Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 10

Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 10
Á RÆKJUVEIÐUM Flæmski rækjuveiðimað- urinn Stefaan Hancke sést hér að störfum við strönd Norðursjávar við Oostduinkerke í Belgíu í gær. Þar er hefð fyrir því að stunda rækjuveiðar af hestbaki. 10 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P KÖNNUN Í ítarlegri lífskjararann- sókn sem IMG Gallup fram- kvæmdi á Akureyri og á höfuð- borgarsvæðinu í vor, að ósk bæjaryfirvalda á Akureyri, má lesa margvíslegar niðurstöður og ef svör eru samkeyrð má fá enn fleiri og nákvæmari upplýs- ingar. Margar gagnlegar og lítt um- deildar upplýsingar er að finna í niðurstöðunum sem bæjaryfir- völd á Akureyri geta notað við uppbyggingu bæjarins, bæjar- búum öllum til hagsbóta, en þar er einnig að finna upplýsingar sem sumir telja viðkvæmar og vakið hafa deilur á Akureyri. Þar á meðal eru upplýsingar sem bæjaryfirvöld á Akureyri lögðu ekki upp með að kanna sérstaklega en fylgja með í pakkanum sem bakgrunnsbreyt- ur sem notaðar voru við rann- sóknina. Ein slík bakgrunns- breyta er spurning númer 58 en þar eru Akureyringar spurðir hvaða flokk eða lista þeir hefðu kosið í vor ef gengið hefði verið til kosninga á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd. Í endanlegri skýrslu sem IMG Gallup afhenti bæjaryfir- völdum á Akureyri eru svör við þeirri spurningu keyrð saman við svör við öðrum spurningum og þá má meðal annars sjá að nær helmingur stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er með 300 þúsund krónur eða meira í mánaðarlaun. Fjöl- skyldutekjur 60 prósenta fylgis- manna Sjálfstæðisflokksins eru hærri en 550 þúsund krónur á meðan fjölskyldutekjur 8,6 pró- senta stuðningsmanna Vinstri grænna eru hærri en 550 þús- und krónur. Fylgismenn Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri er frekar að finna á meðal þeirra sem búið hafa lengi á Akureyri á meðan stór hluti stuðningsmanna Sam- fylkingarinnar á fremur stutta búsetu á Akureyri að baki. Aðeins 5,6 prósent kjósenda Framsóknarflokksins á Akur- eyri hafa háskólapróf en 35,2 prósent kjósenda Sjálfstæðis- flokksins hafa slíkt próf. Hátt í þriðjungur kjósenda Samfylk- ingarinnar hefur einungis grunnskólapróf. Ýmsar fleiri slíkar upplýs- ingar má lesa úr rannsókninni, svo sem aldurs- og kynja- samsetningu fylgismanna flokk- anna og í hvaða hverfum á Akureyri þeir búa. Bæjaryfir- völd á Akureyri hafa einnig í höndum sambærilegar upplýs- ingar varðandi íbúa höfuðborg- arsvæðisins. kk@frettabladid.is edda.is Kortabók Íslands – ómissandi í bílinn! Kortabók Máls og menningar er sniðin að þörfum þeirra sem ferðast um Ísland. Landinu er skipt upp í 60 korta- síður og er gott yfirgrip á milli þeirra sem gerir notkun bókarinnar mjög þægilega. Einnig eru í bókinni 38 ómissandi kort af Reykjavík og öðrum þéttbýlisstöðum. Aftast í bókinni er ítarleg skrá yfir rúmlega 9.000 örnefni og 2.000 götur á höfuðborgarsvæðinu. Bókin var útnefnd besta kortabók heims árið 2000 og hefur síðan verið vinsælasta kortabók á Íslandi. Bókin er í stöðugri vinnslu og er uppfærð á hverju ári! Söfn – Sundlaugar – Tjaldstæði – Golfvellir – Bensínstöðvar – Tíðnisvið útvarps – Veðurstöðvar – Vegalengdatafla ofl. Ný útgáfa 500 kr. afsláttur Ef þú skilar inn eldri Kortabók í næstu bókabúð 2. sæti Almennt efni Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 20.–26. júlí Eldfimar uppl‡singar í umdeildri lífskjararannsókn Ni›urstö›ur lífskjararannsóknar sem IMG Gallup framkvæmdi á Akureyri og á höfu›borgarsvæ›inu í vor hafa vaki› deilur. Út úr fleim má lesa laun fylgismanna stjórnmálaflokkanna, menntun og í hva›a hverfum fleir eru búsettir. