Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 55
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005 39
Útiljós á vegg – Galv.
7.990-
Útistaur – h: 110 cm
HELSINKI
5.960-
Útistaur – h: 43 cm
APOLLO
3.950-
Útiljós á vegg – HELSINKI
2.990-
Útiljós á vegg – Svart
1.990-
Útiljós á vegg – Hvítt
1.990-
Útistaur - h: 43 cm
HELSINKI
3.980-
Útistaur – h: 92 cm
Kopar
9.990-
Útiljós á vegg – Stál
4.950-
Garðsett
3 útistaurar – Svart
6.990-
úrval útiljósa á frábæru verði
Útiljósatilboð
Opið laugardaga:
11:00 - 16:00
Útistaur – h: 90 cm
Svart
5.980-
Útiljós á vegg – Svart
4.930-
Útiljós á vegg - Stál
Midi
7.990-
KLAKKUR, Vík / BYM, Mosfellsbæ / FOSSRAF, Selfossi / GEISLI, Vestmannaeyjum / HS RAF, Eskifirði / KH. BLÖNDUÓSI / KAUPF.HVAMMSTANGA / LÓNIÐ, Höfn
RAFBÚÐ RÓ, Keflavík / RAFBÚÐIN ÁLFASKEIÐI, Hafnarfirði / RAFALDA, Neskaupstað / RAFBÆR, Siglufirði / ÞRISTUR, Ísafirði / RAFLAMPAR, Akureyri
ÖRYGGI, Húsavík / RAFSJÁ, Sauðárkróki / KRÁKUR, Blönduósi / SVEINN GUÐMUNDSSON, Egilsstöðum / RAFLOST, Djúpavogi
Miðasala á tónleika Gospelkór
Reykjavíkur í Laugardalshöll 3.
september næstkomandi hefur
farið fram úr björtustu vonum.
Kórinn mun koma fram undir
stjórn Óskars Einarssonar ásamt
fjölda þekktra tónlistarmanna.
Gestasöngvari á tónleikunum
verður Páll Rósinkranz.
Tónleikar Gospelkórsins hafa
þótt einstakir tónlistaviðburðir en
þeir hafa til þessa verið haldnir í
kirkjum og smærri tónleikasöl-
um. Miðasala á tónleikana fer
fram í á concert.is og í verslunum
Skífunnar í Reykjavík, BT á Akur-
eyri, Selfossi og Egilsstöðum. ■
Mi›asala gengur vel
GOSPELKÓR REYKJAVÍKUR Tónleikar
Gospelkórsins þykja einstakir tónlistarvið-
burðir.
Lights on the Highway vakti fyrst
á sér athygli þegar hún vann
hljómsveitakeppnina Battle of the
Bands á síðasta ári. Í framhaldinu
spilaði sveitin á úrslitakvöldinu í
London og hefur síðan unnið við
að þróa sinn hljóm áfram.
Upphafslagið á fyrstu plötu
sveitarinnar, Jameson's State, er
prýðilegt rokklag, bæði grípandi
og þétt, og kemur plötunni vel af
stað. Flest önnur lögin á plötunni
eru keimilík en ekki alveg í sama
gæðaflokki. Til að mynda hljóma
The Moment og Rest of Us afar
svipuð.
Helst náðu Down the Alley og
All For the Better að hreyfa við
mér með fínu popp/rokki. Af-
gangurinn rann ágætlega í gegn
en skildi frekar lítið eftir sig.
Lights on the Highway spilar
frambærilega blöndu af grunge-
popp/rokki í anda Alice in Chains
með nettum skammti af hippa-
áhrifum. Hljóðfæraleikur og
söngur er góður og flest lögin
eru fyrir ofan meðallag. Eitthvað
vantar aftur á móti upp á til að
platan fái tvo þumla upp.
Kannski tekur sveitin sig bara of
alvarlega, sem hefur síðan áhrif
á skemmtanagildið. Engu að síð-
ur ágætis frumburður.
Freyr Bjarnason
Ágætt grunge-popp
LIGHTS ON THE HIGHWAY:
LIGHTS ON THE HIGHWAY
Niðurstaða: Eitthvað vantar aftur á móti upp á
til að platan fái tvo þumla upp. Kannski tekur
sveitin sig bara of alvarlega, sem hefur síðan
áhrif á skemmtanagildið.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Bókaforlagið Bjarturhefur gefið út
skáldsöguna Dauðinn
og mörgæsin eftir
Andrej Kúrkov í þýð-
ingu Áslaugar Agnars-
dóttur. Bókin kemur út
í neon-flokki Bjarts,
sem helgaður er nýj-
um erlendum skáld-
verkum í allra fremstu röð.
Hjá Máli og menn-ingu er komin út
Íslensk-dönsk, dönsk-
íslensk vasaorðabók í
ritstjórn Halldóru
Jónsdóttur. Ný ís-
lensk-dönsk orðabók
hefur ekki komið út í áratugi og því er
mikill fengur að bókinni. Gerð fyrri
hluta bókarinnar tók mið af almennu
íslensku nútímamáli, jafnt talmáli sem
ritmáli. Orðaforði síðari hluta bókar-
innar var sniðinn eftir nýjum og upp-
færðum orðagrunni frá Gyldendal í
Danmörku, en uppbygging er miðuð
við nýendurskoðaða Dansk-íslenska
skólaorðabók sem kom út hjá Eddu
fyrr á þessu ári. Í bókinni er að finna
um 37.000 uppflettiorð og rúmlega
12.000 dæmi um málnotkun.
Út er komin hjáBókaútgáfunni
Sölku bókin Kyrrðin
talar eftir Eckhart Tolle.
Eftir Tolle hefur komið
fjöldi bóka og þar á
meðal er metsölubók-
in Mátturinn í núinu. Í
Kyrrðin talar eru máttug skilaboð sett
fram í tíu köflum þar sem hver kafli
beinir athygli að einstöku atriði en sam-
an mynda þeir heild sem opnar lesand-
anum nýja lífssýn. Bókin er 134 blaðsíð-
ur og er það Vésteinn Lúðvíksson sem
hefur þýtt hana.
Hjá Máli og menn-ingu er komin út
Algjör Milli eftir
Madonnu. Algjör Milli
er fimmta og jafn-
framt síðasta bók
Madonnu fyrir börn á
öllum aldri. Rui Paes myndskreytir
bókina. Hann er af portúgölsku bergi
brotinn, fæddur í Mósambik en býr
og starfar í London og Suffolk. Verk
eftir hann, meðal annars veggmyndir
og leikmyndir, eru í einkaeign um all-
an heim. Þetta er fyrsta barnabókin
sem hann myndskreytir. Líkt og með
fyrri bækur Madonnu rennur allur
ágóði af sölu bókarinnar til Spirituality
for Kids Foundation Algjör Milli er
barnabók mánaðarins. Fullt verð er
2.290 kr. mánaðarbókaverð 1.590 kr.
NÝJAR BÆKUR