Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 26

Fréttablaðið - 29.07.2005, Page 26
Ísland hefur stofnað til stjórn- málasambands við fjórða minnsta land í heimi, Túvalú. Það er smá- mennt eyríki í Kyrrahafi um 650 sjómílur norðan Fíjí-eyja. Auk þess að vera eitt hið fámennasta í heiminum er ríkið einnig mjög fá- tækt. Margir spyrja sig eflaust hver sé tilgangurinn með að hefja stjórnmálasamband við slíkt land. Grétar Már Sigurðsson skrif- stofustjóri í utanríksiráðuneytinu segir það stefnu stjórnvalda að koma á stjórnmálasambandi við öll ríki Sameinuðu þjóðanna. „Það eru margir sem halda að þetta sé annað og meira en það er. Þetta þýðir almennt að stjórnvöld geti talað saman með formlegum hætti. Það er enginn kostnaður sem þessu fylgir,“ segir Grétar Már sem telur að alltaf sé gott að eiga sem best sambönd við allar þjóðir innan Sameinuðu þjóðanna sérstaklega þegar upp komi mál sem snerti hagsmuni Íslands. Þóra Arnórsdóttir fréttamaður hefur sérstakan áhuga á smá- ríkinu Túvalú eftir að hún fjallaði um inngöngu þess í Sameinuðu þjóðirnar. „Ég er hissa á því að við höfum ekki stofnað til stjórnmála- sambands við Túvalú fyrr,“ segir Þóra, sem hefur lengi langað að heimsækja eyjarnar. „Þetta er of- boðslega afskekkt og erfitt að komast þangað. Maður verður að eiga mikið af peningum og hafa mikinn tíma,“ segir hún. Henni finnst margt heillandi við eyj- arnar enda samfélagið virkt þrátt fyrir mikla smæð, en á eyjunum búa eingöngu ellefu þúsund íbúar á níu eyjum sem samtals eru um 27 ferkílómetrar. Í höfuðstaðnum er einn fangaklefi sem sjaldan er notaður og dómari kemur til eyjanna tvisvar á ári til að rétta í öllum málum. Túvalú er sjálfstætt konungs- ríki. Það var áður bresk nýlenda og hét þá Ellice Islands. Landið hlaut sjálfstæði frá Bretum árið 1978. Nafnið Túvalú þýðir í raun „átta sem standa saman“ og vísar til átta eyja en sú níunda og minnsta var ekki byggð fyrr en eftir 1950. Fúnafatí er höfuðstaður Tú- valú en öll helsta stjórnsýsla fer fram í þorpinu Vaíakú. Íbúar eyj- anna tala túvalúísku, I-Kiribati og ensku. 93 prósent íbúanna eru læs enda er skólaskylda frá sex til fimmtán ára aldurs. Eyjarnar eru flatar og rísa sjaldan hærra en fimm metra yfir sjólínu en sjósókn er aðalatvinnu- vegurinn á Túvalú. Þar sem eyj- arnar eru afskekktar koma færri en þúsund ferðamenn þangað á hverju ári. Ríkið er því fremur fá- tækt. Það vakti þó athygli fyrir nokkrum árum þegar stjórnvöld Túvalú buðu upp internetteng- ingu landsins og seldu hæstbjóð- anda. Telja margir að það hafi bjargað fjárhag ríkisins. Ein útvarpsstöð er starfandi á eyjunum og sendir hún út 40 tíma á viku á ensku og túvalúísku. Um þúsund símar eru í notkun en enginn farsími. Vegir á eyjunum eru samtals átta kílómetrar að lengd og eng- inn þeirra malbikaður. Hljómar svolítið eins og Ísland fyrir all nokkrum árum. ■ 26 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR GERTRUDE STEIN (1874-1946) lést þennan dag. ÍSLAND STOFNAR TIL STJÓRNMÁLASAMBANDS VIÐ TÚVALÚ: Einn fangaklefi í öllu ríkinu „Mér líkar gott útsýni en ég vil fá að sitja og snúa baki í það.“ Gertrude Stein var bandarískur rithöfundur, skáld og feministi sem lengst af bjó í Frakklandi. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Sigríður Skúladóttir, Hraunbæ 103, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 13. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurður Gunnarsson húsasmíðameist- ari, Dalbraut 14, Reykjavík, lést föstudaginn 15. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmunda Sigurey Sigurðardóttir, Hringbraut 128h, Keflavík, lést þriðju- daginn 19. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigríður Elísabet Tryggvadóttir, Skúla- götu 72, Reykjavík, andaðist þriðjudag- inn 19. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Berta Bergsdóttir, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist mánudaginn 25. júlí. Iðunn Björnsdóttir, Einimel 7, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 25. júlí. Júlíus Eiðsson, Kirkjuvegi 11, áður Höfn, Dalvík, lést á Dalbæ, heimili aldr- aðra á Dalvík, mánudaginn 25. júlí. JAR‹ARFARIR 11.00 Sigurborg Sigurðardóttir frá Núpsseli, Miðfirði, V-Húnavatns- sýslu, Gullsmára 11, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digranes- kirkju. 