Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 6
6 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR Geimferjan Discovery í geimnum: Tengdist alfljó›- legu geimstö›inni BANDARÍKIN, AP Geimferjan Discovery tengdist alþjóðlegu geimstöðinni í gær, eftir að hafa tekið snúning alveg upp við hana til þess að unnt væri að taka nær- myndir af neðra byrði ferjunnar úr myndavél í stöðinni. Mynda- takan er liður í rannsóknum á hugsanlegum skemmdum á ytra byrði geimferjunnar vegna hluta sem losnuðu af burðareldflaug- inni í flugtaki. Bandaríska geim- ferðastofnunin leggur nú mikið upp úr þessum rannsóknum til að tryggja að áhöfn Discovery tefli ekki á tvær hættur er hún snýr aftur til jarðar, og til að komast til botns í því sem nákvæmlega gerð- ist þegar geimferjan Columbia sundraðist er hún flaug inn í gufu- hvolfið fyrir tveimur og hálfu ári. Eftir snúninginn, sem leiðang- ursstjóri Discovery Eileen Collins stýrði, tengdist geimferjan geim- stöðinni vandkvæðalaust. Fagnað- arfundir urðu í stöðinni er menn úr áhöfn Discovery hittu geim- fara sem dvelja í geimstöðinni. Geimstöðvarstjórinn Sergei Krikalev bauð þá velkomna að rússneskum hætti með brauði og salti. Gangi allt að óskum er gert ráð fyrir að Discovery snúi aftur til jarðar eftir 10 daga. -aa Fjöldi frægra Íslendinga fá lóðir í Þingum í Kópavogi: Yfir tvö flúsund sóttu um ló›ir SKIPULAGSMÁL Úthlutun bæjarráðs Kópavogsbæjar á byggingarrétti í Þingum við Elliðavatn lauk í gær. Alls sendu 2.100 aðilar 2.300 um- sóknir um byggingarrétt, en rúm- lega hundrað einstaklingar fengu rétt í um 140 íbúðir. „Við lögðum áherslu á að fá til okkar ungt fólk,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi. „Síðan var einn og einn gamall tekinn með.“ Þrátt fyrir fjölda umsókna sagði Gunnar það hafa tekið mjög stuttan tíma að fara yfir þær, að- eins rúman hálfan mánuð. Samstaða var í bæjarráði um úthlutanirnar og var á sama fundi ákveðið að bjóða út gatnagerð á svæðinu. Byggingaframkvæmdir munu hefjast í apríl næstkom- andi. Nokkur nafnanna vekja at- hygli, en þannig munu feðgarnir Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári Guðjohnsen fá íbúðir hvor á móti öðrum. Þá fengu Baltasar Kor- mákur og Lilja Pálmadóttir íbúð með hesthúsi í Dalaþingi. Einnig verður Dalla Ólafsdóttir einn íbúa nýja hverfisins. - grs Eldsneytisskortur er langlíklegasta ástæ›an Margt var athugavert vi› flugástand vélarinnar TF-GTI sem fórst í Skerjafir›i hinn 7. ágúst ári› 2000. Sérstök rannsóknarnefnd skila›i ni›urstö›um sínum í gær. FLUGSLYS Eldsneytisskortur er langlíklegasta ástæða þess að flugvélin TF-GTI fórst í Skerja- firði hinn 7. ágúst árið 2000 með þeim afleiðingum að sjö létust, flugmaður og sex ungmenni. Í skýrslu rannsóknarnefndar sem skipuð var til að rannsaka or- sakir flugslyssins eru gerðar ýmsar athugasemdir við flug- ástand vélarinnar og eldsneytis- skorturinn tiltekinn sem líkleg- asta ástæða slyssins. Afleiðing aflsmissis vegna eldsneytisskorts ásamt því að þyngdarmiðja vélar- innar var nær aftari mörkum og því að flugmaðurinn hafði ekki hlotið nægilega þjálfun til að bregðast við slíkum aðstæðum, auk þess sem hann var þreyttur, olli því að flugvélin ofreis og hann missti stjórn á henni. Auk þess kemur fram í skýrslunni að Flug- málastjórn hefði hvorki átt að skrá flugvélina né gefa út loft- hæfisskírteini fyrir hana vegna óljósrar sögu hennar og ófullkom- inna gagna sem fylgdu henni. Flugvélin, sem var í eigu Leiguflugs Ísleifs Ottesen, var á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur að kvöldi 7. ágúst þegar hreyfill hennar varð elds- neytislaus í aðflugi að Reykjavík- urflugvelli og vélin fórst með öll- um sem í henni voru. Björgunar- mönnum tókst að bjarga tveimur piltum úr vélinni en þeir létust báðir af þeim meiðslum sem þeir hlutu í slysinu, sá seinni nær hálfu ári eftir slysið. Rannsóknarnefnd flugslysa skilaði lokaskýrslu sinni um slys- ið í mars árið 2001 en feður tveggja þeirra sem létust í slys- inu fengu tvo breska flugrann- sakendur til að veita umsögn um framkvæmd rannsóknarinnar og höfðu þeir sitthvað við fram- kvæmdina að athuga. Rannsókn- arnefnd flugslysa fékk álit bresku rannsakendanna til um- sagnar og fór í kjölfarið fram á það við samgönguráðherra að skipuð yrði óháð nefnd til að rannsaka slysið. Sú nefnd hóf störf í nóvember 2002 og skilaði í gær lokaskýrslu sinni. Sigurður Líndal lagaprófessor var formað- ur nefndarinnar, sem skipuð var bæði íslenskum og erlendum sér- fræðingum. oddur@frettabladid.is F í t o n / S Í A F I 0 1 3 8 4 9 athugið! ATVINNUBLAÐIÐ SEM KEMUR VANALEGA ÚT Á SUNNUDÖGUM KEMUR ÚT Á LAUGARDAG Í ÞESSARI VIKU. FRÉTTABLAÐIÐ KEMUR EKKI ÚT Á SUNNUDAG VERSLUNARMANNAHELGAR. til Würzburg s: 570 2790 www.baendaferdir.is Þýskaland er land jólamarkaðanna og bjóðum við nú jólaferð til Würzburg sem er einstaklega heillandi borg og skartar sínu fegursta í desember. Hrein upplifun er að fara á jólamarkaðina sem geyma ótal jólagjafahug- myndir; bragða á jóladrykknum „Glühwein“ og jólastemmingin eykst á hverju horni. Úrval veitingastaða er gott, hótelið þægilegt og staðsett miðsvæðis. Spennandi skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber. í Þýskalandi 1. - 4. desember 2005 8. - 11. desember 2005 Verð kr. 56.650 á mann í tvíbýli Innfalið: Flug, skattar, gisting í tveggja manna herbergi á 3* hóteli með morgunverði í 3 nætur, ferðir milli flugvallar og hótels, skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber og íslensk fararstjórn. K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A Ætlarðu í útilegu um verslun- armannahelgina? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu sátt(ur) við söluna á Sím- anum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 79% 21% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN BJÖRGUNARMENN AÐ STÖRFUM Tveimur tókst að ná á lífi úr flugvélinni sem fórst í Skerjafirðinum en báðir létust þeir á næsta hálfa ár- inu vegna meiðsla sem þeir hlutu í slysinu. FAGNAÐARFUNDIR Í GEIMNUM Á þessari sjónvarpsmynd frá NASA sjást geimfarar úr áhöfn Discovery hitta kollega úr áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S VE IN N Þ O R M Ó Ð SS O N FYRIRHUGUÐ BYGGÐ Tölvuteikning af væntanlegri byggð í Þingum við Elliðavatn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.