Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 57
FÖSTUDAGUR 5. ágúst 2005 37
FRÉTTIR AF FÓLKI
HLJÓÐFÆRANÁMSKEIÐ
Bassanámskeið
Gítarnámskeið fyrir leikskólakennara og foreldra
Innskráning í haustönn Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna er hafin.
Námskeiðin sem haldin eru í skólanum eru um margt frábrugðin
öðru tónlistarnámi, þar sem námsskráin miðar út frá því að miðla
þekkingu um tónlistarbransann. Áhersla er lögð á hljóðversvinnu og
miðlun gagnlegra upplýsinga sem nýtist þeim sem vilja starfa við
tónlist í framtíðinni. Leiðbeinendur við skólann eru allt valinkunnir
fagmenn úr íslensku tónlistarflórunni.
Trommunámskeið
Lengra komnir gítarleikarar
Reykjavík Music Productions • Kringlan 7 • 103 Reykjavík • Iceland • Tel.: +354 534-9090 • Fax +354 534-9091 • info@reykjavikMP.com • www.reykjavikMP.com
Einn umsetnasti stúdíóbassaleikari þjóðarinnar,
Róbert Þórhallsson, sér um bassanámskeiðin fyrir TÞB.
Þetta eru 10 vikna námskeið þar sem farið er í öll
lykilatriði bassaleiks. Lögð er áhersla á bassaleik í
hljóðveri, samspil og bassaleik í mismunandi
stílbrigðum popptónlistar. Námskeiðinu lýkur með
upptökum í hljóðveri Reykjavik Music Productions.
Ólafur Hólm, trommuleikari Todmobile, Ný Danskrar
og Dúndurfrétta er sérlegur trommukennari TÞB.
Hann mun miðla reynslu sinni og hæfni á tíu vikna
námskeiði. Allir grunnþættir trommuleiks eru á
dagskránni á þessu námskeiði og er sérstaklega farið
inn á trommuleik í hljóðveri. Námskeiðið endar með
upptökum í hljóðveri Reykjavik Music Productions.
Lengd námskeiðs: 10 vikur.
(1 tími í viku. 2 einkatímar og 8 hóptímar)
Aldur: 14 ára og eldri.
Verð: Kr 46.000. kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Lengd námskeiðs: 10 vikur.
(1 tími í viku. 2 einkatímar og 8 hóptímar)
Aldur: 14 ára og eldri.
Verð: Kr 46.000. kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Langar þig að læra á gítar? Viltu vera stjarnan í partýinu
eða geta spilað lag fyrir ástina þína? Langar þig kannski
bara að koma þér af stað og stofna í kjölfarið rokkhljóms-
veit? Einhversstaðar verða menn að byrja og þetta
námskeið er kjörinn byrjunarreitur. Kennt verður í 5-10
manna hópum sem verður raðað niður eftir stöðu hvers
og eins. Að námskeiði loknu er markmiðið að nemendur
kunni öll helstu undirstöðuatriði gítarleiks.
Lengd námskeiðs: 12 vikur
(10 hóptímar og 2 einkatímar)
Kennarar: Vignir Snær Vigfússon (Írafár) og Gunnar Þór Jónsson (Sól Dögg)
Aldur: Fyrir alla aldurshópa
Verð: 38.800 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Í hóp fyrir lengra komna verur fari í nokkur þekktustu
lög rokksögunnar, kenndar upphafslínur og þekkt
sóló úr lögum flytjenda á borð við Metallica,
Led Zeppelin, Linkin´ Park og Nirvana. Uppbygging
gítarsólóa og notkun skala er kennd í bland við
skemmtileg gítar-"trix". Farið verður í mismunandi
“karakter”-tegundir gítara og gítarmagnara og
notkun þeirra í hljóðverum.