13.00 Guðrún Konráðsdóttir, Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju. 15.00 Örn Jákup Dam Washington, verður jarðsunginn frá Neskirkju. 15.00 Þorgerður Sveinsdóttir kennari, frá Kolsstöðum í Miðdölum, síð- ast til heimilis að Droplaugarstöð- um, Snorrabraut 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. Ísraelskur dómstóll sýknaði þennan dag árið 1993 John Demjanjuk af öllum sökum. Hann hafði áður verið fundinn sekur um að vera einn hataðasti fangavörður í útrýmingarbúðum Nasista í Treblinka í Póllandi sem gekk undir nafninu Ivan hræðilegi. Demjanjuk var 73 ára þegar þetta gerðist og starfaði sem bifvélavirki í Ohio. Fimm árum áður var hann dæmdur til dauða fyrir að stjórna gasklefa í útrýmingarbúðunum í Treblinka þar sem yfir 870 þúsund gyð- ingar voru myrtir. Hann hélt því ætíð fram að hann hefði verið tekinn í misgrip- um fyrir hinn rétta Ivan. Nýjar sannanir fundust árið 1992 í KGB-skýrslum þar sem talið var að Ivan hræðilegi hefði heitið Ivan Marchenko en ekki Ivan Demj- anjuk. Ekki voru þó allir sannfærðir um sakleysi hans og var hann því færður í fangelsi eftir úrskurðinn til að verndar þar til hann gat yfirgefið Ísrael. Demjanjuk missti bandarískan ríkisborgararétt sinn árið 1981 og var af- hentur Ísraelum árið 1986. Hann fékk að snúa aftur til Bandaríkj- anna eftir dóminn og endurheimti ríkisborg- araréttinn árið 1998. Hins vegar var hann tekinn af honum á ný árið 2002. Í dómsúr- skurði sagði að þótt Demjanjuk væri ekki Ivan hræðilegi væri ljóst að hann hefði starfað sem vörður í út- rýmingarbúðum. Mál Demj- anjuks velkist enn í bandaríska réttarkerfinu. 29. JÚLÍ 1993 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1890 Vincent van Gogh fremur sjálfmorð í Frakklandi. 1934 Ríkisstjórn Hermanns Jón- assonar tekur við völdum. 1954 Föruneyti hringsins, fyrsta bók Hringadróttinssögu eftir JRR Tolkien, er gefin út í Bretlandi. 1968 Páll páfi sjötti ákveður að getnaðarvarnir verði áfram bannaðar af kaþólsku kirkj- unni. 1977 Þýskur bankaræningi er handtekinn í Reykjavík með 277 þúsund mörk. Fé hafði verið lagt til höfuðs honum erlendis. 1981 Karl Bretaprins gengur að eiga Díönu Spencer í dóm- kirkju St. Pauls. Talið er að um 750 milljónir manna hafi fylgst með athöfninni með einum eða öðrum hætti. Demjanjuk er ekki Ivan hræ›ilegi Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. Þráinn Þórisson fyrrverandi skólastjóri, Skútustöðum, Mývatnssveit, verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju þriðjudaginn 2. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga (reikningur í Íslandsbanka, Húsavík, s. 440 4000) eða Krabbameinslækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss (s. 543 1151). Margrét Lárusdóttir Höskuldur Þráinsson Sigríður Magnúsdóttir Brynhildur Þráinsdóttir Baldvin Kristinn Baldvinsson Sólveig Þráinsdóttir Steinþór Þráinsson Oddný Snorradóttir Hjörtur Þráinsson og fjölskyldur www.steinsmidjan.is AFMÆLI Sigurjón Sigurbjörnsson, blikksmiður og hlaupari, Álftamýri 58 Reykjavík, er fimmtugur í dag. Sigurður P. Haukson, framkvæmdarstjóri, Espi- gerði 6 Reykjavík, er fimmtugur í dag. Erla Sveinsdóttir, Fögruhlíð 3 Hafnarfirði, verður fimmtug 2. ágúst næstkomandi. Af því tilefni munu hún og eiginmaður hennar, Einar Skagfjörð, taka á móti vin- um og vandamönnum laugardaginn 30. júlí á tjaldstæðinu á Siglufirði. FÆDDUST fiENNAN DAG 1214 Sturla Þórðarson, sagnaritari og lögmaður. 1805 Alexis de Tocqueville stjórnmálaheimspekingur. 1871 Gregorí Efímóvítsj Raspútín, ráðgjafi Roma- nov-keisarafjölskyldunnar rússnesku. 1883 Benito Mussolini, fasistaleiðtogi á Ítalíu. 1905 Dag Hammarskjold, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna 1953 til 1961. Túvalú eyjar eru 650 sjómílur norðan Fíjí eyja. DROTTNING Í HEIMSÓKN Túvalú var bresk nýlenda til ársins 1978 þegar það hlaut sjálfstæði. Elísabet Bretadrottning kom í heimsókn til eyjanna árið 1982. STOFNAÐ TIL STJÓRNMÁLASAM- BANDS Fastafulltrúar Íslands og Túvalú hjá Sameinuðu þjóðunun skrifa undir yfir- lýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna í New York.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.