Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,87 64,17
114,66 115,22
77,72 78,16
10,424 10,484
9,739 9,797
8,317 8,365
0,5775 0,5809
93,34 93,9
GENGI GJALDMIÐLA 19.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
108,9703 -0,01%
4 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Marokkói dæmdur fyrir að vera félagi í al-Kaída:
S‡kna›ur af hlutdeild í hry›juverkum
HAMBORG, AP Dómstóll í Hamborg
dæmdi í gær Mounir el Motassa-
deq, marokkóskan mann sem bú-
settur er í Þýskalandi, í sjö ára
fangelsi fyrir að vera félagi í al-
Kaída hryðjuverkasamtökunum.
Hann var hins vegar sýknaður af
þátttöku í hryðjuverkaárásunum
11. september 2001.
Motassadeq var á sínum tíma
fundinn sekur um öll ákæruatriði,
þar á meðal 3.000 ákærur vegna
þeirra sem létust í hryðjuverka-
árásunum 11. september. Áfrýj-
unardómstóll vísaði hins vegar
málinu aftur heim í hérað þar sem
talið var að Motassadeq hefði ekki
hlotið sanngjarna málsmeðferð.
Dómararnir í Hamborg kom-
ust að þeirri niðurstöðu í gær að
Motassadeq hefði verið félagi í
al-Kaída sellunni í borginni þar
sem flugmennirnir Mohammad
Atta, Marwan al-Shehhi og Ziad
Jarrah voru einnig. Þeir töldu
hins vegar ekki hafa verið sýnt
fram á að hann hefði haft ein-
hverja vitneskju um árásirnar
mannskæðu. Dómararnir gagn-
rýndu bandarísk stjórnvöld fyr-
ir að hafa einungis látið þeim í
hendur samantekt á yfirheyrsl-
um yfir al-Kaída liðum í Banda-
ríkjum vegna málsins, en ekki
sjálfar frumskýrslurnar.
-shg
Mannekla hefur slæm
áhrif á leikskólastarfi›
LEIKSKÓLAR „Vandamálið er ekki
nýtt og ástandið hefur raunar var-
að lengi,“ segir Jódís Hlöðvers-
dóttir, textílhönnuður og leiðbein-
andi á leikskólanum Sjónarhóli í
Grafarvogi. Tíu börn verða send
heim úr leikskólanum á hádegi
dag hvern frá og með mánudegi
vegna manneklu.
„Við erum of fáar og getum
þarafleiðandi ekki byggt upp jafn
gott starf né stundað þá mark-
vissu vinnu sem við vildum,“
segir Jódís sem telur af og frá að
hægt sé að leysa vandamálið með
því að fá eldri borgara eða for-
eldra til starfa inni á leikskólun-
um.
„Það vill brenna við að höfuð-
máli skiptir hverjir sjá um börnin
stóran hluta dagsins,“ segir Jódís.
„Leikskólaárin eru helstu mótun-
arár barnanna og leikskólar eru
menntastofnanir eins og aðrir
skólar í borginni.“
Jódís segir einu færu leiðina að
hækka launin að fá hæft fólk til
starfa inn á leikskólana. „Mjög
margir hafa áhuga á því að starfa á
leikskóla enda eru þeir yndislegir
vinnustaðir. Fólk hefur hins vegar
einfaldlega ekki efni á því,“ segir
Jódís.
Nína Margrét Grímsdóttir, for-
eldri þriggja ára barns á Sjónar-
hóli, segir foreldra alla af vilja
gerða til að skilja aðstöðu starfs-
fólks leikskólans. Hún lýsir þó
undrun sinni á að vandamálið komi
upp á nær hverju ári og telur það
helgast af því að launin séu of lág.
„Framtíðarlausn á málinu væri
að hækka laun faglærðra leikskóla-
kennara en ekki að ráða fleira
ófaglært starfsfólk,“ segir Nína
Margrét. „Það skiptir miklu máli
hver sér um börnin á daginn, ef
einhvers staðar þarf að vanda til
verka er það til starfa með börnun-
um.“
Stefán Jón Hafstein, formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar,
segir kjarasamninga ófaglærðs
starfsfólks lausa í haust. Ekki komi
til greina að bregðast við manneklu
með því að hækka launin á öðrum
grundvelli en kjarasamningum.
„Það er auðvitað mjög slæmt
mál að mannekla skuli koma upp á
hverju hausti,“ segir Stefán Jón.
„Þegar til lengri tíma er litið er
hins vegar ljóst að krafan snýr að
því að mennta fleiri leikskólakenn-
ara. Þannig þyrftum við ekki að
reiða okkur á ófaglært starfsfólk.“
helgat@frettabladid.is
Disney gagnrýnt:
Sagt grei›a
smánarlaun
HONG KONG Walt Disney-fyrirtækið
hefur fyrirskipað rannsókn á ásök-
unum á hendur verksmiðjum í Kína
sem framleiða ýmsan varning fyrir
fyrirtækið. Verksmiðjurnar eru
sakaðar um að borga verkamönnum
brot af lágmarkslaunum, auka á þá
vinnuálag og falsa launaseðla til að
villa um fyrir verkalýðsfélögum.
