Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 2
2 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Sjö fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætisvagns og vörubifreiðar: Dróst tuttugu metra me› vörubílnum SLYS Sjö voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætis- vagns og vörubifreiðar á gatna- mótum Laugavegs, Suðurlands- brautar og Kringlumýrarbrautar á tíunda tímanum í gærmorgun. Strætisvagnabílstjórinn slas- aðist alvarlega á fótum og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Þar gekkst hann undir aðgerð í gær og var í kjölfarið lagður inn á gjörgæslu. Hann kastaðist út úr strætisvagninum við áreksturinn og dróst um tuttugu metra eftir götunni með vörubifreiðinni. Fimm farþegar strætisvagns- ins voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild en reyndust ekki alvar- lega slasaðir. Eldri maður var þó lagður inn til eftirlits vegna höf- uðáverka en hinir fengu að fara heim að lokinni skoðun. Ökumaður vörubifreiðarinnar var einnig fluttur með lögreglubíl á slysadeild. Hann var ómeiddur en mjög brugðið eftir áreksturinn ekki síst þar sem hann reyndist þekkja strætisvagnabílstjórann. Tildrög slyssins eru í rann- sókn. - ht Brottflutningur landnema af Gaza er í fullum gangi: Ná›ugur dagur hjá ísraelska hernum GADID, AP Brottflutningi landtöku- manna af Gaza-svæðinu miðar vel áfram. Ekki kom til neinna alvar- legra átaka á svæðinu í gær. Miðað við róstusaman fimmtu- daginn þegar mótmælendur skvettu sýru á hermenn í sýna- gógum í Neve Dekalim og Kfar Darom landnemabyggðunum áttu ísraelsku hermennirnir náðugan dag í Gadid í gær. Þar voru nokkr- ir mótmælendur saman komnir en þeir samþykktu eftir viðræður við lögreglumenn að yfirgefa svæðið án mótþróa. Nokkrir klifr- uðu þó upp á húsþök og hrópuðu þaðan ókvæðisorð. Í Kerem Atzmona-hverfinu jöfnuðu jarðýtur Ísraela nokkur hjólhýsi við jörðu. Þau eru fyrstu híbýlin sem rifin eru í tengslum við lokun byggðanna. Palestínumenn í bænum Rafah söfnuðust saman í hliði yfirgef- innar landnemabyggðar og lofuðu Guð fyrir að reka Ísraela á brott. Nú hefur þorri landnema- byggða á Gaza-ströndinni verið rýmdur, fólk býr aðeins í fjórum þeirra. Yfirmaður brottflutnings- ins sagðist búast við að honum yrði lokið á þriðjudaginn en það er mun fyrr en í fyrstu var búist við. - shg Vegager›in rannsakar leyfislausa leigubíla Brög› eru a› flví a› leigubílum í höfu›borginni sé eki› um tilskilinna leyfa og heimilda. Eftirlitsdeild Vegager›arinnar rannsakar nokkur slík mál. Allnokkur mál tengd misnotkun á atvinnuleyfum bílstjóra eru í sko›un. ATVINNUMÁL „Það eru nokkur mál í skoðun hjá okkur í dag og slík mál koma nokkuð reglulega upp,“ segir Sigurður Hauksson hjá eftirlitsdeild Vegagerðar- innar. Sigurður vísar þar til mála sem varða misnotkun á at- vinnuleyfum leigubílstjóra en nokkuð virðist um að óprúttnir fari ekki að lögum og reglum hvað þau varðar. Viðurlög við misnotkun á slíkum leyfum er aðvörun en ekki er gengið ýkja hart fram fyrr en sannað þykir að viðkom- andi leyfishafi brjóti lögin ítrek- að. Hefur það heft rannsókn slíkra mála að andmælaréttur leyfishafa er afar ríkur og hvert mál getur tekið langan tíma. Misnotkunin felst aðallega í að leyfishafar, sem halda leyf- um sínum til 71 árs aldurs, framleigi þau og stundi jafnvel allt aðra vinnu en leigubíla- akstur á meðan. Slíkt er ekki brot svo lengi sem leyfishafar sjálfir skili 40 tíma vinnufram- lagi í viku hverri en eftirlit með slíku er afar erfitt og allt að því vonlaust. Sigurður segir að misjafnir menn finnist í öllum greinum en tekur fram að 95 prósent leigu- bílstjóra eru til fyrirmyndar og almennt séu engin vandamál af þeirra hálfu. „Svo eru aðrir sem reyna að fara á sveig við lög og reglur en enginn hefur þó misst leyfið sitt vegna brota á þeim þremur árum sem við höfum séð um eftirlit með þessu.