagði Cantona og
bætti við: „Manchester United
þarf ekki á einum manni að
halda. United er sterkasta félag á
plánetunni.“
Áhangendur Manchester
United hafa margir gagnrýnt
Glazer sem keypti á dögunum
nánast öll hlutabréf í félaginu:
„Mér
er alveg
sama um
Glazer,“
sagði
Cantona. -
jsk
Cantona skýtur
á Glazer
KÓNGURINN Á
OLD TRAFFORD
Cantona segist engar
áhyggjur hafa af
Malcolm Glazer og tel-
ur hann ekki koma til
með að hafa mikil
áhrif á Manchest-
er United.