Ásakanirnar komu fram í
skýrslu samtaka í Hong Kong sem
berjast fyrir bættari kjörum verka-
manna. Þar kemur fram að starfs-
menn verksmiðjanna fá greitt sem
nemur tuttugu krónum á tímann.
Disney hefur þegar heitið því að
lagfæra þau atriði sem misbrestur
er á. ■
Grundfos-fyrirtækið:
Fengu verk
eftir mútur
DANMÖRK Rannsóknarnefnd Sam-
einuðu þjóðanna hefur krafið
yfir sjötíu dönsk fyrirtæki um
skýringar á samskiptum sínum
við Íraksstjórn meðan á olíu-
söluáætlun Sameinuðu þjóðanna
stóð.
Grundfos, eitt stærsta fyrir-
tæki Danmerkur, hefur þegar
viðurkennt að tveir starfsmenn
þess mútuðu íröskum embættis-
mönnum til að fá samninga um
framleiðslu á olíudælum.
Ekki er ljóst um hvaða fjár-
hæðir er að ræða en þær eru
taldar miklar þar sem dönsk
fyrirtæki gerðu samninga fyrir
30 milljarða íslenskra króna á
þessum tíma við Íraka.
Olíusöluáætlun Sameinuðu
þjóðanna í Írak var í gildi á ár-
unum 1991-2003 en hún ein-
kenndist öðru fremur af mikilli
spillingu. ■
Boranir í Norðursjó:
Hydro fann
risagaslind
NOREGUR Norska orku- og iðnfyr-
irtækið Hydro staðfesti í gær að
það hefði fundið miklar gaslind-
ir undan ströndum Noregs.
Tímaritið Upstream, sem
fjallar um olíumál, sagði frá
fundinum og áætlaði að gasið
sem vinna mætti úr lindunum
væri í það minnsta 300 milljarða
króna virði. Gaslindirnar eru í
norðanverðum Norðursjó, 687
metra undir sjávarmáli og 384
metra undir hafsbotninum.
„Við erum mjög ánægð með
niðurstöður tilraunaborananna.
Umfangsmiklar lindir hafa
fundist og við áformum að hefja
vinnslu sem fyrst. Nú verðum
við hins vegar að meta gögnin,“
sagði Lars Christian Alsvik, hjá
Hydro. ■
MO MOWLAM Fyrrum Írlandsmálaráðherra
í ríkisstjórn Tonys Blair sem lést í gær.
Fyrrum breskur ráðherra:
Mo Mowlam
fallin frá
LUNDÚNIR, BBC Fyrrverandi Írlands-
málaráðherra Bretlands Mo
Mowlam lést í gær, 55 ára að aldri.
Hún hafði verið veik um tíma og
þjáðst af völdum heilaæxlis. Hún
var hins vegar flutt á spítala eftir að
hafa dottið á heimili sínu fyrr í mán-
uðinum. Hún komst aldrei aftur til
meðvitundar eftir fallið.
Mowlam var einn vinsælasti
stjórnmálamaður Verkamanna-
flokksins og er einna þekktust fyrir
hlut sinni í friðarviðræðunum í Ír-
landi í lok tíunda áratugarins. Árið
1999 var henni skipt út fyrir Peter
Mandelson sem tók við málefnum
Írlands. Hún afþakkaði hins vegar
stól heilbrigðisráðherra og lét loks
af þingmennsku 2001. ■
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Í skólann á ný
Skólataska
Verð 2.990kr.
VEÐRIÐ Í DAG
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Flytja
þurfti einn á slysadeild með höf-
uðáverka eftir þriggja bíla árekst-
ur á gatnamótum Hjalteyrargötu
og Tryggvabrautar á Akureyri á
ellefta tímanum í gærmorgun.
Tveir bílanna skemmdust mikið og
voru dregnir af vettvangi með
kranabíl.
MOUNIR EL MOTASSADEQ
Motassadeq sýndi engin svipbrigði þegar
dómarinn tilkynnti honum að hann myndi
dúsa í sjö ár í fangelsi.
M
YN
D
/A
P
Lei›beinandi á leikskólanum Sjónarhóli segir manneklu valda flví a› ekki sé
hægt a› stunda markvissa vinnu í leikskólanum. Foreldri er undrandi á flví a›
vandamál vegna manneklu komi upp á hverju ári.
JÓDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR OG BÖRNIN Á SJÓNARHÓLI Textílhönnuður og leiðbeinandi á leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi segir mann-
eklu valda því að ekki sé hægt að byggja upp jafn gott starf í leikskólanum og starfsmenn þar vildu.