Fréttablaðið - 08.08.2005, Page 64
Innan skamms verður tekinn í notkun
nýr sparkvöllur á Húsavík.
Gervigras um allt land
Margir nýir sparkvellir í þorpum
úti á landi.
Nýir sparkvellir verða bráðlega teknir í
notkun á Húsavík og Hofsósi. Tugir
nýrra gervigrasvalla hafa verið lagðir
síðustu mánuði sem hluti af útbreiðslu-
átaki KSÍ og leggur sambandið til sjálft
gervigrasið.
Framkvæmdir standa yfir á lóð Borgar-
skóla á Húsavík, eftir því sem fram
kemur á fréttavef Húsavíkurbæjar, og
stendur til að tveir sparkvellir líti dags-
ins ljós norðan við skólann. Völlurinn á
að nýtast vel yfir veturinn þar sem snjó-
bræðslulagnir eru undir völlunum sem
einnig verða flóðlýstir.
Á Hofsósi hófust framkvæmdir við
sparkvöll um miðjan maí og er verið að
leggja lokahöld á verkið. Lagningu
gervigrass er lokið en enn á eftir að
helluleggja í kringum völlinn og setja
upp lýsingu, ásamt öðru. Þetta kemur
fram á vefnum skagafjordur.is. Búist er
við að sparkáhugafólk geti reynt völlinn
strax í skólabyrjun.
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
51,9%
Nei
Já
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Ertu á höttunum eftir nýju
húsnæði?
48,1%
Hver
telur þú að þróun
fasteignaverðs verði
næstu mánuði?
„Upp á staðsetningu að gera þá væri
draumurinn að vera í Grjótaþorpinu eða
Þingholtunum,“ segir Gunna Dís þegar
hún er spurð um draumahúsið sitt. „Ég er
rosalega hrifin af gömlu húsunum í mið-
bænum, væri alveg til í að eiga eitt svo-
leiðis, jafnvel kaupa hús og gera það upp
sjálf þannig að það væri allt svona gamalt
og náttúrulegt. Ég sé fyrir mér gamalt hús
á tveimur hæðum með risi og stórum
hvítum gluggum. Svo er alveg nauðsynlegt
að hafa stórar svalir. Það er eiginlega mik-
ilvægast. Ég er alin upp í sveit og þar var
alltaf venjan að sitja úti á kvöldin. Þannig
vil ég hafa það og svalirnar eiga að vera
svona svæði fyrir fjölskylduna til að eiga
góðar stundir saman,“ segir Gunna Dís og
bætir því við að hún væri alveg til í hafa
garð við húsið svo lengi sem hún gæti
fengið einhvern annan til að sjá um hann.
Gunna Dís vill hafa heimilislegt í kringum
sig og er laus við allan glamúr. „Ég vil ekki
hafa allt nýtt og kuldalegt. Það er ekki til
mínimalismi í mér og ég vil sanka að mér
alls konar dóti bæði nýju og gömlu. Ég er
svona „allt mugligt“ manneskja.“
Gunna Dís sér þó ekki fram á að geta
keypt draumahúsið í bráð. „Miðað við
fasteignaverðið hugsa ég að þetta verði
ekki í nánustu framtíð. Þangað til verð ég
að láta mér nægja að leigja kannski bara
íbúð í svona gömlu og góðu húsi,“ segir
Gunna Dís sem er einmitt í húsnæðishug-
leiðingum og sér fram á að flytja út af
stúdentagörðunum með haustinu.
DRAUMAHÚSIÐ MITT GUNNA DÍS ÚTVARPSKONA
Gunna Dís lætur sig dreyma um að eign-
ast gamalt hús í miðbæ Reykjavíkur.
Gamalt hús með stórum svölum
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
16/6-
23/6
8/7-
14/7
130 190
15/7-
21/7
161
22/7-
28/7
153
24/6-
30/6
195
1/7-
7/7
145
Breiðholtslaug er staðsett í Austurbergi 3 í Breiðholtinu og er hluti af
íþróttaaðstöðu nærliggjandi skóla: Fellaskóla, Hólabrekkuskóla og Fjöl-
brautar í Breiðholti. Útilaugin er steinsteypt, 25 metra löng og 1,12 til 1,73
metra djúp. Laugin er alls 312 fermetrar. Við útilaugina eru þrír heitir pott-
ar, þar af einn með nuddi, ein vaðlaug, tvö gufuböð, eitt eimbað, tvö sána,
ein rennibraut og fimm stökkpallar. Innanhússlaugin er einnig steinsteypt
og er 12,5 metra löng. Arkitekt bæði inni- og útilaugar er Guðmundur Þór
Pálsson fyrir Arkhönnun sf. Innilaugin var byggð árið 1977 og endurbætt
árið 1981 en útilaugin var byggð árið 1981.
Forstöðumaður laugarinnar er Gísli Jensson.
BREIÐHOLTSLAUG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N