Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 21

Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 21
Var þá nýr saksóknari skipaður og gaf hann út ákærur á hendur sautján mönnum í nóvember 1988. Dómar falla Ákærurnar voru í ellefu köfl- um og skiptu ákæruliðirnir mörg- um tugum. Meðal annars var ákært fyrir rangfærslu skjala, skjalafals, fjársvik, fjárdrátt, hilmingu og bókhaldsóreglu og þótti ákæruvaldinu til dæmis brotið gegn hlutafélagalögum, al- mennum hegningarlögum og lög- um um löggilta endurskoðendur. Krafist var þungra dóma yfir ákærðu sem höfnuðu flestum eða öllum efnum ákærunnar. Sumarið 1990 féll dómur í Sakadómi Reykjavíkur og var hann í miklu ósamræmi við vilja ákæruvaldsins. Þrír ákærðu hlutu dóma; tveir hlutu nokkurra mán- aða skilorðsbundinn fangelsisdóm og þriðji maðurinn var dæmdur til greiðslu sektar. Fjórtán sak- borningar voru sýknaðir. Í kjölfarið sagði saksóknari sig frá málinu og var annar skipaður í hans stað. Afréð hann að áfrýja dómunum til Hæstaréttar og að auki einum sýknudómi en undi sýknu þrettán hinna ákærðu sem um leið voru lausir allra mála. Að- eins var því hluta upphaflegu ákærunnar áfrýjað. Hæstiréttur felldi dóm sinn 5. júní 1991 og tók hann aðeins til hluta ákærunnar. Dómar voru þó þyngdir frá því sem Sakadómur úrskurðaði. Einn dómaranna skil- aði sératkvæði og taldi að sýkna bæri ákærðu af enn fleiri ákæru- liðum en meirihluti dómsins ákvað. Ekki lauk Hafskipsmálinu fyr- ir fullt og allt með dómi Hæsta- réttar. Einn dæmdu höfðaði mál á hendur ríkinu til bótagreiðslu vegna gæsluvarðhaldsins en hafði ekki erindi sem erfiði. Þá var skiptum þrotabúsins enn ólokið. Margt hefur verið sagt og skrifað um Hafskipsmálið og sumt af því rifjað upp í tengslum við Baugsmálið sem nú er fyrir Héraðsdómi. Hvort líkindi séu með málunum tveimur skal ósagt látið hér en víst er að bæði málin hafa vakið mikla athygli enda um- fang þeirra gríðarlegt og sakborn- ingar áherandi í samfélaginu. Heimildir: Bók Helga Magnús- sonar: Hafskip – gjörningar og gæsluvarðhald, Ísland í aldanna rás í ritstjórn Illuga Jökulssonar, hæstaréttardómur númer 19 frá 1991, Helgarpósturinn, Morgun- blaðið og samtöl við málsaðila. LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005 21 „Þeir sólunduðu því í 40 þús- und króna nætur á fínustu lúx- ushótelum veraldar, í 800 þús- und króna hótelreikninga, í tíu metra breiðar drossíur með bar og sjónvarpi og borðaklæddum einkabílstjórum, í golfkúlur með sérstöku Hafskipsmerki og Concorde-ferðalög fram og aft- ur um heiminn, að ógleymdum þeim veislum sem sagt er að þeir hafi haldið forystu Sjálf- stæðisflokksins með reglu- bundnum hætti hér á landi.“ Ólafur Ragnar Grímsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, 10. desember 1985. Fóru forráðamenn fyrirtæk- isins vísvitandi með blekkingar þegar þeir á aðalfundi félagsins héldu fram velgengni félagsins á Atlantshafssiglingaleiðinni sem skilaði góðum arði og að áætlanir hafi í megindráttum staðist? Það er allsérkennileg staða að ritstjóri Helgarpósts- ins hafði á þeim tíma meiri og betri vitneskju um ástand og horfur í Atlantshafssiglingun- um en forráðamenn Hafskips. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Alþýðuflokksins, 12. desember 1985. „Hafskipamálið er aðeins eitt dæmi um þetta, e.t.v. óvenju ruddalegt, þar sem allt virðist fara saman, svo að orð fyrrverandi starfsmanns fyrir- tækisins Hafskipa séu notuð, „mikilmennskubrjálaði, græðgi einstaklinga og tækifæris- mennska“. Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins, 12. desember 1985. „Það er eindregin skoðun okkar sjálfstæðismanna að þetta mál beri að rannsaka ofan í kjölinn og ekkert undan að draga. [...] Daglega eiga sér stað mikil átök úti í þjóðlífinu, í viðskiptalífinu, í menningarlíf- inu og hvar sem drepið er niður fæti. Þar verður hver einstak- lingur að fá að njóta sín en jafn- framt bera fulla ábyrgð á sínum gerðum og þá sjálfstæðismenn ekki síður en aðrir. Þetta er grundvallaratriði í augum okk- ar sjálfstæðismanna og í þessu liggur styrkur okkar hugmynda- fræði og okkar flokks. Hafskips- málið er engin undantekning í þessu efni.“ Birgir Ísleifur Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, 12. desember 1985. JÓNATAN ÞÓR- MUNDSSON LAGAPRÓFESSOR Var skipaður sérstak- ur saksóknari í mál- inu. HALLVARÐUR EIN- VARÐSSON Var fyrst rannsóknarlögreglu- stjóri og svo ríkissak- sóknari. ALBERT GUÐ- MUNDSSON Var stjórnarformaður Hafskips og formaður bankaráðs Útvegs- bankans. HALLDÓR HALL- DÓRSSON Blaða- maður og ritstjóri Helgarpóstsins. RAGNAR H. HALL BORGARFÓGETI Skiptaráðandi Haf- skips. MARKÚS SIGUR- BJÖRNSSON BORGARFÓGETI Skiptaráðandi Haf- skips. JÓN MAGNÚSSON HRL. Verjandi Ragn- ars Kjartanssonar. GUÐMUNDUR INGVI SIGURÐS- SON HRL. Verjandi Björgólfs Guðmunds- sonar. JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON HRL. Verjandi Helga Magnússonar. JÓNAS A. AÐAL- STEINSSON HRL. Verjandi Páls Braga Kristjónssonar. H A FS K IP Á A LÞ IN G I

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.