Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LÉTTIR SMÁM SAMAN TIL um norð-
austan- og austanvert landið. Skúraveður
sunnan og vestan til. Hiti 10-20 stig, hlýjast
norðaustan og austan til. VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
20. ágúst 2005 - 223. tölublað – 5. árgangur
Naumt tap fyrir Spánverjum
Íslenska piltalandsliðið tapaði með
minnsta mun fyrir Spánverjum í gær á
heimsmeistaramóti landsliða skipað
leikmönnum undir
21 árs aldri en það
fer nú fram í
Ungverjalandi.
Strákarnir þurfa nú
sigur gegn Þjóð-
verjum í dag ef
þeir ætla sér
eitthvað á mótinu.
Hörð en glaðsinna
Björk Vilhelmsdóttir hóf afskipti af
stjórnmálum á háskóla-
árunum og var orðin
virk í Alþýðubanda-
laginu á níunda ára-
tugnum. Stjarna
hennar hefur risið
hratt á þessu kjör-
tímabili.
MAÐUR VIKUNNAR 16
HELGA J. GÍSLADÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● bílar ● ferðir
▲
LOKA HELGIN!
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Ennþá
betri
notaður
bíll og
Medion
fartölva
í kaupauka.
Ekki mæta of seint!
Nær varla ni›ur
á bremsurnar
Gagnagrunnur um
íslenska djassleikara
ÚLFHILDUR EYSTEINSDÓTTIR:
▲
FÓLK 46
VINNUR ÞARFT VERKEFNI
Klaustrin voru
alfljó›legar stofnanir
STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR:
▲
FORNMINJAR 24
EINSTÆÐ MYND AF KLAUSTRI VERÐUR TIL
ÍÞRÓTTIR 40
SAMGÖNGUR „Þeir hugsa nú bara
um sjálfa sig þessir kappar og
hirða ekki um aðra,“ segir Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi, og líst ekkert á hugmyndir
um byggingu nýs flugvallar á
Lönguskerjum sem borgaryfir-
völd hafa rætt um við fulltrúa FL
Group og dótturfélags þess, Flug-
félags Íslands.
„Þetta verður rándýrt en allt
sem viðkemur Reykjavík og R-
listanum er
þannig að pening-
ar skipta ekki
máli. Það skiptir
ekki máli hvort
það sé milljarður
eða tíu eða hundr-
að, það er talað
um þetta eins og
þetta séu kara-
mellur,“ segir
Gunnar. Yrði
flugvöllur reist-
ur á Lönguskerjum yrði það vænt-
anlega til að höfnin í Kópavogi
yrði innlyksa. Það líst Gunnari
ekki á og segir að bætur þyrftu að
koma í staðinn. „Þeir myndu sjálf-
sagt fara létt með að borga þær.
Þá munar væntanlega ekkert um
að slengja út einum eða tveimur
milljörðum.“
„Mér finnst þetta afskaplega
gleðilegt því ég setti hugmyndir
fram um flugvöll á landfyllingu á
Lönguskerjum árið 1974,“ segir
Trausti Valsson, arkitekt og skipu-
lagsfræðingur, um viðræðurnar.
„Þarna eru mikil sker sem eru
um tveggja kílómetra löng eða
álíka og flugbraut. Það er sáralítið
sem þyrfti að fylla upp í þá flug-
braut sem myndi liggja algjörlega
í stefnu fjarðarins og aðflugið
væri utan frá sjó. Svo yrði hin
flugbrautin í áttina frá Fossvogi
og þá í sjó líka. Svo má nefna að
þar sem flugvöllurinn yrði á land-
fyllingu úti á sjó þá yrði hávaða-
svæði og öryggissvæðið yfir sjón-
um þannig að hávaðamengun yrði
lítil sem engin,“ segir Trausti.
Hann segir að honum þyki ljóst
að kostnaður við slíkan flugvöll
yrði langtum minni en það verð
sem fengist fyrir landsvæðið þar
sem núverandi flugvöllur er.
- hb/- bþg
Líst ekki á flugvöll
á Lönguskerjum
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, er mjög ósáttur vi› vi›ræ›ur um
hugsanlegan flutning Reykjavíkurflugvallar á Löngusker. Trausti Valsson sem
setti hugmyndina fram ári› 1974 fagnar vi›ræ›unum.
Rauðblikkandi viðvörunarljós
Á undanförnum árum hefur sprungið
út ný kynslóð ungra fjármagnseigenda
á Íslandi. Þar sker í augu hve hlutur
kvenna er rýr. Kristrún
Heimisdóttir segir að
viðskiptalífið vanti
gagnsæi og jafnræði.
