Fréttablaðið - 27.07.2005, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 27.07.2005, Qupperneq 66
Á þriðju plötu The Ravonettes má heyra danska dúettinn glíma við slagarann My Boyfriends Back, sem hárblásna kventríóið The Angels gerði vinsælt árið 1963. Vel við hæfi þar sem dönsku pylsurnar hafa verið undir augljósum áhrifum frá þeim og öðrum sveitum frá gullöld Phil Spectors. En þessi útgáfa segir allt sem segja þarf um plötuna. Hún er kraftlaus, gjörsamlega sálarlaus og hljómar eins og Sharin Foo og Sune Rose Wagner hafi ekki nennt upp úr rúminu þann dag. The Raveonettes hefur gengið ágætlega að reyna fyrir sér í Bandaríkjunum. Ég hef fengið það á tilfinninguna að þau hafi hægt og rólega verið að reyna færa sig nær meginstraumnum þar. Það kemur því ekkert sér- staklega á óvart að Wagner skuli hafa skilið Fuzzboxið sitt eftir heima þegar kom að því að hljóð- rita þessa plötu. Áður fyrr hljóm- uðu raddir Foo og Wagner eins og draugar í yfirgefnu æfingar- húsnæði. Þær verða svo enn ein- mannalegri núna eftir að þau kipptu gíturunum úr sambandi. Það er eitthvað slímugt yfir- bragð yfir allri plötunni, nánast eins og hún sé öll unnin undir marglyttu eða í sniglabaði. Ég er að spá í að þefa æfingar- húsnæðið þeirra uppi, mæta með fötu fulla af ísköldu vatni og skvetta aðeins framan í þetta par. Svo held ég að það sé best að senda þau í gott frí, án iPod-ana þeirra, eitthvert þar sem inn- fæddir hafa aldrei heyrt um Phil Spector, Jesus and Mary Chain, The Shangri-La's, The Ronettes eða The Crystals. Þennan dúett vantar greinilega eitthvað nýtt og ferskt til þess að gera veröld sína bjartari og meira spennandi. Þau ættu að hætta að reyna stæla fyrrnefndar sveitir, því þau hafa ekki tærnar þar sem þær skildu eftir hælför sín. Birgir Örn Steinarsson Á fætur me› ykkur! THE RAVEONETTES: PRETTY IN BLACK NIÐURSTAÐA: Ein svalasta hljómsveit Dana ákvað að setja bjögunarpedallinn á hilluna fyrir þriðju plötu sína. Fyrir vikið hljómar sveitin svo þreytt að maður veltir því fyrir sér hvort þau hafi verið vakandi við gerð plötunnar. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 Sýnd í lúxus kl. 10.40 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 8 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Þorir þú í bíó? SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 MEÐ BRUCE WILLIS Í TOPPFORMI HVERJU MYNDIR ÞÚ FÓRNA FYRIR FJÖLSKYLDUNA? MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR AF BESTU GERÐ FRUMSÝNING HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8.30 og 11 B.i. 16 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Þorir þú í bíó? SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! Sýnd kl. 6, 8.30 og 11 MEÐ BRUCE WILLIS Í TOPPFORMI MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR AF BESTU GERÐ FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 ára - Síðustu sýningar 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu SÍMI 551 9000 HVERJU MYNDIR ÞÚ FÓRNA FYRIR FJÖLSKYLDUNA?                             Ástarsorgin er fljót að gróa í heimi stjarnanna ef eitthvað má marka frétt ananova.com. Þar er greint frá því að Sienna og Or- lando Bloom hafi átt „náðuga“ stund saman á Póló móti hinna ríku og frægu. Slúðurblaðið Daily Mirror segist eiga myndir af Siennu þar sem hún horfir ástríðufull í augun á Orlando með handlegginn vafinn um háls- inn á honum. Hún á víst að hafa setið í kjöltu leikarans íðilfagra en sprottið fljótlega á fætur eftir að hafa gert sér grein fyrir að allir væru að horfa. Símanúmerið hennar á þó að hafa komist í hendur Orlando. Reyndar skutu Orlando og Sienna nefjum saman fyrir fjórum árum en þá voru þau bæði gjörsamlega óþekktir leikarar. Sienna virðist því ekki vera á þeim buxunum að taka við Jude Law aftur og á að hafa sagt við einn gestanna að hann væri asni. Hún segist ætla að einbeita sér að eigin ferli og það er því sama hversu margar rósir hann tínir til, ekkert dugar til. Sienna ekki lengur í ástarsorg SIENNA Segist ekki hafa tíma fyrir menn sem halda fram hjá henni. Hún ætlar að einbeita sér að ferlinum og leik sínum í West End leikritinu As you like it. ORLANDO BLOOM Leikur núna í Pirates of the Caribbean og er í af/á sambandi við Kate Bosworth. Nú virðist hann ætla hafa Miller– tíma fyrir sjálfan sig.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.