Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 22
Af hverju er aðalsafnaðarfundur Garðasóknar ekki haldinn eins og lög kveða á um? Venjulega er aðal- safnaðarfundurinn haldinn í mars ár hvert en núna telja formaður og varaformaður Garðasóknar sig ekki bundna af neinni tímasetningu. Hvað skyldu þeir vera að fela? Sam- kvæmt ákvörðun sóknarnefndar þá var beðið með að halda aðalsafnað- arfund þar til eftir að úrskurður áfrýjunarnefndar kirkjunnar lægi fyrir. Hinn 29. júní sl. kom svo úr- skurðurinn, svo eftir hverju er ver- ið að bíða? Er það ekki siðlaust að nokkrir einstaklingar haldi heilli sókn í gíslingu með geðþóttaákvörð- unum sínum? Samkvæmt úrskurði áfrýjunar- nefndar kirkjunnar þá telur hún framkomu formanns, varafor- manns, prestsins sr. Friðriks J. Hjartar og djáknans Nönnu Guð- rúnu Zoéga, verulega ámælisverða og fela í sér brot samkvæmt 12. gr. laga nr. 78/1997 og leggur til að þau verði áminnt sbr. a-lið 4. mgr. 12. gr. laga nr. 78/1997. Biskup hefur núna áminnt alla þessa aðila. Af hverju var þetta fólk áminnt? Samkvæmt okkar skilningi boðar kristin trú sátt og samlyndi, umburðarlyndi, kærleika og fyrirgefningu svo eitt- hvað sé nefnt. Einhverra hluta vegna hafa fjórmenningarnir ekki treyst sér til að fara eftir þessum boðskap. Fyrir utan að hafa hlotið áminningu hafa allir þessir einstak- lingar, þ.e. formaður, varaformaður, prestur og djákni hafnað allri sátt- argjörð sem er með öllu óskiljan- legt þar sem þau eru öll í þjónustu innan kirkjunnar og þá er ekki nema von að spurt sé: Er þetta fólk hæft til að vera í þjónustu og for- svari fyrir heila sókn? Af hverju neituðu þau sáttargjörð? Sóknarpresturinn séra Hans Markús er sá eini af deiluaðilum sem enga áminningu hefur fengið en þrátt fyrir þessa ljótu herferð á hendur honum er hann sá eini sem rétt hefur út sáttarhönd. Sam- kvæmt úrskurði áfrýjunarnefndar er honum gert að víkja, sem er alls óskiljanlegt þar sem biskup segir í bréfi til formanns sóknarnefndar 14. júlí 2004 að sóknarpresturinn hafi ekkert brotið af sér í starfi og því séu engar forsendur fyrir því að hann verði fluttur til. Á fundi stuðn- ingsmanna séra Hans Markúsar sem haldinn var 13 júli síðastliðinn kom skýrt fram ánægja sóknar- barna með sóknarprestinn og krafa um að hann haldi sínu góða starfi áfram. Fundurinn lýsti yfir van- trausti á störf forystu sóknarnefnd- ar. Ýmsir tóku til máls á fundinum og má nefna að ritari sóknarnefnd- ar sagði að sóknarpresturinn væri ekki venjulegur maður, líklegast hefur hún þar átt við að umburðar- lyndi sóknarprestsins til sátta væri einstakt miðað við það hvernig að honum hefur verið vegið. Enda um sl. páska ritaði ritarinn bréf þar sem kom fram yfirlýsing hennar um að deilurnar í Garðasókn fjöll- uðu í raun um ekki neitt. Hvernig er hægt að réttlæta það að sóknar- presturinn sé fluttur til í starfi sem ekkert hefur brotið af sér en áminntu fjórmenningarnir sitji áfram? Skaðinn er orðinn nógur í sókninni og telur núverandi forysta sóknarinnar að ekki hafi verið hægt að halda uppi eðlilegu sóknarstarfi. Það er hárrétt hjá þeim, þeir hafa bara ekki áttað sig á því að vandinn er hjá þeim sjálfum. Er það ekki mergur málsins, þeir sjá flísina í auga náungans en ekki bjálkann í eigin auga. Hluti sóknarnefndar hefur þurft að eyða heilmiklum tíma í að halda úti þessari ógeð- felldu herferð á hendur sóknar- prestinum, tíma