Lengd námskeiðs: 12 vikur
(10 hóptímar og 2 einkatímar)
Kennarar: Vignir Snær Vigfússon (Írafár)
og Gunnar Þór Jónsson (Sól Dögg)
Aldur: Fyrir alla aldurshópa
Verð: 38.800 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Gítarnámskeið fyrir leikskólakennara og foreldra þar sem
farið verður yfir grunnatriði gítarleiks. Eftir 12 vikna námskeið
er markmiðið að þáttakendur kunni öll helstu gítargripin og
þar að auki mörg helstu barna- og vísnalög sem þekkt eru
á meðal íslensku þjóðarinnar.
Lengd námskeiðs: 12 vikur
(10 hóptímar og 2 einkatímar)
Kennarar: Vignir Snær Vigfússon (Írafár) og Gunnar Þór Jónsson (Sól Dögg)
Verð: 42.800 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Gítarnámskeið fyrir byrjendur
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIN FER FRAM Á
WWW.TONVINNSLUSKOLI.IS
OG Í SÍMA 534 9090
Nú stendur til að gera heimildar-mynd um hina gríðarlega vinsælu
þætti Vini. Allir „vinirnir“ munu taka
þátt í gerð myndarinnar nema Jenni-
fer Aniston, sem hætti við á
síðustu stundu. Ástæða þess
liggur ekki fyrir en tvær skýr-
ingar þykja líklegastar, ann-
ars vegar sú að hún sé
enn miður sín eftir skiln-
aðinn við Brad Pitt og
hins vegar að hún vilji
hrista af sér ímynd
Vina-karaktersins
Rachel Green
fyrir fullt og allt.
Kate Hudson er ekki að stressa sigof mikið á lífinu. Hún sagði ný-
lega í viðtali að þó hún vildi
auðvitað frekar að eigin-
maður hennar, Chris
Robinson, yrði henni trúr
þá skildi hún vel að krafa
um einkvæni væri ekki
alltaf raunhæf. „Ef, af ein-
hverjum ástæðum, hon-
um finnst hann þurfa eitt-
hvað annað, þá vil ég ein-
faldlega ekki vita af því,“
sagði hún. „Láttu mig
bara ekki góma þig.“
Michael Jackson og fyrrverandieiginkona hans Debbie Rowe
eru við það að ná samkomulagi um
skiptingu forræðis yfir börnum sínum.
Árið 2001 skrifaði Rowe undir samn-
ing þar sem hún afsalaði forræði sínu
algjörlega en þrem-
ur árum síðar sner-
ist henni hugur og
dómari ógilti
samninginn. Und-
anfarið ár hafa
Michael og
Debbie því reynt að
komast að niður-
stöðu sem bæði
gætu sætt sig við og lausnin er nú
loksins í sjónmáli. Debbie stóð sem
klettur við hlið Michaels í réttarhöld-
unum yfir honum fyrr á þessu ári og
nokkuð hlýtt er milli hjónanna fyrr-
verandi. „Lausn málsins mun vera
fullnægjandi fyrir báða aðila,“ sagði
Michael Abrams, lögfræðingur
Jacksons.
Lisa Kudrow hefur nú snúið séraftur að sjónvarpinu og leikur að-
alhlutverkið í grínþáttunum The
Comeback. Þar bregður hún sér í
hlutverk leikkonunnar Valerie Cher-
ish, sem er fölnandi sjónvarpsstjarna
að reyna að endurlífga
feril sinn. Gárungar
vestra hafa haft á orði
að hún þurfi nú ekki
að leita langt yfir
skammt að innblæstri
þar sem hún sjálf sé
fölnandi sjónvarps-
stjarna, en hún
þykir engu að síður
standa sig feikna-
vel í hlutverkinu.
Britney Spears vill skíra ófættbarn sitt Charlie eftir aðalper-
sónu bókarinnar Charlie and the
Chocolate Factory. Nýverið var gerð
kvikmynd eftir sögunni þar sem
Johnny Depp leikur aðalhlutverkið
en Britney var ein af þeim stjörnum
sem boðið var á frumsýninguna.
