Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 5. ágúst,
217. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.47 13.34 22.18
AKUREYRI 4.47 13.34 22.18
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Hrafnhildur Gunnarsdóttir er kvik-
myndakona og formaður samtakanna
78. Hún er mikið fyrir íslenskan fisk
og á stundum myndi hún glöð gefa allt
upp á bátinn til að vera kokkur.
Hrafnhildur er tiltölulega nýflutt heim frá
Kaliforníu og er ánægð yfir því hvernig
matarmenningin á Íslandi hefur breyst á
þeim tíma sem hún bjó erlendis. Þegar
hún velur í matinn verður kjúklingur oft-
ar en ekki fyrir valinu og er á borðum hjá
henni helst einu sinni í viku. „Svo borða ég
líka mikinn fisk. Það er einn staður í bæn-
um þar sem maður getur fengið alveg
rosalega góðan Húsavíkurræktaðan lax,“
segir Hrafnhildur, sem er að tala um
verslunina Gallerý fisk sem er við Nethyl.
„Ég gæti alveg hugsað mér að hætta að
gera allt til að gerast kokkur, þó að ég sé
kannski ekki alveg viss um að það sé jafn
sjarmerandi og þegar maður er bara að
elda fyrir sjálfan sig og lítinn hóp af
fólki,“ segir hún.
Það heyrist vel á því hvernig Hrafn-
hildur talar að hún hefur ástríðu fyrir
mat. „Í matreiðslu þarf maður þolinmæði
og athygli á því sem maður er að gera.
Það er rosalega þægilegt þegar maður er
frá degi til dags í bransa eins og kvik-
myndabransanum - þar sem allt er svo óá-
þreifanlegt - að gera áþreifanlegan hlut
eins og að elda mat sem maður getur
klárað á klukkutíma og allir fara svo bara
heim sælir og glaðir,“ segir Hrafnhildur,
sem er nú um þessar mundir að ljúka við
verkefni sem hún hefur verið að vinna að
í tíu ár. „Matargerðin fullnægir einhverri
grundvallarþörf,“ bætir hún síðan við.
Hún lumar á mörgum góðum uppskrift-
um og getur ekki valið á milli tveggja til að
ljóstra upp. „Ég er með eina einfalda
kjúklingauppskrift og aðra laxuppskrift.
Ég veit ekki alveg hvora ég á að velja,“
segir hún hálfvandræðaleg. Þegar til kem-
ur er hún ekki tilbúin að láta kjúklinga-
réttinn af hendi en uppskrift af laxi með
batenjan be thini eða líbönsku tilbrigði af
eggaldin í tahini er að finna á síðu 6. ■
Matargerð er grundvallarþörf
tilbod@frettabladid.is
Sony Center er með útsölu
um þessar mundir og þar eru
ýmis spennandi tilboð í gangi.
Heimabíó er á 35 prósenta af-
slætti og hágæða breiðtjalds-
sjónvarp sem áður kostaði
159.940 krónur kostar nú að-
eins 99.950 krónur. Stafræn
Sony myndavél sem áður kost-
aði 53.940 krónur er nú á 25
prósenta afslætti og kostar að-
eins tæp 40 þúsund.
Útsalan í Vogue hófst í gær.
Þar má fá góð efni í hvers
konar fatnað á allt að 70 pró-
senta afslætti. Það er því tilval-
ið að birgja sig upp af
skemmtilegri vefnaðarvöru
og setjast við
saumavélina
þegar
dimma fer. Verslanir Vogue eru
tvær, í Reykjavík og á Akureyri,
og gilda tilboðin að sjálfsögðu
á báðum stöðum.
Málningavörur eru á góðu
verði í Múrbúðinni. Þar má fá
allt sem þarf til að mála innan-
dyra eða utan, svo sem máln-
ingu, bakka og pensla. Málning-
in er á góðu verði og kosta 10
lítrar af hágæða útimálningu
aðeins 2.890 krónur. Úrvalið er
mikið og hægt er að fá máln-
ingu í öllum regnbogans litum.
Fartölvur eru á sérstöku til-
boði hjá EJS. Nýjar tölvur
frá Dell eru á góðu verði
og til að mynda kostar
Dell Latitude 110L aðeins
84.900 krónur.
Hrafnhildi Gunnarsdóttur langar stundum að söðla um og gerast kokkur.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Ég er alltaf að
biðja pabba að
syngja af því að það
er svo fyndið þegar
barkakýlið á honum
hoppar og skoppar.
Fartölvur víða á tilboði
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is