Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.08.2005, Qupperneq 55

Fréttablaðið - 20.08.2005, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005 39 Útiljós á vegg – Galv. 7.990- Útistaur – h: 110 cm HELSINKI 5.960- Útistaur – h: 43 cm APOLLO 3.950- Útiljós á vegg – HELSINKI 2.990- Útiljós á vegg – Svart 1.990- Útiljós á vegg – Hvítt 1.990- Útistaur - h: 43 cm HELSINKI 3.980- Útistaur – h: 92 cm Kopar 9.990- Útiljós á vegg – Stál 4.950- Garðsett 3 útistaurar – Svart 6.990- úrval útiljósa á frábæru verði Útiljósatilboð Opið laugardaga: 11:00 - 16:00 Útistaur – h: 90 cm Svart 5.980- Útiljós á vegg – Svart 4.930- Útiljós á vegg - Stál Midi 7.990- KLAKKUR, Vík / BYM, Mosfellsbæ / FOSSRAF, Selfossi / GEISLI, Vestmannaeyjum / HS RAF, Eskifirði / KH. BLÖNDUÓSI / KAUPF.HVAMMSTANGA / LÓNIÐ, Höfn RAFBÚÐ RÓ, Keflavík / RAFBÚÐIN ÁLFASKEIÐI, Hafnarfirði / RAFALDA, Neskaupstað / RAFBÆR, Siglufirði / ÞRISTUR, Ísafirði / RAFLAMPAR, Akureyri ÖRYGGI, Húsavík / RAFSJÁ, Sauðárkróki / KRÁKUR, Blönduósi / SVEINN GUÐMUNDSSON, Egilsstöðum / RAFLOST, Djúpavogi Miðasala á tónleika Gospelkór Reykjavíkur í Laugardalshöll 3. september næstkomandi hefur farið fram úr björtustu vonum. Kórinn mun koma fram undir stjórn Óskars Einarssonar ásamt fjölda þekktra tónlistarmanna. Gestasöngvari á tónleikunum verður Páll Rósinkranz. Tónleikar Gospelkórsins hafa þótt einstakir tónlistaviðburðir en þeir hafa til þessa verið haldnir í kirkjum og smærri tónleikasöl- um. Miðasala á tónleikana fer fram í á concert.is og í verslunum Skífunnar í Reykjavík, BT á Akur- eyri, Selfossi og Egilsstöðum. ■ Mi›asala gengur vel GOSPELKÓR REYKJAVÍKUR Tónleikar Gospelkórsins þykja einstakir tónlistarvið- burðir. Lights on the Highway vakti fyrst á sér athygli þegar hún vann hljómsveitakeppnina Battle of the Bands á síðasta ári. Í framhaldinu spilaði sveitin á úrslitakvöldinu í London og hefur síðan unnið við að þróa sinn hljóm áfram. Upphafslagið á fyrstu plötu sveitarinnar, Jameson's State, er prýðilegt rokklag, bæði grípandi og þétt, og kemur plötunni vel af stað. Flest önnur lögin á plötunni eru keimilík en ekki alveg í sama gæðaflokki. Til að mynda hljóma The Moment og Rest of Us afar svipuð. Helst náðu Down the Alley og All For the Better að hreyfa við mér með fínu popp/rokki. Af- gangurinn rann ágætlega í gegn en skildi frekar lítið eftir sig. Lights on the Highway spilar frambærilega blöndu af grunge- popp/rokki í anda Alice in Chains með nettum skammti af hippa- áhrifum. Hljóðfæraleikur og söngur er góður og flest lögin eru fyrir ofan meðallag. Eitthvað vantar aftur á móti upp á til að platan fái tvo þumla upp. Kannski tekur sveitin sig bara of alvarlega, sem hefur síðan áhrif á skemmtanagildið. Engu að síð- ur ágætis frumburður. Freyr Bjarnason Ágætt grunge-popp LIGHTS ON THE HIGHWAY: LIGHTS ON THE HIGHWAY Niðurstaða: Eitthvað vantar aftur á móti upp á til að platan fái tvo þumla upp. Kannski tekur sveitin sig bara of alvarlega, sem hefur síðan áhrif á skemmtanagildið. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Bókaforlagið Bjarturhefur gefið út skáldsöguna Dauðinn og mörgæsin eftir Andrej Kúrkov í þýð- ingu Áslaugar Agnars- dóttur. Bókin kemur út í neon-flokki Bjarts, sem helgaður er nýj- um erlendum skáld- verkum í allra fremstu röð. Hjá Máli og menn-ingu er komin út Íslensk-dönsk, dönsk- íslensk vasaorðabók í ritstjórn Halldóru Jónsdóttur. Ný ís- lensk-dönsk orðabók hefur ekki komið út í áratugi og því er mikill fengur að bókinni. Gerð fyrri hluta bókarinnar tók mið af almennu íslensku nútímamáli, jafnt talmáli sem ritmáli. Orðaforði síðari hluta bókar- innar var sniðinn eftir nýjum og upp- færðum orðagrunni frá Gyldendal í Danmörku, en uppbygging er miðuð við nýendurskoðaða Dansk-íslenska skólaorðabók sem kom út hjá Eddu fyrr á þessu ári. Í bókinni er að finna um 37.000 uppflettiorð og rúmlega 12.000 dæmi um málnotkun. Út er komin hjáBókaútgáfunni Sölku bókin Kyrrðin talar eftir Eckhart Tolle. Eftir Tolle hefur komið fjöldi bóka og þar á meðal er metsölubók- in Mátturinn í núinu. Í Kyrrðin talar eru máttug skilaboð sett fram í tíu köflum þar sem hver kafli beinir athygli að einstöku atriði en sam- an mynda þeir heild sem opnar lesand- anum nýja lífssýn. Bókin er 134 blaðsíð- ur og er það Vésteinn Lúðvíksson sem hefur þýtt hana. Hjá Máli og menn-ingu er komin út Algjör Milli eftir Madonnu. Algjör Milli er fimmta og jafn- framt síðasta bók Madonnu fyrir börn á öllum aldri. Rui Paes myndskreytir bókina. Hann er af portúgölsku bergi brotinn, fæddur í Mósambik en býr og starfar í London og Suffolk. Verk eftir hann, meðal annars veggmyndir og leikmyndir, eru í einkaeign um all- an heim. Þetta er fyrsta barnabókin sem hann myndskreytir. Líkt og með fyrri bækur Madonnu rennur allur ágóði af sölu bókarinnar til Spirituality for Kids Foundation Algjör Milli er barnabók mánaðarins. Fullt verð er 2.290 kr. mánaðarbókaverð 1.590 kr. NÝJAR BÆKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.