Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 46
Á hverju ári er fórnarlamba
kjarnorkusprenginganna í Hiro-
shima og Nagasaki 6. og 9. ágúst
árið 1945 minnst með því að fleyta
kertum á Reykjavíkurtjörn. Í dag
eru tuttugu ár frá fyrstu
kertafleytingunni. „Við hjá Sam-
tökum herstöðvaandstæðinga
fengum bréf frá Japan með
tveimur kertum þar sem þeir
báðu okkur um að fleyta kertum á
vatni í minningu fórnar-
lambanna,“ segir Ingibjörg Har-
aldsdóttir, sem var ein þeirra sem
skipulögðu athöfnina árið 1985.
„Þetta er á þeim tíma þegar kjarn-
orkuvopnakapphlaupið er á fullu.
Verið að setja upp kjarnaflaugar í
Evrópu og ráðagerðir um að setja
kjarnorkuvopn um borð í skip og
kafbáta. Friðarhreyfingar um all-
an heim voru þá mjög virkar í
baráttu gegn þessum kjarnorku-
áætlunum,“ segir Ingibjörg og
bætir við að á sama tíma hafi
menn fengið aðgang að skjölum
frá Japan og kvikmyndum sem
teknar voru í Hiroshima og Naga-
saki og höfðu verið hernaðar-
l e y n d a r m á l
fram að því.
„Þetta var í
rauninni hluti af
a l þ j ó ð l e g r i
vakningu gegn
kjarnorkuvopn-
um,“ segir Ingi-
björg en sam-
tökin létu útbúa
um 300 kerti til
að fleyta á tjörn-
inni. Hún segir
það hafa komið á óvart hve marg-
ir mættu á staðinn. „Kertin voru
rifin út og þau kláruðust öll,“
segir Ingibjörg en samstarfshóp-
ur friðarhreyfinga hefur staðið að
kertafleytingunum frá 1986.
Þó að sprengingin í Hiroshima
hafi orðið hinn 6. ágúst var ákveð-
ið að halda minningarathöfnina að
kvöldi þess fimmta enda væri þá
morgunn í Hiroshima. Athöfnin
markaði upphaf friðarviku árið
1985 sem endaði með Keflavíkur-
göngu.
Ávallt hefur verið góð mæting
á kertafleytinguna. „Það koma
þarna allir aldurshópar, bæði börn
og gamalmenni. Það myndast
mjög sérstök stemning því fólk
upplifir þetta sem einhvers konar
framlag eða yfirlýsingu um af-
stöðu sína,“ segir Ingibjörg, sem
telur tilgang athafnarinnar tví-
þættan. Annars vegar að minnast
hörmunganna í Japan og hins
vegar sem hluta af almennum
friðarhugmyndum.
Í ár fer kertafleytingin fram
klukkan 22.30 þriðjudagskvöldið
9. ágúst bæði í Reykjavík og á
Akureyri.
Klukkan hálf níu fyrir
kertafleytinguna er efnt til sam-
komu í Tjarnarsal Ráðhússins í
Reykjavík þar sem sænski rithöf-
undurinn og fræðikonan Monica
Braw heldur erindi um kjarnorku-
árásirnar og áhrif þeirra á jap-
anskt og bandarískt þjóðfélag.
Guðmundur Georgsson læknir
flytur ávarp, en hann heimsótti
Hiroshima og Nagasaki og kynnti
sér afleiðingar sprengjunnar
fyrir tveimur áratugum. ■
26 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
MARILYN MONROE (1926-1962)
lést þennan dag.
Óskin barst frá Japönum
KERTUM FLEYTT Á REYKJAVÍKURTJÖRN Í FYRSTA SINN FYRIR 20 ÁRUM
„Hollywood er staður þar sem þér eru borgaðir þús-
und dollarar fyrir koss en fimmtíu sent fyrir sál þína.“
- Marilyn Monroe var bandarísk leikkona og
eitt mesta kyntákn tuttugustu aldar.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Þorsteinn Óskar Guðlaugsson, bóndi
og bifreiðastjóri, Ölvaldsstöðum 4, Borg-
arbyggð, lést fimmtudaginn 28. júlí.
Steinþór Jensen, kaupmaður, Norður-
byggð 16, Akureyri, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
31. júlí.
JAR‹ARFARIR
13.00 Bergur Sigurbjörnsson, Háalundi
6, Akureyri, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
13.00 Elsa Kristín Guðlaugsdóttir, frá
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg.
13.00 Guðbjörg Þórðardóttir, kennari,
Granaskjóli 23, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Neskirkju.
13.00 Margrét Björnsdóttir, Hlíðarhús-
um 3, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Grafarvogskirkju.
13.00 Matthías Andrésson, útskurðar-
kennari og fyrrverandi tollvörður,
Lækjasmára 6, Kópavogi, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju.
