Fréttablaðið - 29.07.2005, Qupperneq 62
50 29. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Forsvarsmenn Skjás eins leita núdauðaleit að íslenskum pipar-
sveini fyrir þáttinn Bachelor sem
hefst á sjónvarpsstöðinni í haust.
Áætlað er að tökur hefjist 15. ágúst
en enn hefur stöðin ekki fundið
rétta manninn. Stúlkurnar sem vilja
keppast um hylli piparsveinsins bíða
aftur á móti í röðum til
að fá að taka þátt,
þannig að hann
ætti að fá úr nógu
að moða. Finnist
rétti piparsveinninn
fær hann afnot af
glæsilegri pipar-
sveinaíbúð og lúxusbif-
reið á meðan á upptök-
um stendur og á
meðan þættirnir
eru sýndir á Skjá
einum. Ekki er
vitað til þess að
piparsveinninn
fái greitt fyrir
þátttökuna.
Lárétt: 2 skák, 6 upphrópun, 8 lín, 9
sunna, 11 tveir eins, 12 mælikvarði, 14
tónverk, 16 drykkur, 17 bein, 18 þrep í
stiga, 20 sólguð, 21 innyfli.
Lóðrétt: 1 eiturlyf, 3 bardagi, 4 baðst um,
5 þrír eins, 7 mannabústaðurinn, 10 farfa,
13 nautgripir, 15 mjög, 16 skjóti, 19 dýra-
mál.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Humar
1.290,-kr.kg
Ótrúlegt verð á fínum humri.
. , kr.kg
Ó
u ar
Búið er að velja flesta staðgengla
fyrir kvikmyndina Flags of our
Fathers, sem Clint Eastwood leik-
stýrir. Þá eru skriðdrekarnir klár-
ir og það styttist í komu leikstjór-
ans goðsagnakennda til landsins.
Það er þó ekki eintóm gleði og
hamingja sem fylgir því að taka
þátt í kvikmynd af þessari stærð-
argráðu og hafa allir þátttakendur
skrifað undir samning þess efnis
að þeir ræði ekki við fjölmiðla um
það sem fer fram á tökustað. Þetta
er ekki það eina sem leikararnir
eru skyldaðir í því sætaferðir hafa
verið gerðar frá Reykjavík til
Keflavíkur í lítinn bragga þar sem
þeir fá viðeigandi klippingu, það
er að segja hermannaklippingu.
Margir hafa tekið miklum
breytingum og hefur skegg og hár
fengið að fjúka án nokkurar misk-
unnar. Einn þeirra var Jóel
Sæmundsson, en hann er áhuga-
leikari frá Þórshöfn sem býr í
Reykjavík um þessar mundir.
„Þetta tók snöggt af og var hálf-
gerð færibandavinna,“ sagði hann
en hægt var að velja um snoð-
klippingu og hefðbundna drengja-
klippingu frá tímum seinni heim-
styrjaldarinnar. Jóel sagðist til-
tölulega sáttur með sína klipp-
ingu. „Þetta verður að duga á
Þjóðhátíðina í Eyjum,“ sagði hann
glaður í bragði. Hann hafði ekki
hugmynd um hvort hann fengi að
deyja fyrir Eastwood, það yrði
bara að koma í ljós.
Það er því augljóst að margir
karlar eru til í að leggja mikið á
sig til þess að komast í tæri við
Clint Eastwood og sjá ekki mikið
eftir hárlokkunum sem nú liggja í
valnum.
Klippingar hafnar fyrir Eastwood-myndina
JÓEL SÆMUNDSSON Er nokkuð ánægður með nýju hermannaklippinguna og ætlar að
láta hana duga yfir Þjóðhátíð.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Hálfum milljarði.
Á Vaði í Skriðdal.
Kanada.
