Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 59
43FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 Destroy All Humans gerist á jörð- inni á fimmta áratugnum þegar kommúnisminn var aðalógnin. Geimverur frá plánetunni Furon hafa gert innrás til að safna DNA úr jarðarbúum til að viðhalda lífi í sínu kyni þar sem allir frá Furon eru klónaðir. Aðal persónurnar eru tvær, annars vegar Crypto sem sér um innrásina og Pox sem er heilinn á bak við innrásina. Þú spilar sem sagt sem geimveran sem er ansi skapill og vill koma jarðarbúum fyrir kattarnef sem fyrst. Heimurinn er ágætlega stór með mörgum borðum stútfullum af mannfólki til að tæta í sig. Það er mikill húmor í leiknum og eru B- myndir frá þessu tímabili óspart notaðar til að skapa skemmtilegan heim. Andstæðingar Crypto eru lög- reglan, herinn og Majestic sem er leynideild Bandaríkjastjórnar sem flestir þekkja sem menn í svörtum fötum (MIB). Ásamt þessum rekst Crypto á bændur með haglabyssur undir hendinni en þeir eru ekki mik- il ógn við innrásina. Spilun Leikurinn er tvískiptur í spilun, annarsvegar er Crypto fótgangandi með „jetpack“ á bakinu eða í geim- skipinu sínu. Á jörðinni getur Crypto breytt sér í hvaða jarðarbúa sem er til að dulbúast og nýtist það vel þegar hann er í njósnaleiðöngr- um. Crypto býr yfir frábærum hæfileikum eins og að geta lyft fólki og farartækjum með hugarorkunni, hann getur lesið hugsanir og gefið fólki skipanir. Crypto þarf að safna saman DNA úr mannfólki og getur nýtt uppsafnað DNA til að uppfæra hæfileika sína og einnig geimskipið. Verkefnin í leiknum eru margvísleg sem heldur spilaranum við efnið. Grafík og hljóð Útlit leiksins er ágætlega hannað þó svo að smáatriðin vanti og grafíkin hefði orðið betri ef framleiðandinn hefði fínpússað hana. Hljóðsetning er til fyrirmyndar og tónlistin skap- ar frábæra vísindaskáldskapar- stemmingu með hæfilegri þeramín- notkun. Franz Gunnarsson Mor›ó›ar geimverur í gó›u stu›i DESTROY ALL HUMANS NIÐURSTAÐA: Það dregur úr endingu leikj- arins að það vantar fjöldaspilun en góður söguþráður vegur upp á móti ásamt miklu skemmtanagildi sem setur leikinn í sérflokk. [ TÖLVULEIKIR ] UMFJÖLLUN GOD OF WAR Þessi magnaði bardaga- leikur er að gera allt vitlaust á PlayStation. Grafíkin þykir mögnuð og djöfulgangurinn í bardögum Stríðsguðsins við alls koanr óféti og andskota er slíkur að leikurinn er fyrst og fremst ætlaður þeim eldri og reyndari. FOOTBALL MANAGER Nýi leikurinn er væntanlegur 4. nóvember. N‡jungar í Foot- ball Manager Þónokkrar nýjungar verða í tölvu- leiknum Football Manager 2006 sem verður gefinn út þann 4. nóv- ember næstkomandi fyrir PC og Mac-tölvurnar. Lýsingar á leikjunum hafa ver- ið teknar í gegn. Nýjum setning- um hefur verið bætt inn í lýsing- arnar til að bæta stemninguna og til að draga fram fleiri smáatriði. Einnig verða ítarlegri upplýsing- ar um form leikmanna og hversu vel þeir hafa staðið sig í leikjum, sett fram á nýjum og einföldum skjámyndum. Að auki geta knattspyrnustjór- ar öskrað af hliðarlínunni til að gera breytingar á leik liðsins án þess að þurfa að stoppa leikinn. Þeir geta einnig lesið yfir leik- mönnum sínum í hálfleik og látið þá vita eftir leik hvaða álit þeir hafa á spilamennsku þeirra. Ray Houghton, fyrrum leik- maður Liverpool og írska lands- liðsins, var jafnframt fenginn til að greina hvert atriði vélarinnar sem keyrir leikina áfram, til að leikmenn líti eins raunverulega út og hægt er. ■ Vélbúnaður: Playstation 2 Framleiðandi: Pandemic Studios http://www.destroyallhumansgame.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.