Fréttablaðið - 08.08.2005, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Lánsma›ur?
Eina skýringin á því að ég skuliekki vera skuldugur upp fyrir
haus er sú að ég ólst upp á tímum
þegar bankastjórar lánuðu ekki
peninga nema fólki sem gat sann-
fært þá um að það ætti nóga pen-
inga fyrir. Ef fólk langaði til að
kaupa eitthvað varð að nota aðferð
sem nefndist „sparnaður“ og var
fólginn í því að nurla saman pen-
ingum í þeirri von að maður væri
fljótari að safna heldur en ríkis-
stjórnin að fella gengi krónunnar.
EF ég hefði alist upp í góðæri
væri ég örugglega stórskuldugur.
Tökum nauðsynleg útgjöld: Hús-
næði 50 milljónir, bíll 6 milljónir,
innbú og heimilistæki 5 millur,
sigling um Karíbahafið 2 milljónir,
skíðaferð til Ítalíu 1 milljón,
skuldbreytingalán fyrir gjaldfölln-
um lánum og lögfræðikostnaði 12
milljónir, tómstundakostnaður 2
milljónir. Þarna eru komnar 75
kúlur. Svona hleðst þetta upp þótt
maður sé ekki að veita sér neitt
sérstakt. Og svo er það fatnaður
kr. 147.302 á útsölum. Samtals eru
þetta 75.147.302 krónur, á verð-
tryggðum lánum og vextir og
þjónustugjöld að sjálfsögðu eins
og bönkunum hentar hverju sinni.
ÞETTA er náttúrlega bara einka-
neysla og fyrirtækinu óviðkom-
andi. Ef ég væri ungur núna væri
mér alveg trúandi til að fara að
framleiða kvikmyndir. Þá förum
við fyrst að tala um alvörupen-
inga. Segjum að ég væri rétt að
byrja, búinn að gera tvær myndir.
Sú fyrri kostaði bara 300 milljón-
ir, en seldist ekkert erlendis, svo
að sú næsta kostaði 800 milljónir.
Tekjur til þessa af 20 þúsund
áhorfendum og svo boð um að
koma á kvikmyndahátíðina í
Haugasundi enda hef ég fengið
góða dóma bæði í Vi menn og
Dimmalætting. Segjum að tekj-
urnar séu 100 milljónir, og þá eru
20 milljónir í peningum, hitt í
gúddvill. Samtals: 1.075.147.302
kr. Rétt rúmur milljarður. Í skuld.
ÞESSU er ég bara að velta fyrir
mér til að bera saman lántöku-
möguleika unga fólksins í dag og
þeirrar verðbólgu-kynslóðar sem
ég tilheyri. Þegar bankarnir eru
svona ríkir og opnir öllum upp á
gátt eru möguleikarnir óneitan-
lega miklir. Og freistingarnar.
Eyðum nú borgum seinna. Það
lætur býsna vel í eyrum. Og oft.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR