Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 32
Vegakort
Fátt er mikilvægara á ferðalögum en vegakort. Kynntu þér áður en lagt er af stað
hvaða kort eru best, en yfirleitt er hægt að fá þau í handhægum bókum. Farðu vel yfir
kortið áður en lagt er af stað og settu lítinn límflipa á þá síðu sem mest er notuð.[ ]
Hjartað varð eftir í Heidelberg
Heidelberg er ein fallegasta borg Þýskalands.
Þessi rómantíska borg er
þægilegur áfangastaður fyrir
íslenska ferðamenn.
Gamalt þýskt lag fjallar um
það hversu auðvelt það sé að
glata hjarta sínu í Heidelberg.
Og það kemur engum á óvart
sem þangað hefur komið. Heidel-
berg slapp nánast algerlega við
þá eyðileggingu sem margar
borgir í Þýskalandi lentu í undir
lok síðari heimsstyrjaldarinnar
og er einstaklega falleg borg,
troðfull af sögu og menningu.
Þar er hægt að slaka á í fallegu
umhverfi en einnig býður borgin
upp á menningu og svo má ekki
gleyma því að borgin er ein sú
gönguvænasta í Evrópu og marg-
ar fallegar gönguleiðir í ná-
grenninu.
Heidelberg-kastali er einn sá
frægasti í Evrópu og fallegur
líka. Hver einasti steinn á sér
sögu og því er hægt að dunda sér
þar tímunum saman. Hægt er að
ganga upp að kastalanum en
fyrir fótfúna gengur kláfur upp
bratta brekkuna.
Háskólinn í
Heidelberg er sá
elsti í Þýska-
landi og í
kringum hann
hafa skapast
m a r g a r
s k e m m t i l e g a r
hefðir. Þar má til
dæmis finna
stúdentafangels-
ið en þar var
óþekktarormum
úr hópi háskóla-
nema stungið inn
fyrir minnihátt-
ar afbrot eins og að viðhafa
drykkjulæti um lágnættið.
Gaman er að rölta
um miðbæinn, kíkja
í búðir eða bara
drekka í sig and-
rúmsloftið.
Svo er
n a u ð s y n
að setjast
og kneyfa
öl, snæða
pylsur og fá sér
svo dýrlega
bollu eða köku í
eftirrétt en í
Heidelberg má fá
kostagóðar kökur.
H e i m s p e k i n g a l e i ð
dregur nafn sitt af gáfumennum
og spekingum sem eiga að hafa
rölt þennan stíg og skipst á
ódauðlegum skoðunum. Á leið-
inni er einstakt sjónarhorn yfir
borgina en stígurinn liggur upp á
Helgafell (Heiligenberg) borgar-
búa. Meðfram stígnum vaxa
jukkupálmar, sítrónutré og aðrar
Miðjarðarhafsplöntur. Frábær
dagsferð.
Það er afar auðvelt fyrir Ís-
lendinga að komast til Heidel-
berg þar sem aðeins tekur
klukkustund að fara með lest
beint frá Frankfurt-flugvelli til
borgarinnar. Bæði millilanda-
flugfélögin íslensku fljúga beint
til Frankfurt.
brynhildur@frettabladid.is
Þessi stúdent hefur greinilega einhvern
tíma drukkið of mikið en hann prýðir
stúdentakrána Zum Seppl.
Varla er hægt að heim-
sækja Suður-Þýskaland án
þess að gæða sér á
bratwurst og súrkáli.
Heimspekingaleiðin er bæði falleg og
fróðleg gönguleið sem býður upp á ein-
stakt útsýni.
Hvert sem litið er má sjá gömul hús með
langa og mikla sögu.
Hægt er að eyða heilum degi í að skoða kastalann í Heidelberg, sem er byggður á löng-
um tíma og endurspeglar því ýmis tímabil í sögunni.