Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 70
54 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Þekktir íslenskir tónlistarmenn létusig ekki vanta á tónleika banda-
rísku jaðarsveitarinnar Sonic Youth á
Nasa, enda sveitin ein sú áhrifa-
mesta í rokkinu hin síðari ár. Á
meðal þeirra sem sóttu innblástur í
tilraunakennda tóna Thurston
Moore og félaga voru
Krummi í Mínus,
trommararnir
Gulli Briem og
Sigtryggur Bald-
urssson, félag-
arnir Palli og
Danni úr hljóm-
sveitinni Maus og
Úlfur Chaka, fyrr-
um söngvari í
Stjörnu-
kisa.
Thurston Moore, forsprakki SonicYouth, sem hélt tvenna tónleika
hér á landi á dögunum, skoðaði sig
um í versluninni 12 Tónum daginn
sem síðari tónleikarnir voru haldnir.
Hann er að sjálfsögðu mikill tónlist-
argrúskari, enda hljómsveit hans ein
sú áhrifamesta í rokkinu hin síðari
ár. Moore notaði tækifærið og
keypti sér plöt-
una Transfor-
mer með
öðrum Ís-
landsvini,
Lou Reed.
Einnig
fékk hann
nokkrar
plötur að
gjöf frá 12
Tónum, sem vafalít-
ið höfðu að
geyma fram-
sækna ís-
lenska
tónlist.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Stór
humar
Risarækjurnar komnar
Viðræður eru í gangi um að
flytja þáttinn Sjáumst með
Silvíu Nótt, sem var sýndur á
Skjá einum í sumar við miklar
vinsældir, út fyrir landsstein-
ana.
„Það hafa aðilar haft sam-
band við okkur og við erum að
skoða það,“ segir Gaukur Úlf-
arsson, leikstjóri þáttarins.
„Þetta lítur mjög vel út en svona
hlutir geta samt gufað upp án
nokkurs fyrirvara.“
Að sögn Gauks er einnig ver-
ið að ganga frá samningum um
næstu þáttaröð hér á landi, sem
myndi hefjast í næsta mánuði.
„Efnið byggist að hluta til á við-
tölum sem voru tekin fyrir tölu-
vert löngu, áður en þættirnir
fóru í loftið,“ segir Gaukur, sem
hefur unnið þættina með Ágústu
Evu Erlendsdóttur, öðru nafni
Silvíu Nótt.
Hann er mjög ánægður með
viðtökurnar við fyrstu þáttaröð-
inni. „Þær voru framar okkar
björtustu vonum. Núna er mað-
ur bara að reyna að hlaða batter-
íin. Þetta er gríðarlega mikil
vinna því við erum bara tvö í
þessu,“ segir hann.
Útlendingar vilja Silvíu Nótt
SILVÍA NÓTT Þátturinn Sjáumst með
Silvíu Nótt sló rækilega í gegn í sumar.
Úlfhildur Eysteinsdóttir er um
þessar mundir að vinna að gerð
gagnagrunns um íslenska djass-
leikara. Úlfhildur býr í Rotter-
dam í Hollandi þar sem hún er
að læra hljóðhönnum, sem m.a.
nýtist við vinnslu kvikmynda.
Einnig starfar hún þar í borg í
djassklúbbi þar sem hún hljóð-
blandar fyrir þá listamenn sem
þar koma fram.
„Ég hef lengi haft áhuga á
djassi,“ segir Úlfhildur um
verkefnið. „Pabbi og mamma
hlustuðu mikið á djass og síðan
er ég líka að vinna á þessum
skemmtistað. Vinur minn er líka
að læra forritun þannig að ég
ákvað að láta reyna á þetta.“
Úlfhildur, sem sjálf spilar lít-
illega á píanó, skráir niður allar
þær upplýsingar sem hún kemst
yfir um djassleikarana á meðan
vinur hennar hannar síðuna fyr-
ir hana. „Ég er komin vel á veg
en til að sem fæstir gleymist
vantar mig fleiri upplýsingar,
m.a. plötuumslög með íslensk-
um djassistum. Vonandi endar
þetta síðan í heimasíðu sem
verður öllum til gagns og góðs,“
segir hún.
Saxófónleikarinn Sigurður
Flosason er umsjónarmaður
verkefnisins en undanfarna tvo
mánuði hefur Úlfhildur verið að
viða að sér hinum ýmsu upplýs-
ingum. Hún segist hafa fengið
mjög góð viðbrögð við verkefn-
inu, enda afar þarft framtak að
skrásetja alla þá djassista sem
hafa sett svip sinn á íslenskt
menningarlíf í gegnum árin.
