Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 6
LÖGREGLUMÁL Skipverjarnir tveir af
togaranum Hauki ÍS sem handtekn-
ir voru í Bremerhaven í byrjun jan-
úar eftir að sjö kíló af kókaíni og
hassi fannst í klefum þeirra eru
lausir allra mála. Þýskur dómstóll
komst að þeirri niðurstöðu að lög-
regla og tollgæsla hefðu ekki haft
dómsúrskurð fyrir leitinni og hefði
hún því verið ólögleg.
Rannsókn málsins hefur verið
hætt í kjölfarið enda hafði lögregla
engin önnur sönnunargögn en efnin
sjálf þar sem mennirnir játuðu
aldrei sök í málinu. Fimmtán ára
fangelsi að lágmarki beið mannanna
tveggja hefðu þýskir dómstólar
komist að sekt þeirra en þess má
geta að annar mannanna er komin á
sextugsaldur, en hinn tæplega fer-
tugur.
Málið vakti talsverða athygli á
sínum tíma enda magn fíkniefnanna
mikið og um það var fjallað í þýsk-
um fjölmiðlum. Togarinn var að
ljúka við að landa karfa í Bremer-
haven þegar fjörutíu manna leitar-
hópur lögreglu og tollayfirvalda
gerði leit í skipinu. Það var á leið til
Íslands og gerði lögregla ráð fyrir
að smygla ætti efnunum hingað til
lands til dreifingar. Sem fyrr segir
fannst umtalsvert magn fíkniefna í
klefum tveggja skipverja við leitina
í skipinu og voru þeir hnepptir í sex
mánaða varðhald í kjölfarið. Öðrum
skipverjum var hins vegar leyft að
sigla skipinu til Íslands.
Tvímenningunum var sleppt úr
haldi í maí, þrátt fyrir að hafa verið
úrskurðaðir í sex mánaða gæslu-
varðhald, og fengu að fara úr landi.
Á þeim tíma furðaði Ásgeir Karls-
son, yfirmaður fíkniefnalögregl-
unnar í Reykjavík, sig á stöðu mála,
þar sem menn eru alla jafna ekki
látnir lausir eftir að hafa verið
teknir með svona mikið magn fíkni-
efna. Til stóð að óska aðstoðar lög-
reglu hérlendis vegna málsins, þar
sem grunur lék á að mennirnir ættu
sér vitorðsmenn á Íslandi, en til
þess kom ekki.
albert@frettabladid.is
6 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Júlíus Vífill Ingvarsson lýsir yfir framboði:
Stefnir á eitt af efstu sætunum
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR Júlíus
Vífill Ingvarsson lýsti í gær yfir
framboði í eitt af efstu sætunum á
lista Sjálfstæðisflokksins í próf-
kjöri fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar. Hann segir Reykjavík
hafa orðið undir í samkeppni við
nágrannasveitarfélögin. „Þeirri
þróun þarf að snúa við. Ég vil
beita mér fyrir því að Reykjavík
verði fyrirmynd annarra sveitar-
félaga og ávallt í forystu.“
Helstu stefnumál Júlíusar eru
þróun íbúalýðræðis í Reykjavík,
fjölgun valkosta í fræðslumálum
og endurskipulagning á rekstri
borgarinnar. „Það er ekki verk-
efni komandi kynslóða að hreinsa
til eftir okkur eða þann slóðaskap
sem R-listinn hefur skilið fjárhag
borgarinnar eftir í.“
Júlíus fór í prófkjör fyrir kosn-
ingarnar árið 1998 og endaði þá í
fjórða sæti, en hætti í borgarmál-
um eftir kjörtímabilið vegna
anna. „Nú hefur fjölskyldufyrir-
tækið verið selt og ég hef betri
kost á því að stjórna mínum tíma
sjálfur eftir þörfum hverjum
sinni.“ - grs
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLASAÐUR SJÓMAÐUR SÓTTUR
Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í
Mýrdal sótti slasaðan sjómann um
borð í fiskiskip skammt undan
landi um ellefuleytið í gærmorgun.
Læknir og sjúkraflutningsmenn
fóru til móts við skipið á báti sem
notaður er til útsýnissiglinga og
var sjómaðurinn fluttur í sjúkrabif-
reið til Reykjavíkur. Hann var út-
skrifaður í lok dagsins.