„Í skólanum var lögð áhersla á
listrænt gildi kvikmyndaformsins
og okkur sagt að allt kvikmynda-
tungumálið hefði verið fundið upp
fyrir 1930,“ segir Dögg Móses-
dóttir, sem er nýútskrifuð úr
Cecc-kvikmyndaskólanum í
Barcelona og fór með sigur af
hólmi í stuttmyndasamkeppni
sem var haldin á vegum skólans í
vor. „Verðlaunin eru að fá að taka
upp stuttmynd á filmu og ég hef
verið að undirbúa þá stuttmynd í
fimm mánuði,“ segir Dögg en
myndina byggir hún á sögu afa
síns. „Þetta er saga manns sem er
haldinn alzheimer-sjúkdómnum
og er því aðallega byggð á minn-
ingum.“
Dögg fer aftur til Barcelona í
haust og hefst þá handa við tökur á
myndinni. „Í staðinn fyrir að aðal-
sögupersónan búi á Vestfjörðum
eins og afi minn býr þessi gamli
maður í Pýreneafjöllum. Ég kem
utan af landi og þekki því lítið til
kvikmyndabransans í Reykjavík.
En eftir þriggja ára nám í
Barcelona er ég með gott fólk á
bak við mig og við hjálpumst að
við að koma okkur áfram,“ segir
Dögg en hún og vinur hennar hafa
stofnað framleiðslufyrirtækið
farfilms.com þar sem hugmyndin
er að framleiðendur geti leitað eft-
ir kvikmyndagerðarfólki til starfa.
„Við tökum að okkur alls kyns
verkefni, heimildarmyndagerð,
auglýsingar og fleira,“ segir Dögg
en hún á sjálf að baki heimildar-
myndina Sodade. „Ég gerði mynd
um frænku mína sem var ættleidd
til Íslands tveggja ára gömul frá
Grænhöfðaeyjum. Hún ólst upp á
Grundarfirði og þegar við vorum
litlar stelpur létum við okkur
dreyma um að fara til Grænhöfða-
eyja. Þegar hún komst svo í sam-
band við blóðmóður sína styrkti
Grundarfjörður okkur til fararinn-
ar og ég keypti mér ódýra mynda-
vél til að fylgjast með frænku
minni.“
Dögg hefur líka komið að tón-
listarmyndbandagerð og meðal
annars leikstýrt myndböndum
hljómsveitarinnar Úlpu en mynd-
band við lagið Attempted Flight
er nú í spilun á Popptíví. „Áður en
við hófum að tjá okkur með tónlist
og tali í skólanum fengum við það
verkefni að búa til hljóðlausar
myndir. Þetta var gert til að þjálfa
okkur í notkun á myndmálinu og
hentaði mér vel þar sem ég ætlaði
upphaflega að gerast myndlistar-
kona. Hljómsveitarmeðlimir Úlpu
hrifust af þessum myndum og það
varð svo úr að tvö þeirra breytt-
ust í tónlistarmyndbönd.“
thora@frettabladid.is
DÖGG MÓSESDÓTTIR Kvikmyndar nú stuttmynd á Barcelona sem byggist á sögu afa
hennar á Vestfjörðum.
DÖGG MÓSESDÓTTIR: UNG KVIKMYNDAGERÐARKONA Í BARCELONA
Vann stuttmyndasamkeppni
FRÉTTIR AF FÓLKI
... fá Gunnlaugur Egilsson og
Tilman O’Donnell fyrir að auðga
dansflóruna á Íslandi með sýn-
ingu hér á landi.
HRÓSIÐ
REYKJAVÍKURNÆTUR > HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST ENGINN VERA VERRI ÞÓTT HANN PIPRI
Var að spjalla við vinnufélaga um hegðunarmynstur
fólks þegar kemur að samböndum og leitinni að mak-
anum. Við töluðum meðal annars um hluti eins og
fólk sem á of auðvelt með að festa sig í samböndum
og er oftar en ekki óánægt með hlutina í lengri tíma
áður en það aðhefst. Þó sagði hún mér frá einni vin-
konu sinni sem er alveg á hinn veginn og sættir sig
ekki við hina minnstu galla. Það fyndna er að þessi
kona er farin að nálgast sextugsaldurinn og er enn í
fullu fjöri við að njóta þess að komast í kynni við
spennandi menn, upplifa hnútinn í maganum og byrja
sambönd alveg upp á nýtt. Þau eru þó aldrei varanleg.
