Fréttablaðið - 08.08.2005, Qupperneq 12
Fimm aldra›ir slasast dag hvern
Fimm aldraðir slasast dag hvern og
verða eldri borgarar oftar fyrir
slysum en aðrir hópar fullorðinna.
Einkum er öldruðum hætt við að
verða fyrir slysum á heimilum sín-
um og í frítíma.
„Við töldum ástæðu til þess að
fara sérstaklega ofan í saumana á
slysum aldraðra, sér í lagi vegna
þess að hægt er að beita forvörnum
til þess að koma í veg mörg
slysanna,“ segir Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir en Land-
læknisembættið gerði á dögunum
úttekt á orsökum og eðli slysa aldr-
aðra árið 2003.
Komið í veg fyrir slys
Fall er algengasta orsök slysa aldr-
aðra og varð yfirgnæfandi meiri-
hluti þeirra á eða við heimili þess
aldraða að því er fram kemur í út-
tekt Landlæknis.
Hægt er þó að búa þannig um
hnútana að minni líkur séu á því að
fólk detti heima hjá sér að sögn
Matthíasar. „Gamla fólkið þarf eitt-
hvað til þess að halda sér í, forðast
sleipar mottur auk þess að vera
með gleraugun sín,“ segir Matthías.
„Góð lýsing hjálpar einnig mikið
til.“
Slysum vegna falla aldraðra má
í um helmingi tilfella rekja til ytri
þátta. Má þar nefna hál gólf, lélega
lýsingu og lausar mottur.
Sjúkdómar valda hættu
Hinn helming falla aldraðra má
aftur á móti rekja til einstaklings-
bundnari þátta að því er gögn Land-
læknis gefa til kynna. Vandamál í
neðri útlimum, erfiðleikar við
göngu, áhrif lyfja og bráðir sjúk-
dómar eru þeirra á meðal.
Sumir sjúkdómar og lyf valda
svima að sögn Matthíasar. Samfara
því eykst hættan á því að gamalt
fólk detti og slasi sig jafnvel. „Blóð-
þrýstingslyf eru meðal þeirra lyfja
sem valda svima, sérstaklega ef
staðið er snöggt upp,“ segir Matthí-
as. Þá hafi öldrunarlæknar bent á
að aldraðir hérlendis noti meira af
svefnlyfjum en þekkist víðast hvar
annars staðar.
Konur slasast frekar
Eldri konur slasast frekar en jafn-
aldrar þeirra úr hópi karla og má
það rekja til þess að þær eru oft
virkari á heimilinu að sögn Matthí-
asar. „Konur eru oft að hengja upp
gardínur og annað slíkt,“ segir
Matthías. „Það gerar karlar síður,
einkum af þessari kynslóð.“ Matthí-
as bendir á að konum sé einnig
hættara við beinbroti vegna bein-
þynningar, sem algengari er meðal
kvenna.
Þróunin snýst þó við í elsta ald-
urshópnum en körlum yfir 95 ára
aldri er hættara við slysum en kon-
um á sama aldri.
Afleiðingar slysa oft alvarlegar
Tæp tuttugu prósent aldraðra sem
koma á slysadeild eru í kjölfarið
lögð inn á sjúkrahús, og er það mun
hærra hlutfall en í öðrum aldurs-
hópum. Beinbrot eru oft ástæða
innlagnar að sögn Matthíasar.
„Beinbrot eru hættulegri en
margir gera sér grein fyrir,“ segir
Matthías og bendir á að dánartíðni
fyrsta árið eftir beinbrot eykst um
tíu til fimmtán prósent miðað við þá
sem ekki brotna. Oft er um mjaðm-
arbrot eða brot á lærlegg að ræða
og getur aðgerð í kjölfarið reynst
eldra fólki hættuleg.
Lengur á sjúkrahúsi
Bein gróa seinna eftir því sem fólk
eldist og gamalt fólk getur því búist
við því að glíma lengur við beinbrot
en þeir sem yngri eru. „Gamalt fólk
þarf því oft að liggja inni alllengi,
einnig vegna þess að margir eru í
þeirri stöðu að geta ekki verið
heima hjá sér þegar eitthvað bjátar
á,“ segir Matthías. „Því er fólki
jafnvel komið fyrir á öldrunar-
stofnunum í kjölfar slysa.“
Landlæknir bendir einnig á að
sálræn áhrif falls séu oft töluverð
og eldra fólk verði oft hrætt við að
detta aftur. Það geti aftur leitt til
þess að fólk hreyfi sig minna og
missi í kjölfarið enn frekar styrk og
þor.
Slysavarnir besta leiðin
Mikill kostnaður fylgir innlögnum
á sjúkrahús vegna meiðsla eins og
mjaðmarbrota, sem algengust eru í
elstu aldurshópunum. Sem dæmi
má nefna að meðalkostnaður vegna
mjaðmarbrotsinnlagnar nemur
tæplega sjö hundruð þúsund krón-
um. Þá er ótalin sú skerðing á lífs-
gæðum sem beinbrot hafa oft í för
með sér fyrir eldra fólk.