sem nota hefði átt í uppbyggjandi starf innan sóknar- innar. Þessir aðilar verða að fara að gera sér grein fyrir þvi að Garða- sókn er ekki einkahlutafélag þar sem fáir aðilar stjórna og ráða ríkj- um eftir eigin geðþótta heldur eru þeir þar fyrir hönd fólksins sem býr í bænum sem hefur lýðræðislegan rétt til að láta skoðun sína í ljós. Þrátt fyrir áminningar biskups á formann og varaformann þá brjóta þeir enn af sér með því að neita að halda aðalsafnaðarfund. Eru þeir ekki búnir að dæma sjálfa sig úr leik og orðnir vanhæfir til starfa í sóknarnefnd? Formaður heldur enn áfram, þrátt fyrir áminningu bisk- ups, að skipta sér af máli þessu með fundi með ráðherra. Formaður og varaformaður Garðasóknar: finnst ykkur ekki skaðinn nægur og sið- ferðislega rétt að segja af ykkur svo hægt sé að koma á eðlilegu starfi innan sóknarinnar? Í það minnsta boðið til aðalsafnaðarfundar strax! Höfundar eru sóknarbörn í Garðasókn. ■ 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR BRÉF TIL BLAÐSINS DAGBLAÐIÐ VÍSIR 167. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 Helgarblað FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 Bls. 39 Feimin og flytur til New York ÞAU LÉTUST ÖLL Karl Frímann Ólafsson, 35 ára. Lést 7. ágúst 2000. Gunnar Viðar Árnason, 23 ára. Lést 7. ágúst 2000. Mohamed Jósef Daghlas, 29 ára. Lést 7. ágúst 2000. Heiða Björk Viðarsdóttir, 20 ára. Lést 10. ágúst 2000. Jón Börkur Jónsson, 18 ára. Lést 16. júní 2001. Sturla Þór Friðriksson, 17 ára. Lést 1. janúar 2001. Yngstu milljóna-mæringar Íslands Hvernig ertu í rúminu Fimm ár frá flugslysinu hræðilega í Skerjafirði „Mamma, ég skila mér heilum heim” ? 7 Fann ilminn af frægðinni en berst nú gegn kynferðisofbeldi Ingibjörg Stefánsdóttir Bls. 30-31 Bls. 32-33 Bls.8 og 20-23 Sigurður Bollason og Magnús Ármann í DV nærmynd Bls.16-18 Þolir ekki sviðsljósið og ávon á barni Hreimur Örn Heimisson Bls. 54 ? H blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag DAGBLAÐIÐ VÍSIR 167. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 l r l FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 Bls. 39 Feimin og flytur til New York Karl Frímann Ólafsson, 35 ára. Lést 7. ágúst 2000. Gunnar Viðar Árnason, 23 ára. Lést 7. ágúst 2000. Mohamed Jósef Daghlas, 29 ára. Lést 7. ágúst 2000. Heiða Björk Viðarsdóttir, 20 ára. Lést 10. ágúst 2000. Jón Börkur Jónsson, 18 ára. Lést 16. júní 2001. Sturla Þór Friðriksson, 17 ára. Lést 1. janúar 2001. t illj -i Í l Hvernig ertu í rú inu i f fl l i il í j fi i „ a a, ég skila ér heilu hei ” Fann ilminn af frægðinni en berst nú gegn kynferðisofbeldi F ár rá ugs ys nu hr ð ega ker a rð Ingibjörg Stefánsdóttir Bls. 30-31 Bls. 32-33 Bls.8 og 20-23 Sigurður Bollason og Magnús Ármann í DV nærmynd Yngs u ónar ngar s ands Bls.16-18 Þolir ekki sviðsljósið og ávon á barni Hrei ur Örn Hei isson m m Bls. 54 m ÞAU LÉTUST Er Gar›asókn í gíslingu? STUÐNINGSMENN Fundir hafa verið haldnir í Garðasókn til stuðnings séra Hans Markúsi Hafsteinssyni. fiessir a›ilar ver›a a› fara a› gera sér grein fyrir flví a› Gar›asókn er ekki einkahluta- félag flar sem fáir a›ilar stjórna og rá›a ríkjum eftir eigin ge›flótta heldur eru fleir flar fyrir hönd fólksins sem b‡r í bænum sem hefur l‡›ræ›is- legan rétt til a› láta sko›un sína í ljós. HELENA GUÐMUNDSDÓTTIR OG ODDNÝ ÞÓRA HELGADÓTTIR SKRIFA UM DEILURNAR Í GARÐASÓKN Í