VIÐSKIPTALÍF 26
VEÐRIÐ Í DAG
MANNLÍF Búist er við fjölda fólks á
Menningarnótt en þó færri gest-
um en á síðasta ári þegar 104.000
manns voru í miðbænum.
„Það verður prýðilegasta
veður yfir daginn,“ segir Sigurður
Þ. Ragnarsson veðurfræðingur.
„Það verða smá skúrir fyrri part-
inn en þornar upp þegar líður á
daginn en vindurinn verður eilítið
meiri með kvöldinu. Hitinn
verður 10-14 stig yfir daginn.“
Miðbærinn verður lokaður
fyrir almennri bílaumferð í dag
en hægt er að leggja við Háskóla
Íslands, á Skólavörðuholti eða hjá
Kjarvalsstöðum að sögn Sifjar
Gunnarsdóttur hjá Höfuðborgar-
stofu. Einnig verður opið í þremur
stærstu bílastæðahúsunum.
Strætisvagnar Reykjavíkur
stoppa á Skothúsvegi þegar komið
er í bæinn og í Vonarstræti áður
en farið er úr bænum, en ekki á
Hlemmi eins og vant er.
Dagskránni lýkur með flug-
eldasýningu klukkan ellefu og
eftir það eiga börn ekki að vera
ein í bænum. Annast er um týnd
börn á efri hæð Hressingarskál-
ans í Austurstræti.
Rauði krossinn verður með
tjald á Miðbakka nærri Hafnar-
húsinu og sjúkrabílar verða fyrir
utan menntamálaráðuneytið í
Sölvhólsgötu. - grs
Mikill viðbúnaður í miðbænum vegna Menningarnætur:
Búist vi› tugum flúsunda gesta
MENNINGARNÓTT UNDIRBÚIN Verkamenn og iðnaðarmenn unnu að því hörðum höndum í gær að koma upp sviðum og
sviðsmyndum Menningarnætur. Hér sést unnið að uppsetningu draugahúss við Ingólfstorg.
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Í VATNSMÝRI
Ef ákveðið verður að flytja Reykjavíkurflug-
völl á landfyllingu á Lönguskerjum skapast
mikið landsvæði til bygginga á núverandi
flugvallarsvæði.
GUNNAR I. BIRGIS-
SON Hefur litla trú
á að flugvöllur
verði byggður á
Lönguskerjum.
Lyfjarisi tapar máli:
Ekkjan fær
16 milljar›a
BANDARÍKIN, AP Kviðdómur í Texas
komst í gær að þeirri niðurstöðu
að lyfjarisinn Merck & Co. bæri
ábyrgð á dauða
manns sem
hafði tekið inn
v e r k j a l y f i ð
Vioxx og lést
úr hjartaáfalli.
Ekkja manns-
ins fær and-
virði sextán
milljarða ís-
lenskra króna í
skaðabætur.
Vioxx var
áður mjög vin-
sælt verkjalyf
en var tekið af markaði í septem-
ber í fyrra eftir að rannsókn
leiddi í ljós að lyfið tvöfaldaði
hættuna á hjartaáfalli ef það væri
tekið í 18 mánuði eða lengur.
Þetta er fyrsti dómurinn í máli
gegn Merck vegna verkjalyfsins,
en yfir 4.000 mál gegn risanum
eru í farvatninu. Búist er við að
dómnum verði áfrýjað. ■
117 ára í augnaðgerð:
Nú má gu›
bí›a a›eins
HVÍTA-RÚSSLAND, AP 117 ára gömul
kona, sem kann að vera sú elsta í
heimi, gekkst í gær undir augn-
aðgerð. „Hér áður bað ég guð um
að fara að taka við mér en nú þoli
ég að bíða aðeins lengur,“ sagði
Hanna Barisevitsj frá Hvíta-
Rússlandi eftir að hún gekkst
undir aðgerðina.
Hanna var farin að sjá ansi illa
og þáði því boðið þegar einkarek-
in heilbrigðisstofnun bauðst til að
framkvæma aðgerðina endur-
gjaldslaust. Hún fæddist 5. maí
1885 samkvæmt vegabréfi hennar
en Heimsmetabók Guinness hefur
ekki staðfest að hún sé elsta kona
heims þar sem hún hefur aldrei
óskað eftir því. Hollensk 115 ára
kona er þar skráð elsta kona
heims. ■
CAROL ERNST
Ekkja mannsins fær
sextán milljarða
í skaðabætur.