Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 1
Lét klippa sig fyrir Eastwood-myndina JÓEL SÆMUNDSSON ▲ FÓLK 50 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM norðan til, annars þungbúnara. Dálítil súld af og til með vestanverðu landinu. Hiti 10-20 stig, hlýjast austan og norðaustan til. VEÐUR 4 FÖSTUDAGUR 29. júlí 2005 - 203. tölublað – 5. árgangur Keflavík jafnaði Evrópumetið Keflavík er eina íslenska liðið sem komst áfram í Evrópukeppnunum þetta árið og það gerðu Kefl- víkingar með því að slá út Etzella frá Lúxemborg með sex marka mun. Keflavík vann seinni leikinn 2–0 í gær. ÍBV datt úr keppni í Fær- eyjum í gær. Þrír íslenskir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leikjunum í gærkvöldi. ÍÞRÓTTIR 30 Einn fangaklefi í öllu ríkinu Ísland hefur stofnað til stjórnmála- sambands við Túvalú í Kyrrahafi. Það er eitt minnsta ríki heims. TÍMAMÓT 26 Villikettirnir í stuði Davíð Þór Jónsson fetar nýjar brautir. Hann er einn af texta- og lagahöfund- um barnaplötunnar Villikettir sem kom út fyrir skemstu. Hann segir ekki ólík- legt að bók um Villi- kettina bætist við fyrir jólin en hann vildi þó ekki staðfesta það. TÓNLIST 40 Í MIÐJU BLAÐSINS ● matur ● tilboð ALVÖRU HERMANNAKLIPPING ▲ VEÐRIÐ Í DAG Besti ferðafélaginn Ferðataskan í sumar Léttur öllari Búist við 10.000 í Eyjum: Hátt í 3.000 nú flegar komnir VERSLUNARMANNAHELGI Hátt í þrjú þúsund manns voru komin til Vestmannaeyja þegar blaðið var sent í prentun í gærkvöld, en búist er við 8-10.000 gestum þar um helgina. Allt hefur þó farið vel fram. „Þetta eru allt saman góðir krakkar sem eru komnir,“ sagði lögreglumaður í Eyjum sem rætt var við í gær. „Það er ekkert að gera hjá okkur.“ Mjög gott veður var þar í gær. Á Akureyri hefur fólk einnig verið að tínast í bæinn, en einnig er búist við miklu fjölmenni þar. Verið var að setja upp tívolí á hafnarbakkanum þar í gær. - grs VIÐSKIPTI Hagnaður fjármálafyrir- tækjanna fimm var tæpir 80 millj- arðar á fyrstu sex mánuðum árs- ins og hefur hagnaður fyrirtækj- anna aldrei verið meiri. Á sama tíma í fyrra högnuðust fjármála- fyrirtækin um samtals 11 millj- arða króna. KB banki hagnast mest, um tæpa 25 milljarða króna. Burðarás kemur næstur með 24,5 milljarða króna hagnað. Aukinn hagnað fjármálafyrir- tækjanna má rekja til umsvifa- meiri rekstrar þeirra, bæði hér á landi og erlendis. Hagnaður af sölu eigna, gengishagnaður af eignum í öðrum félögum, auknar vaxtatekjur vegna mikillar út- lánaaukningar og auknar tekjur vegna fyrirtækjaverkefna skýra hagnað fjármálafyrirtækjanna að stórum hluta. Heildareignir bankanna nema tæpum 4.300 milljörðum króna og er KB banki með mestu eignirnar, 1.900 milljarða. Eignaaukning bankanna skýrist að mestu leyti af kaupum þeirra á erlendum bönk- um, bæði á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Sífellt stærri hluti af tekjum bankanna kemur frá út- löndum og stendur KB banki þar fremst en 70 prósent af tekjum bankans koma frá útlöndum á fyrstu sex mánuðum ársins. -dh/ Sjá síður 24-25 Heildareignir bankanna eru tæpir 4.300 milljarðar króna: Hagnast um flrjá milljar›a á viku ÞJÓÐHÁTÍÐARSTEMNING Í DALNUM Mikið var komið af fólki í Herjólfsdal í gærkvöldi og eins og sjá má vantar ekki þjóðhátíðarstemning- una. Auk gesta í dalnum er einnig mikið um að gestir tjaldi í húsagörðum hjá innfæddum Eyjamönnum. Síminn seldur