Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 28
20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Brekkustígur 10 og Kaplaskjóls-
vegur 27, 1962 – 1966
Frumbernska. Of mikil fortíð til
að ég muni eftir að hafa búið
þarna. Þessar götur og þessi hús
eru þó enn til.
Miðbraut 10, Seltjarnarnesi,1966
– 1970
Skýrasta minningin frá þessum
stað er að hafa verið í tindátaleik á
stofugólfinu og hlustað á Þrjú á
palli í útvarpinu syngja um Jörund
Hundadagakonung á meðan ég
renndi glerkúlum eftir gólfinu til
að fella tindátana. Þarna lærði ég
líka að hjóla á hjóli sem vinur minn
stal fyrir mig í klukkustund eða
svo, eða nógu lengi til að ég gæti
lært á það. Mér tókst að hjóla nið-
ur Miðbrautina en var ekki eins
fljótur að læra að bremsa því ég
rann alla leið ofan í fjöru og út í
kaldan sjóinn við Suðurströndina.
Tómasarhagi 22, Reykjavík, 1970
– 1975
Jarðhæðin. Þarna eignaðist ég
fyrsta plötuspilarann minn, ein-
hvers konar ferðaapparat. Fékk
líka hamstur en hann hvarf á bak
við ofninn undir glugganum og
sást aldrei aftur. Ljósbláir veggir
og eitthvað mjög appelsínugult í
herberginu, eitthvað sem ekki
hefur varðveist á ljósmyndum.
Hagamelur 26, Reykjavík, 1975 –
1979
Efsta hæð. Mitt á milli Melabúð-
arinnar og Melaskólans. Brúnir
veggir í herberginu og svartmál-
að loft. Þaðan á ég margar af mik-
ilvægustu minningum mínum,
enda held ég að ég hafi orðið til á
þessum stað, ef mér leyfist að
nota svo hástemmt orðalag.
Tómasarhagi 22, Reykjavík, 1979
– 1981
Af sérstökum ástæðum, eins og
sagt er, flutti ég aftur í sama hús-
ið við Tómasarhagann, í þetta sinn
á efstu hæðina.
Stjarnan, verbúð, Neskaupstað,
sumar 1981
Það var mjög sérstök tilfinning að
standa í vinnugallanum í frystihús-
inu og heyra spilað í útvarpinu lag
sem maður hafði sjálfur tekið þátt
í að hljóðrita á plötu fyrr um vorið.
Það var eitt af einnar mínútu lög-
um Purrks Pillnikk. Mér er líka
mjög minnistætt þegar glansandi
falleg Mercedes Benz-bifreið rann
inn á frystihúsplanið og út úr henni
steig Hjörleifur Guttormsson.
Vesturgata 53b, Reykjavík, 1982
– 1983
Gamalt timburhús sem var rifið
fyrir mörgum árum, eina húsið
sem ég hef búið í sem hefur verið
rifið. Á sama tíma og ég bjó þar
var hljómplötuútgáfan Grammið í
kjallaranum, og þar var ansi
margt að gerast.
Garðastræti 14, Reykjavík, 1983
– 1984
Steinhús á horni Bárugötu, beint á
móti Unuhúsi. Sigtryggur Bald-
ursson bjó á sömu hæð, í hinni
íbúðinni á hæðinni. Við höfðum
ekki miklar spurnir hvor af öðr-
um á þessum tíma, enda tilheyrð-
um við gjörólíkum menningaraf-
kimum, hljómsveitunum Purrki
Pillnikk og Þey, algerlega grun-
lausir um að við myndum seinna
stjórna saman hinni frægu
Jazzhljómsveit Konráðs Bé, ein-
hvern tíma í kringum 1990.
Mánagata 14, Reykjavík, 1984
Á þeim stutta tíma sem ég bjó
þarna fannst mér ég oft vera
staddur í söngtexta
eftir Megas, ekki síst
textanum Komdu og
skoðaðu í kistuna
mína. Ég var áskrif-
andi að Þjóðviljanum á
þessum tíma og reykti
Prince Albert. Ég finn
enn þá ilminn af
Prince Albert-reykn-
um og man enn þá ým-
islegt sem stóð í Þjóð-
viljanum.
Calle San Patricio 8 –
12, Salamanca, Spáni,
haustið 1984
Mikil upplifun að
verða allt í einu há-
skólaborgari í einn
mánuð, og búa í íbúð
með þremur systrum
frá Maldíveyjum.