„Þetta væri frábært nafn fyrir stelpu
eða strák og ég vil fá mér húðflúr
með nafninu til að fanga
augnablikið að eilífu,“
sagði poppskvísan. Kevin
Federline, eignmaður
Britneyjar, er ekki jafn
spenntur fyrir nafninu
og vill heldur að barn-
ið heiti Kevin verði
það drengur.
Ég og hinn slóvakíski Michael sát-
um tveir einir á fyrsta farrými á
leiðinni til Davos. Hann er rithöf-
undur og á víst að vera þekktur í
sínu heimalandi. Hann er mikill að-
dáandi GusGus. Ég hélt að hann
væri samkynhneigður en svo var
víst ekki. „Það sem ég geri í mínu
svefnherbergi kemur engum við,“
sagði hann þegar ég baðst afsökun-
ar á þessum misskilningi. „Allt í
góðu, þú ert ekki sá fyrsti.“ Hann
er að skrifa bók um náunga sem er
internetklámfíkill og ferðast um
Evrópu til þess að losna frá því.
Ferðin frá Schaan til Davos er
með þeim fallegri sem ég hef farið.
Hægt og bítandi fórum við upp í
fimmtán hundruð metra hæð.
Davos er staðurinn þar sem ríka
fólkið fer á skíði, hér hittast stjórn-
málamenn og G8-þjóðirnar voru
víst með fund hérna líka. Þegar ég
sté af lestinni mætti mér svo ferskt
fjallaloft að ekki einu sinni bílarn-
ir gátu eyðilagt það.
Gærkvöldið var ansi skraut-
legt. Ráðstefnugestirnir
höfðu víst haldið vöku fyrir
fólkinu á gistiheimilinu í nokk-
uð langan tíma og eigand-
inn hafði fengið nóg.
Það yrði ekkert
áfengi selt um
kvöldið. Ráðstefnu-
gestirnir létu það
þó ekki á sig fá heldur gengu í hálf-
tíma til höfuðborgarinnar Vaduz.
Ég hitti þá á litlum bar og ræddi
við hollenska lesbíu um stelpu sem
var að vinna á barnum. Við
komumst að því að sú ágæta stelpa
væri ekki okkar týpa. „Hún er
ekki með rass,“ sagði hún og
ég kinkaði kolli henni til sam-
þykkis.
Rómantíkin blómstraði í
hverju horni en ekkert bólaði á
símtali frá austurrísku stelp-
unni. Kannski myndi eittt-
hvað gerast í alpaþorpinu
Davos, sem var eins og
klippt út úr James Bond-
mynd.
REISUBÓKARBROT
FREYR GÍGJA BLAÐAMAÐUR ER Á LEIÐ Á RÁÐSTEFNU UM RÉTTINDABARÁTTU UNGS SAMKYNHNEIGÐS FÓLKS Í EVRÓPU.
Fallegasta fjallalei›in Uppselt er í stúku á tónleikasöngvarans Joe Cocker í Laug-
ardalshöll hinn 1. september.
Cocker hefur verið einn vinsæl-
asti söngvari heims síðan hann
sló í gegn á Woodstock árið 1969
og á ófáa sígilda slagara.
Cocker er í tónleikaferð til að
fylgja eftir nýjustu plötu sinni,
Heart & Soul, þar sem hann flyt-
ur hin ýmsu lög á sinni einstæða
hátt. Á meðal laga á plötunni eru
One eftir U2, Everybody Hurts
eftir R.E.M. og Jealous Guy
eftir John Lennon.
Miðasalan á tónleikana fer
fram í verslunum Skífunnar, BT
á Akureyri og Selfossi, Pennan-
um Akranesi og á
www.concert.is. Miðaverð er
5.500 krónur. ■
JOE COCKER Tónleikar kappans í Laugar-
dalshöll verða fyrsta september.
Uppselt í stúku