Miklum árangri er þó hægt að
ná með einföldum aðgerðum sem
stuðla að því að gera heimilið að ör-
uggari verustað að sögn Matthías-
ar. Það er sérstaklega mikilvægt í
ljósi þess að öldruðum fjölgar sí-
fellt og enn frekari breytinga á ald-
urssamsetningu þjóðarinnar er að
vænta á næstu árum. ■
GUÐMUNDUR SÆVAR GUÐJÓNSSON
Forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
Hér ver›ur
alltaf útger›
ÚTGERÐ Á BÍLDUDAL
SPURT & SVARAÐ
12 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
Aldraðir eiga frekar á hættu að slasa sig en
aðrir hópar fullorðinna. Landlæknir hefur gert
úttekt á orsökum og eðli slysa aldraðra árið
2003 og komst að þeirri niðurstöðu að með
fyrirbyggjandi aðgerðum mætti koma í veg
fyrir mörg slysanna. Það sé einkum mikilvægt
í ljósi þess að slys á borð við beinbrot geti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir lífsgæði hins
aldraða.
Hvar eiga eldri borgarar helst á hættu að
slasa sig?
Tæplega tvö af hverjum þremur slysum verða
á eða við heimili þess aldraða. Slys á umferð-
arsvæðum, í verslunum eða á öðrum þjón-
ustusvæðum, hjúkrunarheimilum og sjúkra-
húsum eru mun færri. Innan veggja heimilis-
ins verða flest slys í svefnherbergi eða stofu,
þar sem flestir eyða hvað mestum tíma.
Næstflest slysanna áttu sér stað í eldhúsi.
Meirihluti aldraðra var á gangi eða hlaupum
þegar slys átti sér stað.
Hverjar eru helstu orsakir áverka?
Algengasta orsök slysa hjá 65 ára og eldri er
einhvers konar fall, en tvö af hverjum þremur
slysum urðu með þeim hætti. Mikill meirihluti
slysanna varð vegna falls á jafnsléttu en nokk-
uð er um að aldraðir falli úr stiga. Eitt prósent
fallslysanna er vegna falls úr meira en eins
metra hæð. Tíðni fallslysa eykst með hækk-
andi aldri.
Tæp sextán prósent slysa urðu hins vegar við
einhvers konar árekstra og er það næstal-
gengasta orsök slysa.
Hver urðu afdrif hinna slösuðu?
Tæplega tuttugu prósent aldraðra sem leituðu
til slysadeildar árið 2003 voru lagðir inn en
aldraðir eru taldir tíu sinnum líklegri til þess
að leggjast inn á sjúkrahús í kjölfar byltu en
börn. Eftir því sem aldurinn færist yfir leggst
stærri hluti þeirra sem slasast inn á sjúkrahús,
með þeirri undantekningu þó að fólk í elsta
aldurshópnum, níutíu ára og eldra, virðist síð-
ur leggjast inn á sjúkrahús en fólk á aldrinum
85 til 89 ára.
Slasast oftast innan veggja heimilisins
FBL-GREINING: SLYS Á ÖLDRUÐUM
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
Algengustu kvenmannsnöfnin
Heimild: Hagstofan
Eldri borgarar ver›a oftar fyrir slysum en a›rir hópar fullor›inna, einkum á heimilum sínum. Yfirleitt
ver›a slysin af völdum falls og eru beinbrot algeng aflei›ing. Hægt er a› koma í veg fyrir mörg slysanna
me› einföldum a›ger›um.
ELDRI KONUM HÆTTARA VIÐ SLYSUM Konur eru oft virkari inni á heimilum sínum
og lenda því oftar í slysum en jafnaldrar þeirra úr hópi karla. Myndin er sviðsett.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
Hvernig á að koma í veg
fyrir slys?
- Bæta aðbúnað á heimili
- Koma fyrir handföngum eða öðru
sem hægt er að halda í
- Festa mottur vel
- Grípa til gleraugna ef með þarf
- Bæta lýsingu
Fyrr í sumar hætti útgerðarfyrirtækið
Bílddælingur ehf. starfsemi sinni en það
er stærsti atvinnuveitandinn á Bíldudal.
Guðmundur Sævar Guðjónsson er for-
seti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
Er útséð með það að útgerð geti þrif-
ist á Bíldudal?
Hér verður alltaf útgerð, það er ósköp
einfalt. Þetta hefur hins vegar gengið
afar brösuglega síðustu ár en ástæðan
er alltaf sú sama og hún er sú að aldrei
hefur verið úr nægum veiðiheimildum
að moða.
Hvert er framhaldið í útgerðarmálum
bæjarins?
Þeir sem stóðu að Bílddælingi eru að
reyna að tryggja betri rekstrarskilyrði.
Við höfum rætt við þingmenn kjör-
dæmisins og mætt miklum skilningi þar
svo nú er Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða að greina rekstur Bílddælings og
að því loknu verður brugðist við með
viðeigandi hætti.
G
U
Ð
R
Ú
N
5
.2
3
9
A
N
N
A
4
.2
6
4
S
IG
R
ÍÐ
U
R
3
.9
0
5
Stafurinn besta
forvörnin
ÖRYGGI „Það hefur reynst mér
best að ganga við staf, hann veitir
góðan stuðning,“ segir Sigmundur
Hansen ellilífeyrisþegi. Sigmund-
ur er tæpra 77 ára og hefur ekki
orðið fyrir slysi á fullorðinsárum
sínum.
Sigmundur segist meðvitaður
um að gæta þess vel að verða ekki
fyrir slysi. „Það er skylda okkar
gömlu mannanna að gæta fóta
okkar,“ segir hann. Sigmundur
kveðst einnig hafa sett upp hand-
rið við kjallaratröppur á heimili
sínu til þess að koma í veg fyrir
slys.
Rannsóknir sýna að flest slys
sem eldri borgarar verða fyrir
eiga sér stað við eða nærri heimili
þeirra. - ht
HELGA TRYGGVADÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
SLYS Á ÖLDRUÐUM