Næst á dagskrá hjá Úlfhildi
er að flakka á milli djassista og
þeirra sem þekkja til í faginu og
fá hjá þeim myndir og upplýs-
ingar sem gætu nýst henni. Úlf-
hildur, sem fékk styrk frá Ný-
sköpunarsjóði, FÍH og FTT til
verkefnisins, vonast eftir hjálp
almennings til að fullvinna
gagnagrunninn og skilur hér
eftir netfang sitt, ulfhild-
ur@gmail.com, fyrir þá sem
vilja leggja sitt af mörkum.
freyr@frettabladid.i.s ÚLFHILDUR EYSTEINSDÓTTIR Úlfhildur býr í Rotterdam í Hollandi þar sem hún lærir
hljóðhönnun.
ÚLFHILDUR EYSTEINSDÓTTIR: SAFNAR SAMAN DJÖSSUÐUM UPPLÝSINGUM
Miðlægur djassgrunnur
FRÉTTIR AF FÓLKI
... fær Þórey Edda Elísdóttir fyrir
að taka lífinu ekki of alvarlega
og hlæja bara að kjaftasögunum
um sig og Albert fursta.
HRÓSIÐ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Skíði Konungur vetraríþróttanna. Skíðafólk líður um brekk-urnar eins og englar með sína straumlínulöguðu líkams-
stöðu og glæsilega fas. Það er líka áberandi smart í tauinu í
aðsniðnum skíðabuxum og Head-jökkum. Skíðafólk eltist
heldur ekki við tískubólur því það sýnir sinni tignarlegu
íþrótt tryggð.
Viðbein Bringan er mjög þokkafullur enlátlaus staður. Það er miklu fallegra að
sýna viðbeinin og efripart bringunnar en að draga alla at-
hyglina að skorunni fyrir neðan. Svo vita allar sannar
dömur að það sem ekki sést fyrir allra augum er þeim
mun meira spennandi að finna.
Of víð föt Það hentar kannski ekki öllum að vera í of víðumfötum en þegar það er gert rétt er það svakalega töff. Snið
flíkanna liggur öðruvísi ef þær eru of stórar og þá myndast
skemmtilega ósamhverf lína í dressinu. Því stærra, því betra
eru einkunnarorðin en þetta á helst við um kjóla og efriparta
því buxur geta orðið kjánalegar ef þær passa illa.
Snjóbretti Hvenær ætlar þessi bóla eiginlega aðspringa? Snjóbrettið kemst ekki í hálfkvisti við skíðin
hvað varðar reisn og stöðu. Það er eitthvað svo unglinga-
legt við snjóbrettið að fullorðið fólk verður afkáralegt á
því. Snjóbrettafólk klæðist líka einstaklega gelgjulegum fötum í sínum poka-
buxum og blöðrustökkum. Svo ekki sé nú talað um líkamsstöðuna því
blessað fólkið lítur út eins og það sé að reyna að ganga örna sinna.
Áreynsluskora Hvenær ætla konur að læra að tvær saman-kreistar kúlur sem gægjast upp úr hálsmálinu eru EKKI kyn-
þokkafullar. Þrýstibrjóstahaldarar seljast sem aldrei fyrr þó þeir
séu alveg hrikalega hallærislegir og allir viti að þetta sé allt í
plati. Áreynsluskoran dregur bara að sér óeftirsóknarverða athygli, því þeir
sem eitthvað er varið í eru ekki að spjalla við þig út af skorunni.
Of þröng föt Fyrir utan hversu óþægilegt það er að finnabuxnastrenginn skerast inn í mittið eða ermarnar þrengja
að í handarkrikunum, þá er þetta bara ekki smart lengur. Þó
þröngar gallabuxur fari aldrei úr tísku er fátt annað sem má
vera þröngt núna. Hættum að troða okkur í fötin og halda inni
maganum og öndum loksins léttar.
INNI ÚTI
LÁRÉTT 2 afl 6 íþróttafélag 8 fiskur 9 at
11 skammstöfun 12 ráðagerð 14 krapi 16
upphrópun 17 til og ... 18 mælieining á
hljóðstyrk 20 smáorð 21 halda.
LÓÐRÉTT 1 þurrka út 3 þverslá á siglutré
4 smíða óvandlega 5 einkar 7 vatnselgur
10 eldsneyti 13 harpix 15 óskuðu 16
margsinnis 19 á líðandi stundu.
LAUSN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
LÁRÉTT:2Orka,6Fh,8Áll,9Mak,11Al,
12Áform,14Slabb,16Oj,17Frá, 18
Fón,20Að,21Trúa.
LÓÐRÉTT:1Afmá,3Rá,4Klambra,5All,
7Hafsjór, 10Kol, 13Raf, 15Báðu,16
Oft,19Nú.