á 66,7 milljar›a króna firjú tilbo› bárust í Símann, öll frá innlendum fjárfestum. Forsætisrá›herra segir söluna styrkja stö›u ríkissjó›s. Hægt ver›i a› rá›ast í verkefni á svi›i velfer›ar- og samgöngumála. EINKAVÆÐING „Það liggur alveg ljóst fyrir að eftir þessa sölu get- um við gert hluti sem við annars hefðum ekki getað gert á sviði samgöngumála, heilbrigðismála og á sviði atvinnuþróunar og ann- arra mikilvægra samfélagsmála,“ sagði Halldór Ásgrímsson forsæt- isráðherra í gær eftir að ljóst var að hæsta tilboð í Símann hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna. Þrjú tilboð, sem alls sautján fjárfestar stóðu á bak við, bárust í Símann. Voru tilboðin opnuð á Hótel Nordica í gær að viðstödd- um bjóðendum og fulltrúum fjöl- miðla. Exista, fjárfestingarfélag undir stjórn Lýðs og Ágústs Guð- mundssonar, kenndra við Bakka- vör, KB banki, fjórir lífeyrissjóð- ir, MP Fjárfestingarbanki og félag í eigu Skúla Þorvaldssonar voru með hæsta tilboðið. Hópur undir forystu Burðaráss bauð sextíu milljarða en lægsta tilboð kom frá Atorku Group og fleiri aðilum og hljóðaði upp á 54,7 milljarða. Jón Sveinsson, formaður einka- væðingarnefndar, sagði að menn hefðu vandað sig vel og ferlið hefði verið gagnsætt og trúverð- ugt. Hann var ánægður með nið- urstöðuna. Síminn yrði að öllum líkindum kominn undir stjórn nýrra eigenda fyrir lok ágúst. „Þetta kom mér ekki beint á óvart. Þetta er mjög viðunandi til- boð og ekki fjarri því sem ýmsir sérfræðingar um markaðinn hafa verið að spá,“ sagði Geir Haarde fjármálaráðherra. Margir aðilar hefðu verið á bak við tilboðin þótt aðeins þrjú hefðu borist. Erlendur Hjaltason, fram- kvæmdastjóri Exista, sagði að þátttaka lífeyrissjóðanna tryggði aðkomu stórs hluta fólks í landinu, en lífeyrissjóðirnir eignast sam- anlagt 21 prósents eignarhlut. Síð- ar myndi hlutur KB banka verða seldur almenningi áður en Síminn yrði skráður í Kauphöllina. Hann vildi ekki tilgreina hvenær það yrði né á hvaða kjörum fólki byð- ist hlutabréf í Símanum. Erlendur vildi ekki svara spurningum varðandi hugsanleg- ar breytingar á rekstri og yfir- stjórn Símans. Allar slíkar yfir- lýsingar biðu þangað til nýir eig- endur tækju við og rætt hefði ver- ið við starfsfólk. - bg/- jh/Sjá síðu 4 og 24 JÓN GUNNAR ÞÓRÐARSON Ljóstrar upp fjölskylduleyndarmáli HAGNAÐUR FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA Á FYRSTU SEX MÁNUÐUM ÁRSINS* KB banki 24.766 Burðarás 24.500 Landsbanki 11.103 Íslandsbanki 10.557 Straumur 7.630 Samtals: 78.556 *Í milljörðum króna Könnun veldur deilum: Vi›kvæmar uppl‡singar AKUREYRI Í ítarlegri lífskjararann- sókn sem IMG Gallup gerði fyrir bæjaryfirvöld á Akureyri má lesa margvíslegar niðurstöður. Í niður- stöðunum eru upplýsingar sem sumir telja viðkvæmar og vakið hafa deilur á Akureyri. Á meðal þess sem finna má í niðurstöðunum er að aðeins 5,6 prósent kjósenda Framsóknar- flokksins á Akureyri hafa há- skólapróf en 35,2 prósent kjós- enda Sjálfstæðisflokksins. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri segir það geta orkað tvímælis að stjórnmálaskoðunum fólks sé blandað í rannsókn af þessu tagi. Sjá síðu 10 M YN D /T RY G G VI M ÁR S Æ M U N D SS O N BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR Kristján Þór Júlíusson segir könnunina geta orkað tvímælis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.