Vallarbraut 7, Sel-
tjarnarnesi, 1984 –
1985
Á Seltjarnarnesinu, af
öllum stöðum, heyrði
ég Heaven knows I’m
miserable now í fyrsta
sinn. Það er ógleymanleg stund,
sérstaklega vegna þess að á þess-
um tíma hafði maður lært að njóta
þess að vera miserable.
Poeta Manuel de Góngora 12og
Calle Oidores 15, Albaicínhverf-
inu, Granada, Spáni 1985-6
Ég skrifaði megnið af fyrstu
ljóðabókinni minni Dragsúgi í
þessum húsum, aðallega á Oidor-
es í gamla Márahverfinu, í hvít-
kölkuðu húsi þar sem leðurblökur
tístu fyrir mig á kvöldin í rökkr-
inu úti fyrir svölunum. Lengi vel
skildi ég ekki hvers vegna þessar
leðurblökur rötuðu ekki inn í
ljóðabókina mína.
Veghúsastígur 9, Reykjavík, 1989
-1995
Mikið að gerast. Uppteknir tímar í
alls konar skilningi. Veghúsastíg-
urinn er ein af skemmtilegri göt-
um borgarinnar, henni tilheyra
ekki nema fjögur eða fimm hús en
samt er þetta aðalgata Skugga-
hverfisins.
Beauchamp Lane í Cowley, Ox-
ford, og Walton Street, Oxford,
sumrin 1999 – 2000
Skrifaði meginhluta fyrstu skáld-
sögu minnar í 350 ára gömlu
prestssetri í Cowley. Hinum meg-
in götunnar var pínulítil kirkja
Hvítasunnusafnaðarins þar sem
ég fór í messu einn sunnudaginn,
meira af forvitni en öðrum hvöt-
um, og litlu munaði að ég gengi í
söfnuðinn óviljugur.
Laufásvegur 25, 1998
– 2004
Frábær staður í þorp-
inu Þingholtunum. Í
raun og veru eru húsin
númer 25 og 27 á miðri
skólalóð Kvennaskól-
ans, svo eru þau líka
mitt á milli bandarísku
og bresku sendiráð-
anna.
Ægisíða 60, Reykjavík,
2004
Tveir mánuðir í risíbúð
á horni Ægisíðu og
Dunhaga, á meðan Suð-
urgata 31 var sett í
stand. Útsýni yfir til
Ólafs Ragnars og Dor-
ritar á Álftanesinu, og
æskustöðvarnar fyrir
augunum á hverjum
degi, þar á meðal
gömlu grásleppuskúr-
arnir og grasbletturinn
undir áramótabrenn-
unni, þar sem göngu-
stígurinn liggur núna.
Suðurgata 31, 2004 -
Hinum megin götunnar eru
Benedikt Gröndal, Sigurður
Breiðfjörð, Theódóra Thorodd-
sen og fleiri. Í hverjum einasta
glugga er útsýnið íslenskur him-
inn og þykkur trjágróður. Það
eina sem hægt er að kvarta yfir í
augnablikinu er sú furðulega
ákvörðun borgaryfirvalda að
mjókka götuna til að gera hana að
einstefnu en breikka hana ekki
aftur þegar ákveðið var að hafa
hana áfram tvístefnugötu með
strætisvagnaumferð.
BRAGI ÓLAFSSON Bragi hefur búið víða í Reykjavík, á Spáni og á Englandi. Hér er hann á Suðurgötunni þar sem hann býr í dag.
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU > BRAGI ÓLAFSSON RITHÖFUNDUR
Brekkustígur
Kaplaskjólsvegur
Miðbraut
Tómasarhagi
Stjarnan, verbúð
Vesturgata
Garðastræti
Mánagata
Calle San Patricio
Vallarbraut
Poeta Manuel de
Góngora
Calle Oidores
Veghúsastígur 9
Beauchamp Lane
Walton Street
Laufásvegur
Ægisíða
Suðurgata
Reykjavík, pönk og skáldskapurinn
Rithöfundurinn hefur búi› á Íslandi, Spáni og á Englandi. Hann man fyrst eftir
sér í tindátaleik á stofugólfi en telur sig samt vita hvar hann var› til.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
Ó
LA