Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 6
6 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Reynt að loka fyrir gerlamenguð matvæli:
Matvörur frá Taílandi banna›ar
HEILBRIGÐISMÁL Umhverfisstofnun
hyggst leggja til við Umhverfis-
ráðuneytið að sett verði tíma-
bundið innflutningsbann á allar
kryddjurtir, aspas, laufgrænmeti,
baunir og rætur frá Tælandi, að
sögn Elínar Guðmundsdóttur for-
stöðumanns matvælasviðs.
Ástæðan er gerlamengun sem
fundist hefur við mælingar á vör-
um þaðan.
„Við viljum ekki hafa gerla-
menguð matvæli hér á markaði,“
segir Elín. „Salmonella, kólígerlar
og saurkólígerlar hafa verið að
greinast í óásættanlegu magni.
Þetta er þó vonandi tímabundið.“
Nýverið tóku starfsmenn um-
hverfissviðs Reykjavíkurborgar
sýni af grænum smáspergli frá
Taílandi sem var til sölu í verslun-
um hér. Salmonella greindist í
vörunni og var dreifing hennar
stöðvuð og hún tekin úr sölu.
Dreifingar- og sölubann er nú
þegar á 21 tegund kryddjurta frá
Taílandi vegna mengunar sem
fundist hefur, að sögn Helgu G.
Bjarnadóttur hjá Umhverfissviði.
Má þar nefna kóríander, myntu-
lauf og basilikum. - jss
Deilt um breytingar
á lei›akerfi Strætó
Björk Vilhelmsdóttir dró til baka tvær tillögur sínar um breytingar á fljónustu
strætisvagna á fundi stjórnar Strætó bs. í gær. Meirihluti stjórnarinnar horfir í
flann kostna› sem breytingarnar hafa í för me› sér.
SAMGÖNGUR Ágreiningur í stjórn
Strætó bs. á fundi í gær varð til
þess að Björk Vilhelmsdóttir
stjórnarformaður dró til baka
tvær tillögur sínar um breyting-
ar á þjónustu strætisvagna.
Meirihluti stjórnar telur að
kostnaður við breytingar á þjón-
ustutíma, leiðakerfi og tímatöfl-
um verði of mikill.
„Þarna var tekist á um hlut-
ina,“ sagði Björk eftir fundinn.
„Við vorum bæði að fara yfir
reynsluna af nýja kerfinu, tillög-
ur um lengdan
þjónustutíma
og breytingar á
tímatöflum og
leiðum. Ákveð-
ið var að fela
framkvæmda-
stjóra að
breyta tíma-
töflunum eins
og þyrfti og
koma með til-
lögur að breyt-
ingum á leið-
um.“
Áætlað er að
lenging á akst-
urstíma Strætó
á öllum leiðum
til miðnættis
kosti 40 millj-
ónir króna á
ári.
Spurð nánar
út í efni tillagn-
anna tveggja
sem hún lagði
fram, kvaðst
Björk ekki get-
að greint frá
því að svo
stöddu þar sem hún hefði dregið
þær til baka á fundinum. Ákveð-
ið hefði verið að fresta ákvörðun-
um um viku, sem væri í sjálfu
sér ásættanlegt.
„En ég fell ekki frá því að ég
tel að það eigi að breyta þjón-
ustutímanum,“ ítrekar hún.
Ármann Kr. Ólafsson, stjórn-
armaður í Strætó bs., segir að
stjórnin hafi viljað leyfa málinu
„að anda aðeins,“ þannig að fyrst
væri einu breytt, síðan öðru og
svo koll af kolli með tilheyrandi
kostnaði í hvert sinn.
„Fyrir mitt leyti finnst mér
að taka þurfi við öllum athuga-
semdum, fara yfir þær og gera
síðan heildstæðar breytingar,“
segir hann. „Nú er til dæmis að
koma inn stór hópur notenda
sem er skólafólkið. Mér finnst
ekkert sjálfgefið að við lengjum
þjónustutímann til 12 á mið-
nætti. Við höfum úr ákveðnum
fjármunum að spila. Spurningin
er hvort breyting á einum lið
kosti ekki endurskoðun á ein-
hverju öðru.“
Ármann segir skyldur stjórn-
arinnar að fara vel yfir málið og
gera síðan eina heildræna breyt-
ingu sem gagnist sem flestum.
jss@frettabladid.is
Manntjón í eldsvoðum:
Nær 50 látnir
á 25 árum
BRUNAVARNIR Meira manntjón varð
vegna eldsvoða hér á landi á síðasta
ári en sem nemur meðaltali síðustu
tuttugu og fimm ára. Þrír fórust í
eldsvoðum í fyrra en tveir að meðal-
tali árlega frá 1979. Þó er eru
banaslys af þessum völdum fátíðari
hér en á öðrum Norðurlöndum.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
Brunamálastofnunar fyrir árið 2004.