“ Lög kveða einnig á um að all- ir leigubílstjórar skuli vera með atvinnuleyfi sín í bílum sínum en Fréttablaðið hefur sannreynt að því er ekki að heilsa í öllum tilvikum. Víða erlendis mega bílstjórar ekki aka leigubílum nema akstursleyfi þeirra sé á áberandi stað í bílum þeirra þar sem viðskiptavinir geta séð mynd, nafn og leyfisnúmer við- komandi. Er það talið sjálfsagt öryggisatriði fyrir farþega enda ljóst að tryggingar ná ekki til þeirra sem aka leigubíl undir fölsku flaggi. Vegagerðin hefur vitneskju um að í höfuðborginni séu notaðir leigubílar sem til- heyra engri leigubílastöð og er því allur varinn góður. albert@frettabladid.is SAMGLEÐJAST YFIR FLUGBRAUTINNI Ingólfur Bjarni Svafarsson er ekki hár í loft- inu en hann var í skýjunum með nýju flug- brautina og hér óskar hann samgöngu- ráðherra til hamingju með hana. Ný flugbraut: Allir kátir í Grímsey SAMGÖNGUR „Það var sól og blíða að þessu sinni og allir Grímsey- ingar afar kátir,“ segir Brynjólfur Árnason, flugvallarvörður í Grímsey, en Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vígði þar í gær nýja flugbraut og véla- geymslu. Nýja flugbrautin er rúmur kílómetri að lengd og hún leysir af hólmi gamla malarbraut sem oft var ófær á vorin þegar þiðna tók í jörðu. Til stóð að vígja flugbrautina fyrir viku en fresta varð athöfn- inni vegna mikillar þoku sem lá yfir eynni og hamlaði flugsam- göngum. - jse LÖGREGLUMAÐUR STENDUR VÖRÐ Yfir- maður Lundúnalögreglunnar neitar að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn á dauða Brasilíumannsins Menezes. Yfirmaður Lundúnalögreglunnar: Vísar ásökun- um á bug LUNDÚNIR Yfirmaður Lundúna- lögreglunnar, Ian Blair, neitar því staðfastlega að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn á dauða Brasílíumannsins Jean Charles de Menezes, sem lögreglumenn skutu til bana á neðanjarðar- lestarstöð í Lundúnum í júlí. Hann neitar því jafnframt al- farið að hafa á nokkurn hátt reynt að breiða yfir málið. Breska blaðið The Guardian segir frá því að Blair hafi lagt það til í febrúar að lögreglumenn sem bana einhverjum á meðan þeir eru við störf ættu að njóta friðhelgi. ■ SPURNING DAGSINS Siggi, hvernig ver›ur flú klæddur á Menningarnótt? Eftir veðri. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, einnig þekktur sem Siggi stormur, spáir ágætu veðri í dag þó að smá skúrir verði fyrrihluta dags en vindasamara með kvöldinu. MÓTMÆLT Í GADID Nokkrir landtökumenn komu sér fyrir á húsþökum í Gadid-byggðinni og létu hermenn fá það óþvegið. Þeir veittu þó litla mótspyrnu þegar hermenn fjarlægðu þá. HARÐUR ÁREKSTUR Strætisvagn og vöru- bifreið eru mikið skemmd eftir árekstur á mótum Laugavegs og Suðurlandsbrautar í gærmorgun. Leigubílar: Gjaldskrá hækku› NEYTENDUR Gjaldskrá leigubifreiða hækkaði um rúm átta prósent í gær og er startgjald leigubíla þá orðið 470 krónur en var 430 áður. Sú breyting hefur orðið eftir að olíugjald var sett á í stað þunga- skatts í sumar að svokölluð vísitala bifreiða er lögð til grundvallar þegar hugað er að breytingum á gjaldskrá leigu-, vöru- eða sendi- bíla en sú breyting kom einna harðast niður á leigubílstjórum. Þótti því ástæða til hækkunar sem nú hefur tekið gildi. - aöe EKKI ER ALLT SEM SÝNIST Langstærstur hluti leigubílstjóra fylgir settum lögum og reglum en dæmi eru um bílstjóra sem aka með farþega án þess að hafa til þess nokkur leyfi. Skákþing Íslands: Hannes Hlífar enn í forystu SKÁK Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari heldur forystunni á Skákþingi Íslands eftir skákir gærdagsins. Hann lagði Sigurð Pál Steindórsson næsta örugglega og sama er að segja um Jón Viktor Gunnarsson sem vann Snorra G. Bergsson. Hannes hefur sjö og hálfan vinning að loknum níu um- ferðum á Skákþinginu en Jón Viktor fylgir fast á hæla honum með sjö vinninga. Þriðji er Stefán Kristjánsson með sex og hálfan vinning. Tvær umferðir eru eftir af Skákþinginu. - ssal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.