13.30 Ingimar Kr. Skjóldal, Skálateigi 1,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Vilhjálmur Heiðar Snorrason, Ís-
hússtíg 5, Keflavík, verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Jakob Nikulásson verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
KERTUM FLEYTT Í FYRSTA SINN Fjöldi fólks lagði leið sína að Reykjavíkurtjörn árið 1985 til að minnast fórnarlamba í Hiroshima og
Nagasaki 40 árum fyrr.
Tuttugu og tveir félagar í IRA voru
þennan dag árið 1983 dæmdir í
samtals fjögur þúsund ára fangelsi í
einum umfangsmestu réttarhöldum
sem haldin hafa verið í Norður-Ír-
landi hvað varðar fjölda sakborn-
inga. Fjórir hinna ákærðu hlutu lífs-
tíðardóm en alls voru 38 ákærðir.
Kevin Malgrew, sem var ákærður fyr-
ir flest atriði, 84 talsins, hlaut 963
ára fangelsisdóm. Kallaði dómarinn
hann miskunnarlausan hryðjuverka-
mann og ófæran um iðrun.
Flestir IRA-félaganna voru dæmdir
eftir upplýsingum frá uppljóstrara
sem kallaður var „supergrass“,
Christopher Black. Hann hlaut frið-
helgi fyrir vikið. Dómarinn klæddist
skotheldu vesti öll réttarhöldin og
eins og allir dómarar í slíkum mál-
um naut hann lögregluverndar það
sem eftir var lífsins.
Dómarinn sýndi þó vægð í nokkrum
tilvika. Hann sleppti þrettán lausum
og póstburðarmaðurinn Francis
Murphy fékk skilorðsbundinn dóm
fyrir að lána IRA-félaga búning sinn
til að sá gæti framið morð. Móðir
Murphys var sýknuð fyrir að brenna
síðar búninginn. „Margar mæður
hefðu gert slíkt hið sama,“ sagði
dómarinn.
Árið 1986 fengu átján af þeim sem
dæmdir voru dóm sinn ógiltan.
5. ÁGÚST 1983
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1873 Rúmlega 150 Íslendingar
leggja af stað til Vesturheims
frá Akureyri með skipinu
Queen.
1874 Þjóðhátíð hefst á Þingvöllum
í tilefni af 1000 ára afmæli Ís-
landsbyggðar. Kristján IX
Danakonungur er viðstaddur.
1875 Bólu-Hjálmar andast í beitar-
húsum frá Brekku.
1914 Fyrstu umferðarljósin eru sett
upp í Bandaríkjunum.
1963 Bretar, Bandaríkjamenn og
Sovétmenn undirrita sam-
komulag um bann við kjarn-
orkutilraunum.
2000 Guðrún Arnardóttir setur Ís-
landsmet í 400 metra grind-
arhlaupi á móti í London.
Dæmdir í fangelsi í 4.000 ár
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna and-
láts móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
Sigurbjargar Helgadóttur
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir Gunnar Berg
Helga Pálína Brynjólfsdóttir Jón Gauti Jónsson
Sigrún Helga Guðjónsdóttir
Brynjólfur Sveinn Birgisson, Silja Bára Ómarsdóttir, Brynjólfur
Ómarsson, Brynjólfur Sveinsson, Sandra Hrönn Sveinsdóttir, Birkir
Guðjón Sveinsson og langömmubörn.
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
Matthías Andrésson
útskurðarkennari og fyrrverandi tollvörður,
Lækjarsmára 6, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 5. ágúst kl.
13.00.
Kristín Eggertsdóttir
Ásrún Matthíasdóttir Jón Friðrik Sigurðsson
Marta Matthíasdóttir
Eggert Matthíasson Nanna Pálsdóttir
Þórhallur Matthíasson Elsa María Davíðsdóttir
og barnabörn
www.steinsmidjan.is
AFMÆLI
Páll Sigurjónsson, stjórn-
arformaður og fyrrverandi
forstjóri Ístaks, er 74 ára.
Ingimar Einarsson,
Fífusundi á Hvanneyri, er
70 ára í dag. Hann verður
að heiman.
Rósa Ingólfsdóttir, fyrrver-
andi þula, er 58 ára.
Óðinn Jónsson fréttamað-
ur er 47 ára.
Jóakim Reynisson
kvikmyndagerðarmaður er
44 ára.
Björn Ingi Hrafnsson,
aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, er 32 ára.
Sverrir Þór Sverrisson
(Sveppi) er 28 ára.
INGIBJÖRG
HARALDSDÓTTIR
SÉRSTÖK STEMNING Allir aldurshópar mæta á hverju ári til að fleyta kertum á Tjörninni.