Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 53
41FÖSTUDAGUR 29. júlí 2005
Rokksveitin Astara spilar á
þrennum tónleikum fyrir þá sem
kjósa að vera í bænum um versl-
unarmannahelgina.
Fyrstu tónleikar sveitarinnar
um helgina verða hluti af tón-
leikasyrpu Grapevine & Smekk-
leysu í kvöld á Bar 11 ásamt
Haltri hóru.
Á laugardag spilar Astara á
Gajol-rokkhátíðinni á Bar 11 ásamt
Lights on the Highway og síðustu
tónleikarnir verða upphitun fyrir
Brain Police á Gauki á Stöng á
sunnudagskvöld. Þeir tónleikar
verða einnig hluti af Gajol-hátíðinni
sem Bar 11, Dillon og Gaukurinn
standa fyrir um helgina. ■
ASTARA Astara spilar rokk af gamla skólanum og er þekkt fyrir líflega tónleika.
Astara á flrennum tónleikum
Hljómsveitin Nýdönsk verður
með ball á Oddvitanum á Akur-
eyri á föstudag og laugardag. Um
síðustu verslunarmannahelgi
spilaði sveitin einnig á Oddvitan-
um en þá eingöngu á einu kvöldi.
Seldust miðar á tónleikana eins
og heitar lummur og komust
færri að en vildu.
Björn Jörundur Friðbjörns-
son, söngvari Nýdanskrar, reikn-
ar með miklu fjöri á Akureyri um
helgina. „Til að bregðast við
þessari aðsókn í fyrra, sem var
meiri en við höfðum ætlað, höf-
um við bætt við kvöldi þessa
helgina. Síðan munum við leika
úti á torgi á þeirra fjölskyldu-
skemmtun fyrir utan að láta sjá
okkur með reglulegu millibili í
sparifötunum í miðbænum,“
segir Björn. „Í fyrra fór þetta
allt saman mjög vel fram hjá
okkur og öðrum og við urðum
ekki varir við unglinga að leggja
tjaldstæði í rúst.“
Þetta verður eina tækifærið
til að sjá Nýdanska á tónleikum
það sem eftir er af sumri og því
má búast við fullu húsi í Oddvit-
anum um helgina. Þess má geta
að ný plata frá Nýdanskri er í
undirbúningi og verður hún
væntanlega tilbúin á næsta ári. ■
Nýdönsk á Akureyri
NÝDÖNSK Hljómsveitin Nýdönsk spilar á Akureyri um verslunarmannahelgina.
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Hin árlega upphitun fyrir
Innipúkann haldin í garðinum við
12 Tóna. Þar munu koma fram Stór-
sveit Nix Noltes ásamt Þóri. Léttar
veitingar verða í boði og einnig verð-
ur boðið upp á grillaðar pylsur ef
veður leyfir.
22.00 Jonathan Richman hefur
ákveðið að hita upp fyrir Innipúkann
með tónleikum á Grand Rokk föstu-
daginn 29. júlí kl. 22.00. Þórir mun
sjá um upphitun. Miðaverð er 1.500
kr.
■ ■ OPNANIR
17.00 Tvær sýningar opna í Kling
og Bang galleri, á afmælisdegi ekki
ómerkari listamanns en Stanley
Kubrick. Listamennirnir sem standa
að sýningunum eru hjónin Ásmund-
ur Ásmundsson og Gunnhildur
Hauksdóttir.
17.00 Sigurður Mar Halldórsson
opnar ljósmyndasýningu í landi
Horns í Hornafirði. Sýningin verður á
sandinum við Stokksnesveg og
nefnist einfaldlega Sandur. Myndirn-
ar voru teknar á svipuðum slóðum
síðasta sumar og verður komið fyrir
á sandinum. Þær falla því inn í um-
hverfið og skera sig úr í senn.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
8
1
2 Ágrip af sögum nokkurra einstaklinga sem
félagar Íslandsdeildar Amnesty International
hafa átt þátt í að frelsa síðustu 30 árin.
Þetta fólk var fangelsað fyrir þær sakir einar að
tjá trú sína eða skoðanir, eða vegna kyns síns og
uppruna. Þetta fólk kallar Amnesty International
samviskufanga.
„Á dimmustu tímum fangavistar minnar komu orð
ykkar og bréf sem dropar af regni, sem lengi hefur
verið beðið eftir í endalausri eyðimörk. Frelsi mitt í
dag er ávöxtur þols ykkar og þreks, vinnu og hug-
rekkis.“ Mohamed El Boukili frá Marokkó.
Dropar af regni
Amnesty International á Íslandi í 30 ár
Sýning í Blöndustöð
Áhugaverð sýning í Blöndustöð á Norðvesturlandi – 200 m ofan í jörðinni.
Opið alla daga frá kl. 13 til 17.
Amnesty International
www.amnesty.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 38 29 30 31 1
Föstudagur
JÚLÍ