Alls hafa fjörutíu og átta farist í
eldsvoðum hér á landi frá því 1979
og þar af eru karlmenn í miklum
meirihluta eða 75 af hundraði.
Bætt brunatjón námu 1.240 millj-
ónum í fyrra sem er rúmum tvö
hundruð milljónum yfir meðaltali.
- jse
NOREGUR
AMMA RÆKTAÐI KANNABIS
Barnabörnum ríflega áttræðrar
konu brá heldur betur í brún þeg-
ar þau fundu kannabisplöntu í
fullum blóma í beðinu hennar.
Konan vissi ekki um hvers konar
plöntu var að ræða og hlúði því
að henni með grænum fingrum
sínum. Lögregla gerði plöntuna
upptæka en talið er að hún hafi
sprottið upp af fuglafræi.
BANKARÁN Í KROKSTADELVA
Øst-bankinn í bænum Kroksta-
delva var rændur í gærmorgun og
leitar nú lögregla ræningjanna.
Ekki er vitað hversu mikið fé
þeim tókst að hafa á brott með sér.
Er rétt að vísa mótmælendum
Kárahnjúkavirkjunar úr
landi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að flytja Reykjavíkurflugvöll
út á Löngusker?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
39,2%
60,8%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
KÓRÍANDER Ein þeirra kryddjurtateg-
unda frá Taílandi sem er í dreifingar-
og sölubanni hér á landi.
20-80%
Laugardag kl. 10:00 - 18:00
Sunnudag kl. 12:00 - 18:00
afsláttur af
sýningarhúsgögnum og
lítið útlitsgölluðum
húsgögnum
2aðeins dagar
20.- 21. ágúst
SALALAGER-
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ
ÞJÓNUSTUTÍMI Lenging á aksturstíma strætisvagna stendur í meirihluta stjórnar Strætó bs.
vegna aukins kostnaðar upp á 40 milljónir króna.
ÁRMANN KR. ÓLAFS-
SON Vill heildrænar
breytingar á þjónust-
unni.
BJÖRK VILHELMS-
DÓTTIR Vill breytingar
á einstökum þáttum
strax.
MENNTUN Leiða má líkum að því að
um 105 þúsund einstaklingar hefji
nám í skólum landsins í næstu
viku en þá hefja flestir skólar
starfsemi sína eftir sumarfrí. Í
fyrrahaust voru nemendur tæp-
lega 104 þúsund talsins á öllum
skólastigum en allmargir skólar
hafa tilkynnt um fjölgun nemenda
frá ári til árs.
Hagstofa Íslands heldur utan um
fjölda námsmanna sem og fjölda
þeirra Íslendinga sem sækir nám
erlendis. Samkvæmt þeirra tölum
voru rúmlega 44 þúsund einstak-
lingar í grunnskólum landsins á síð-
ustu haustönn. Um 24 þúsund námu
við mennta- og fjölbrautarskóla eða
aðra sérskóla á menntaskólastigi.
Tæp 17 þúsund börn voru í leikskól-
um landsins og rúmlega tvö þúsund
sóttu nám erlendis.
Lítilleg aukning er fyrirsjáanleg
í grunnskólum landsins miðað við
fjölda barna á grunnskólaaldri og
fjöldi þeirra er leggja stund á nám í
mennta- og háskólum eykst einnig.
Fjöldi nýnema við Háskólann í
Reykjavík hefur aldrei verið meiri
og sömu sögu er að segja af Háskól-
anum á Akureyri. - aöe
Nemendur snúa aftur í skóla í næstu viku eftir sumarfrí:
Li›lega 100 flúsund á skólabekk
RYKIÐ DUSTAÐ AF SKÓLABÓKUNUM Flestir skólar landsins verða settir í byrjun næstu viku
og munu um 105 þúsund einstaklingar hefja nám af einhverju tagi þessa haustönn.
DANMÖRK
ÚLDNAR PYLSUR COOP, stærsta
smásölufyrirtæki í Danmörku,
hefur ákveðið að hætta pylsugerð
í verslunum þess þar sem mis-
brestur er á að heilbrigðiskröfur
séu uppfylltar. Ástandið er sagt
sérlega slæmt á Jótlandi þar sem
pylsurnar eru oft úldnar.
BRETLAND
TÓLF ÁRA SAKAÐUR UM NAUÐG-
UN Tólf ára gamall piltur frá
Wigan, nærri Manchester í
Englandi, hefur verið ákærður
fyrir nauðgun og aðra kynferðis-
lega misnotkun. Honum er gefið
að sök að hafa þvingað átta ára
gamlan pilt til samræðis við sig.