Fréttablaðinu 27. júlí er ágæt grein um Surtseyjarrannsóknir. Þar er einnig viðtal við Hjálmar Árnason alþingismann, sem rétti- lega tekur fram, að almenningur eigi að fá aukna fræðslu um land- nám lífvera og alla þessa stór- brotnu þróun, sem á sér stað í eynni. Ekki er ég þó sammála Hjálmari um, að það fáist endilega með því að hleypa öllum erlendum og íslenskum ferðamönnum þang- að í eyjuna, sem það vilja. Þá yrði lífríki eyjarinnar fljótt raskað, og rannsóknir þar yrðu lítils virði. Viðvíkjandi spurningunni um fræðslu á Surtsey og þróun lífsins þar, er því við að bæta, að til eru hátt í 600 vísindalegar ritgerðir um eyna. Er hennar getið í fjölmörgum tímaritum um allan heim, blaða- menn sækjast eftir að skrifa um Surtsey og margar heimildamyndir hafa verið gerðar, og er enn verið að vinna að, um þróun Surtseyjar og rannsóknirnar þar. Ég hef ritað fjórar bækur fyrir almenning um framvindu lífs í Surtsey. Fyrsta bókin kom út hjá Butterworths í London 1975. Bók fyrir almenning kom út á íslensku 1994. Var hún gefin út af Hinu ís- lenska náttúrufræðifélagi og Surts- eyjarfélaginu. Nú hef ég endur- samið þessa bók og fært til nútíma horfs. Hefur hún í ár, 2005, bæði verið gefin út á þýsku og ensku. Sér Háskólaútgáfan um dreifingu þeirra bóka. Þessar síðustu bækur mínar eru einkum ætlaðar erlendum ferða- mönnum. Skemmtiferðaskip koma mörg til Vestmannaeyja. Síðan sigla þau flest umhverfis Surtsey eða lóna fyrir sunnan eyna. Er ferða- mönnum þá gefinn kostur á að taka myndir af Surtsey, sem þeir gera óspart. Mér hefur verið boðið að flytja erindi um Surtsey um borð í þessum skipum. Geta ferðamenn nú einnig fengið lesningu um hvað er að sjá fróðlegast á eynni, en fáir væru bættari þótt þeir kæmu þar í land, og það væri illt fyrir lífið á eynni, því hinu verndaða umhverfi yrði þá fljótt raskað. Þessar fræði- bækur mínar um Surtsey munu vera fáanlegar í flestum bókaversl- unum og almenningi til fróðleiks. ■ N‡jar fræ›ibækur um Surtsey Surtseyjar er geti› í fjöl- mörgum tímaritum um allan heim, bla›amenn sækjast eftir a› skrifa um Surtsey og margar heimildamyndir hafa veri› ger›ar, og er enn veri› a› vinna a›, um flróun Surts- eyjar og rannsóknirnar flar. Ég get ekki orða bundist yfir pistli sem Borghildur Gunnars- dóttir skrifaði í Fréttablaðið þann 27. júlí síðastliðinn. Takk! Takk fyrir að vekja máls á þessu! Ég hélt að ég væri ein í heiminum með að hata þessar kirkjuklukkur! Hvers á maður að gjalda fyrir það eitt að búa nálægt Hallgrímskirkju, alltaf vakinn fyrir allar aldir á meðan þessir kirkjumenn fara hamför- um á kirkjuklukkurnar, finnst alveg ógurlega sniðugt að spila heilu lögin á heila, hálfa og fjórðungstímanum. Og fyrst um jólin tekur nú steininn úr. Ég þarf að flýja heimilið mitt ef ég á að ná að lesa fyrir jólaprófin, ég veit ekki hvað á að vera snið- ugt eða frábært við að spila þessi endalausu jólalög alltaf á kirkjuklukkurnar, vitiði, ef ég vil hlusta á jólalög þá á ég geislaspilara, takk fyrir. Kirkjumenn Hallgrímskirkju, slakið á. ■ Kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju LILJA SIF ÞORSTEINSDÓTTIR NEMI SKRIFAR: STURLA FRIÐRIKSSON SKRIFAR UM FRÆÐSLU UM SURTSEY FRÁ SURTSEY Lífríki eyjarinnar yrði fljótt raskað og rannsóknir þar lítils virði ef ferðafólki yrði hleypt þangað hömlulaust, segir greinarhöfundur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.