Fréttablaðið - 29.07.2005, Síða 39
FÖSTUDAGUR 29. júlí 2005 27
„Ætli ég hafi ekki verið sjö ára
þegar ég vann mér inn fyrstu
launin,“ rifjar Kolbrún Björg-
úlfsdóttir myndlistarmaðurinn
Kogga upp. „Ég er alin upp aust-
ur á fjörðum og þá kom fyrir að
fólk tók með sér vinnu heim og
hnýtti til dæmis tauma.“ Á línu-
veiðum eru taumar bundnir með
reglulegu millibili á línuna og
við þá eru festir krókar. Starf
Koggu fólst í að binda króka á
taumana sem síðar var sett
beita á. „Þetta var hálfgerð bað-
stofuvinna, fjölskyldan sat sam-
an og hnýtti á kvöldin,“ segir
Kogga. Mér leiddist þetta aldrei
því ég sat alltaf á gólfinu fyrir
framan viðtækið og hlustaði á
leikrit í Ríkisútvarpinu.“
Greitt var fyrir hvert knippi
af hnýttum taumum og Kogga
segir að það hafi verið hægt að
hafa ágætan pening út úr þessu,
að minnsta kosti fyrir sjö ára
gamla tátu. „Ég gat lagt til
hliðar og safnað í sarpinn fyrir
gagnfræðiskólann. Svo tók auð-
vitað frystihúsið og síldarplanið
við eins og hjá flestum,“ segir
Kogga sem var ekki nema níu
ára þegar hún var komin á kaj-
ann og ferjaði þorsk eftir
bryggjusporðinum. „Það var
ansi erfitt, enda var hlassið oft
þungt og ég þurfti að nota alla
mína krafta svo börurnar yltu
ekki út á hlið og allt færi út um
allt.“ Kogga telur að það hafi
skipt miklu máli fyrir sig að
hafa byrjað að vinna ung. „Ég er
ekki í nokkrum vafa að það
gerði mér gott.“ ■
DANS DANS DANS Ráðherrar geta líka
dansað.
Landsmót línu-
dansara í ágúst
Landsmót íslenskra línudansara
verður haldið í fimmta sinn í ár, í
þetta sinn á Akranesi. Óli Geir Jó-
hannesson hefur stundað línudans
í tólf ár. Hann byrjaði að kenna
línudansinn ásamt kennslu í sam-
kvæmis- og djassdönsum en nú
kennir hann eingöngu línudans.
Hann verður einn af aðalkenn-
urum á Landsmótinu í ágúst
ásamt Kate Sala frá Bretlandi
sem hann segir einn færasta
kennara í heimi.
„Við rennum algerlega blint í
sjóinn,“ segir Óli Geir um þátt-
töku á mótinu en skráningu lýkur
3. ágúst. Í fyrra mættu um 70
þátttakendur á mótið og segir Óli
Geir ánægjulegt að sjá að mikil
nýliðun er í dansinum en aukinn
áhugi virðist vera á honum hjá
ungu fólki.
„Línudansinn er kominn í flest
byggðarlög landsins,“ segir Óli
Geir sem telur þó að dansinn sé
mun vinsælli úti á landi. „Fólk
notar þetta sem afsökun fyrir að
hittast,“ segir hann en ekkert
verður keppt á Landsmótinu
heldur verður einungis dansað frá
morgni til kvölds. Íslandsmót og
bikarmót eru einnig haldin á
hverju ári og segir Óli Geir að
keppnin sé alltaf að stækka.
Hugmyndir fólks um klæða-
burð við þessa iðju eru fastmót-
aðar. Kúrekastígvél, gallabuxur
og köflótt skyrta. Óli Geir segir
engar kröfur gerðar um klæða-
burð á mótinu og sé hann með öllu
frjáls. Mótið verður haldið 12. til
14. ágúst og hægt er að nálgast
upplýsingar um það á www.akra-
nes.is. ■
TÖFRAFLAUTAN Tónlistarhátíðin í Salz-
burg stendur nú yfir og meðal þess sem
berja má augum er sýningin Töfraflautan
eftir Wolfgang Amadeus Mozart, en þessi
mynd er tekin af æfingu.
KOGGA
FYRSTA STARFIÐ: KOLBRÚN BJÖRGÚLFSDÓTTIR MYNDLISTARMAÐURINN KOGGA
Hn‡tti tauma sjö ára gömul