Innan vinkvennahópsins er hún kölluð „The Runaway
Bride“ og það verður að viðurkennast að hún ber nafn
með rentu!
Hennar skoðun er nefnilega sú að það sé engin
ástæða til að vera í sambandi ef blossinn hefur örlít-
ið dalað. Já, við erum að tala um tímabilið sem allir
þekkja sem „fjórða árið“ eða „The Fearsome Fourth“,
þegar við þurfum að ákveða hvort við ætlum að
duga eða drepast. Þá sér hún enga ástæðu til að
halda áfram að vera í sambandinu því þá er farið að
þurfa að hafa fyrir hlutunum, hún stingur því af
blákalt og skilur aumingja mennina eftir í sárum sín-
um. Hún er búin að vera í tilhugalífinu frá 15 ára
aldri og hjá henni er hver dagur hveitibrauðsdagur!
Manni finnst nú pínu fyndið að heyra af konu á þess-
um aldri sem hefur alls engar áhyggjur af því að vera
einmana í ellinni og er greinilega sjálfri sér nóg. Það
er einhvern veginn ekki alveg eins og gengur og ger-
ist!
Ég er ekki alveg viss um hvort ég á að dást að þessari
konu eða ekki. Veit ekki hvort það er betra að vera
bara ánægð með að vera maður sjálfur og skemmta
sér eða hvort maður yrði aldrei sáttur með að hafa
ekki tekist að búa til neitt alvöru og „konkret“. Það fer
náttúrlega eftir því hvernig fólk er gert og hvaða kröfur
það gerir til sjálfs sín og félaga sinna.
Auðvitað er spennandi og
nauðsynlegt að prófa reglu-
lega eitthvað nýtt en það er
líka mjög fullnægjandi þegar
maður hefur byggt upp
eitthvað gegnheilt, vext-
irnir í gleðibankanum
eru svimandi háir og
erfiðið farið að
borga sig.
Eins og alltaf vil
ég meina að
hinn gullni
meðalvegur sé
málið. Ég held að
okkar yngri ár séu
tilvalin til að
kanna og hin
seinni til að kunna!
Strokubrú›urinF
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Lárétt: 2tafl,6ah,8tau,9sól,11ll,12
stika,14etýða,16öl,17rif, 18rim,20ra,
21iður.
Lóðrétt: 1hass,3at,4falaðir, 5lll,7hót-
elið,10lit,13kýr, 15afar, 16öri,19mu. Þ
að virðist vera að
létta til hjá stuð-
hljómsveit allra lands-
manna, Stuðmönn-
um. Síðustu
mánuðir hafa
verið storma-
samir hjá
sveitinni. Fyrst
hætti Ragga
Gísla og eftir
mikinn
þankagang
var ákveðið
að Idol-stjarn-
an Hildur Vala
yrði næsta Ragga. Svo fóru Þórður
og Egill að sparka í hvorn annan á
sviðinu. Nú eru hinsvegar allir orðnir
svo góðir vinir að það var ekki úr
vegi að halda áfram.
Nú berast þær fréttir að hinn eini
sanni, Valgeir Guðjónsson, muni
skemmta með Stuðmönnum á
morgun en sveitin heldur
risatónleika í Fjöl-
skyldu-og húsdýra-
garðinum. Ekki er þó
vitað hvort Valgeir sé
kominn til að vera
eða hvort hann sé
bara í svo miklu Versl-
unarmannahelgarstuði
að hann geti ekki
verið án
gömlu félag-
anna.