LEITAÐ Á SJÓ Slysavarnafélagið
Landsbjörg fékk boð frá lögregl-
unni í Reykjavík um að vera í við-
bragðsstöðu á miðnætti aðfaranótt
fimmtudags vegna manns sem var
saknað. Maðurinn hafði farið út á
bát frá Seltjarnarnesi snemma á
miðvikudagskvöld og bíll hans og
kerra fundust í landi, sem benti til
þess að maðurinn væri enn á sjó
þegar liðið var á nóttina. Nokkrir
björgunarbátar hófu leit en um
hálftvöleytið fannst hann heill á
húfi heima hjá sér. Hann hafði þá
verið sóttur á öðrum bíl.
Hringróðurinn heldur áfram:
Lenti í vanda
í briminu
ÁHEITARÓÐUR Kjartan Jakob Hauks-
son ræðari varð fyrir smávægileg-
um skakkaföllum þegar hann fór út
úr briminu við Ingólfshöfða þaðan
sem hann ýtti
úr vör á ellefta
tímanum í
gærmorgun.
Kjartan var
fyrir utan
S k a f t a f e l l s -
fjöru þegar
b l a ð a m a ð u r
Fréttablaðsins
náði tali af hon-
um í gær-
kveldi. Hann sagði festingu fyrir
sleða í sæti hafa brotnað í briminu
en kvað bráðabirgðaviðgerð þó
halda öllu í sínu horfi. Kjartan
Jakob stefnir að því að ná landi í Vík
um hádegisbil í dag en þá hefur
hann róið í rúman sólarhring. - jse
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Hótel Selandia
15.-17. okt., 12.-14. nóv., 14.-16. jan., 28.-30. jan. og 4.-6. mars.
Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
www.icelandair.is/kaupmannahofn
Kaupmannahöfn
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
Flug og gisting í tvær nætur
Verð frá 34.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
Ætlarðu að fá þér áskrift að
enska boltanum hjá Skjá einum?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga Íslendingar að kaupa
Tívolí næst?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
87%
13%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON
Júlíus vill meðal annars að rekstur einka-
skóla verði gerður hagkvæmari.
KJARTAN JAKOB Kjart-
an varð fyrir smá
skakkaföllum þegar ýtt
var úr vör í gær.
Yfirmaður ÁTVR:
Ívar skipa›ur
forstjóri
RÁÐNING Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra hefur skipað Ívar J. Arn-
dal í embætti forstjóra ÁTVR frá
næstu mánaðamótum. Ívar var
aðstoðarforstjóri fyrirtækisins
frá árinu 2000 og var settur for-
stjóri í eitt ár, frá 2003 til 2004.
Ívar er vélaverkfræðingur og
hefur meistaragráðu í opinberri
stjórnsýslu auk þess að hafa sótt
nám í viðskipta- og rekstrarhag-
fræði.
Ellefu sóttu um stöðuna en
Höskuldur Jóhannesson núver-
andi forstjóri lætur af störfum 1.
september næstkomandi.
- rsg
Tveir íslenskir skipverjar á Hauki ÍS, sem handteknir voru í Bremerhaven í fi‡ska-
landi í byrjun ársins me› miki› magn fíkniefna í káetum sínum, eru lausir allra
mála eftir a› fl‡skur dómstóll úrskur›a›i a› leit lögreglu hef›i veri› ólögleg.
Lausir allra mála flar
sem leitin var ólögleg
HAUKUR ÍS 847 Fundur þýsku lögreglunnar á sjö kílóum af kókaíni og hassi sem ætlað var til dreifingar á Íslandi dugði ekki til sakfelling-
ar ytra þar sem leitin í klefum mannanna var ekki gerð með löglegum hætti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KÍNA Kínverjar hafa fyrirskipað
að strangara eftirlit verði á slátr-
un á svínum og sölu á svínakjöti, í
von um að stemma stigu við út-
breiðslu sjúkdóms sem berst með
svínakjöti. Þegar hafa 38 látist af
völdum sjúkdómsins.
Nokkrum opinberum embætt-
ismönnum var vikið úr starfi í
gær fyrir að hafa heimilað flutn-
ing á sýktu kjöti. Ef embættis-
menn og bændur brjóta gegn nýju
reglunum verður þeim refsað
stórlega samkvæmt lögum, að því
er fram kemur í frétt AP-frétta-
stofunnar.
Heilbrigðisráðuneytið í Kína
skýrði frá því að staðfest væru
206 tilvik smits í Sichuan-héraði.
- sda
Kínversk stjórnvöld herða reglur um slátrun svína og sölu svínakjöts:
Reynt a› hamla útbrei›slu sjúkdóms
VÍN Í STÍU Kínversk stjórnvöld hafa látið gera fleiri þúsund tonna af svínakjöti upptæk á
svæðum þar sem sjúkdóms sem breiðist út með svínakjöti hefur orðið vart.