Fréttablaðið - 08.08.2005, Síða 65
17MÁNUDAGUR 8. ágúst 2005
AF NETINU
Sjónvarpsstöðin Sirkus er alltaf í ólæstri dagskrá. Stöðin er á rásinni þar sem Popp Tíví var áður. Popp Tíví er á annarri rás á Digital Ísland.
Í KVÖLD
Á SIRKUS
FYLGSTU MEÐ!
SEINFELD
KL. 20:00
AMERICAN DAD
KL. 21:00
ÍSLENSKI LISTINN
KL. 21:30
KVÖLDÞÁTTURINN
KL. 22:00
LETTERMAN
KL. 22:45
FRIENDS
KL. 20:30
Kaupum Tívolí líka
Þá eru íslenskir fjárfestar búnir að kaupa Ill-
ums Bolighús líka, og bæta því við safnið
sem þegar samanstendur af Magasin du
Nord, Sterling, Mærsk og fleirum góðum
og gegnum dönskum fyrirtækjum. Danir
eru víst eitthvað uggandi yfir þessari innrás
sem kemur, að þeim finnst, úr óvæntri átt,
frá gömlu nýlendunni sem þeir voru eigin-
lega búnir að gleyma. Okkur sem höfum
búið í Danmörku þykir þetta skemmtilegt,
– bara vonandi að þetta endi ekki eins og
Pizza 67 fíaskóið. Einn vinur minn, sem
enn er með annan fótinn í Kaupmanna-
höfn, er sérstakur áhugamaður um þetta
og hefur sett saman innkaupalista sem
myndi ganga ansi nærri dönsku fullveldi
næðu Íslendingar að kaupa allt af honum.
Efst á listanum er að sjálfsögðu Tívolí,
kæmist það í íslenskar hendurÝfæru Danir
fyrst á taugum. Spurnig hvort að Jón Ásgeir
eða Bjöggarnir geti ekki bara kippt því með
í næsta innkaupatúr?
Eiríkur Bergmann Einarsson á eirik-
urbergmann.hexia.net
Trúa ekki þróunarkenningunni
Stöðugar tilraunir bandarískra íhalds-
manna til að grafa undan trausti á einni
farsælustu vísindakenningu sögunnar hafa
þrátt fyrir allt skilað miklum árangri. Sam-
kvæmt könnun CBS í upphafi ársins trúa
55% Bandaríkjamanna (67% kjósenda
Bush) ekki á neina útgáfu af þróunarkenn-
ingunni – þeir hafna því að líffræðileg þró-
un eigi sér yfir höfuð stað. Íhaldsmönnum
hefur sumsé tekist að gera sannleikann svo
tortryggilegan að fólk kýs fremur tiltölulega
augljósa merkingarleysu. Hliðstætt dæmi
um niðursöllun vísindalegra sanninda er
að finna í umræðunni um gróðurhúsaáhrif,
þar sem ráðamenn í Bandaríkjunum og
víðar leita allra leiða til að gera niðurstöður
virtustu vísindamanna tortryggilegar. Það
er óþolandi ástand að mörkin milli sann-
leikans og lyginnar verði óljós eða hverfi af
þeirri ástæðu einni að það hentar þeim
sem fara með völdin hverju sinni.
Finnur Dellsén á murinn.is
Fádæma óheilindi
Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar er
einnig mjög sérstakur en hann hefur gefið
út sína eigin sjávarútvegsstefnu sem hann
kynnir nær eingöngu á Vestfjörðum. Þegar
hann er staddur við Austurvöll í Reykjavík
breytist hins vegar allt. Kristinn H. Gunnars-
son hefur ítrekað greitt atkvæði með
kvótakerfinu í atkvæðagreiðslum á Alþingi
og nú síðast kaus hann með því að kvóta-
setja handfæratrillurnar gegn hagsmunum
Vestfjarða. Í því máli sýndu þingmenn
stjórnarflokkanna af sér fádæma óheilindi
eftir að hafa gengið undir borða og inn á
fund á Ísafirði þann 13. september 2003
þar sem á var letrað orð skulu standa. Þeir
gengu á bak orða sinna.
Sigurjón Þórðarson á
althingi.is/sigurjon
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek-
ið á móti efni sem sent er frá Skoðana-
síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið-
beiningar.