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa í höndum sambærilegar uppl‡singar var›andi Reykvíkinga. SKIPTAR SKOÐANIR Á AKUREYRI Akureyringar hafa flestir hverjir fagnað þeim niðurstöðum rannsóknarinnar sem þegar hafa verið kynntar opinberlega en nokkrar niðurstöður, sem bæjaryfirvöld hafa enn ekki kynnt, hafa vakið deilur. KÖNNUN Guðbjörg Andrea Jónsdótt- ir, rannsóknarstjóri hjá Gallup, segir að um nafnlausa könnun hafi verið að ræða og bæjaryfirvöld á Akureyri geti því ekki séð hvaða einstaklingar standi að baki svörun- um. „Það var tekið tilviljunarkennt úrtak og farið eftir öllum reglum um persónuvernd,“ segir Guðbjörg. Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Persónuvernd, segist ekki vita til þess að kvörtun hafi borist vegna þessarar tilteknu könnunar. „Ef kann- anir eru nafnlausar er ekki hægt að rekja upplýsingar sem aflað er með könnun- um til einstaklinga og þá reynir ekki á lög um persónu- vernd,“ segir Þórður. - kk Nafnlaus könnun: Svörin ekki rakin Gagnrýni varaþingmanns: Bæjaryfirvöld á gráu svæ›i STJÓRNMÁLASKOÐANIR Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir það geta orkað tvímælis að stjórnmálaskoðunum fólks sé blandað í rannsókn sem fjármögn- uð er af bæjaryfirvöldum. Segir hann tilganginn með spurning- unni um hvaða flokk eða lista fólk hefði kosið, ef gengið hefði verið til kosninga þegar könnunin var gerð, hafa verið að varpa skýrara ljósi á ýmsar aðrar gagnlegar upplýsingar sem ætlunin var að ná fram. „Bæjarstjórn Akureyrar hefur í þrígang gert lífskjarakannanir. Meðferð þeirra upplýsinga sem þar hafa komið fram hefur alltaf verið með sambærilegum hætti og á síðasta kjörtímabili voru bæjarfulltrúar Samfylkingarinn- ar í meirihlutanum og tóku þátt í að gera slíkar kannanir. Í ljósi um- ræðunnar að undanförnu má hins vegar vel vera að það hafi verið mistök að hafa þessa spurningu með en tilgangurinn var alls ekki að mæla fylgi flokkanna enda hef- ur bæjarstjórnin ekkert með slík- ar upplýsingar að gera,“ segir Kristján. - kk Þjónustukannanir í Reykjavík: Fylgi flokkanna ekki mælt REYKJAVÍKURBORG Eiríkur Hjálm- arsson, aðstoðarmaður borgar- stjórans í Reykjavík, segir að borgin geri á tveggja ára fresti þjónustukannanir þar sem við- horf borgarbúa til margvíslegra þjónustu Reykjavíkurborgar séu könnuð. „Borgaryfirvöld hafa hins vegar ekki gert könnun þar sem borin eru saman lífsgæði í Reykjavík og á Akureyri og borg- in hefur heldur ekki gert könnun þar sem spurt er um stjórnmála- viðhorf borgarbúa. Ef það er sér- stakt hagsmunamál Akureyringa að vita pólitíska afstöðu Reykvík- inga þá er það þeirra mál en borg- aryfirvöld telja það ekki sitt hlut- verk,“ segir Eiríkur. - kk GAGNRÝNI Lára Stefánsdóttir, Akureyringur og varaþingmaður Samfylkingarinnar í N o r ð a u s t u r k j ö r - dæmi, er ein þeirra sem gagnrýnt hafa bæjaryfirvöld á Akureyri harðlega vegna lífskjararann- sóknarinnar. „Það er gríðarlega alvarleg staða að Akureyrarbær noti fé bæjarbúa til að kanna lífskjör og stöðu stjórnmálaflokka í bænum og heimti að niðurstöður séu trún- aðarmál. Hitt er einnig alvarlegt að sú spurning vaknar hvort bæjaryfirvöld hafi seilst inn á grátt svæði hvað varðar upplýs- ingaöflun og lög um meðferð persónuupplýsinga,“ segir Lára. - kk LÁRA STEF- ÁNSDÓTTIR GUÐBJÖRG ANDREA JÓNSDÓTTIR Bæjarstjórinn segir það geta orkað tvímælis að bæjaryfirvöld kanni stjórnmálaskoðanir fólks: Tilgangurinn ekki a› mæla fylgi flokkanna BÆJARSTJÓRINN Á AKUREYRI Kristján segir að bæjarstjórnin sem slík hafi engin not fyrir upplýsingar um fylgi flokkanna. AÐSTOÐARMAÐUR BORGARSTJÓRA Eiríkur segir að Reykjavíkurborg hafi ekki fjármagnað kannanir þar sem spurt hafi verið um stjórnmálaskoðanir borgarbúa.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.