Fréttablaðið - 20.08.2005, Page 60
20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Mercedes Benz C 240 W 203
F. skráð. 08/04, ek. 3000.km
Vél: 2600cc, sjsk., 4x4
Litur: Svartur
Verð: 5.690.000
Tilboðsverð: 4.690.000 kr.
www.toyota.is
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
29
30
9
0
8
/2
00
5
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Toyota Corolla W/G
F. skráð. 10.2003, ekinn 40.000 km
Vél: 1600cc, sjsk.
Litur: Silfur
Verð: 1.720.000 kr.
Volvo S 70 S/D
F. skráð. 12/1998, ekinn 84.000 km
Vél: 2500cc, sjsk.
Litur: Grár
Verð: 1.290.000 kr.
Toyota Land Cruiser 90 VX
Bensín
F. skráð. 06/2002, ekinn 94.000 km
Vél: 3400cc, sjsk.
Litur: Grár
Verð: 3.150.000 kr.
Toyota Hilux D/C SR5 Diesel
F. skráð. 05/2005, ekinn 5.000 km
Vél: 2500cc 5 g
Aukab: 35" breyting, pallhús,
heitklæðning í pall
Litur: Gyltur
Verð: 3.390.000 kr.
Toyota Rav4 4wd
F. skráð. 09.2004, ekinn 15.000 km
Vél: 2000cc 5 g
Litur: Svartur
Verð: 2.590.000 kr.
Mercedes Benz E 320 S/D 4
F. skráð. 12/2000, ekinn 73.000 km
Vél: 3200cc, sjsk., 4x4
Litur: Grár
Verð: 3.700.000 kr.
Tilboðsverð: 3.350.000 kr.
Toyota Land Cruiser 100 bensín
F. skráð. 08/2000, ekinn 85.000 km
Vél: 4700cc, sjsk., 4x4
Litur: Svartur
Verð: 3.690.000 kr.
Tilboðsverð: 3.390.000 kr.
Kraftmiklir félagar fyrir góðar stundir
laugd. 20.ágúst, kl. 14.00 sunnud. 21. ágúst, kl. 14.00
laugd. 27. ágúst, kl. 14.00 sunnud. 28. ágúst, kl. 14.00
9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus
10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus
11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus
Á Kirkjulistahátíð 2005
sem hefst í dag, og stend-
ur til 28. ágúst, verður
haldið málþing um rúss-
neska kvikmyndagerðar-
manninn Andrei Tarkov-
skí. Thor Vilhjálmsson
aðstoðaði Tarkovskí í bar-
áttunni við Sovétvaldið
um miðjan níunda ára-
tuginn.
Málþing um rússneska kvik-
myndagerðarmanninn Andrei Tar-
kovskí verður í næstu viku á
Kirkjulistahátíð 2005. Á þriðju-
dagskvöld verða tvær af myndum
Tarkovskís, Æska Ívans og Fórnin,
sýndar í Bæjarbíói í Hafnarfirði
og á miðvikudag verður haldið
málþing í Hallgrímskirkju um
listamanninn.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur
er einn þeirra sem taka til máls á
þinginu en tengsl hans og Tarkov-
skís ná meira en tuttugu ár aftur í
tímann því Thor aðstoðaði Tarkov-
skí og eiginkonu hans Larissu við
að fá son þeirra til sín frá Sovét-
ríkjunum en yfirvöld þar í landi
vildu ekki leyfa honum að fara úr
landi.
„Tarkovskí og kona hans Larissa
voru á flækingi um hin ýmsu lönd á
þessum árum, voru hálfgerðir út-
lagar. Þau áttu í miklum erfiðleik-
um með að fá son sinn til sín frá
Sovétríkjunum þar sem hann bjó
hjá Babúsku ömmu sem var orðin
nokkuð gömul. Þau skildu ekki af
hverju þau máttu ekki fá drenginn
til sín. Þegar ég heyrði af þessu var
ég svo snortinn að ég hringdi í
nokkra vini mína og við stofnuðum
sérstaka Tarkovskí-nefnd og beitt-
um við okkur í því að þau fengju
drenginn til sín,“ segir Thor og
bætir því við að í kjölfarið hafi þeir
komist yfir allar myndir Tarkov-
skís og hafið sýningar á þeim á Ís-
landi. Starfsmaður sovéska sendi-
ráðsins hringdi í Thor eftir þetta
og vildi stöðva sýningar á myndum
Tarkovskís hér á landi en allt kom
fyrir ekki.
„Ég hafði samband við Halldór
Laxness og bað hann að skrifa Gor-
batsjov, æðsta ráðamanni Sovét-
ríkjanna, bréf til að styðja það að
drengurinn fengi að fara frá Rúss-
landi, það var ákaflega fallegt bréf.
Svo talaði ég við Olaf Palme, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, og veitti
hann okkur stuðning sinn. Eftir
þetta stofnaði ég Tarkovskí-nefnd í
Svíþjóð sem beitti sér í málinu og
einnig talaði ég við nokkra aðila á
Ítalíu og þeir þrýstu á sovésk
stjórnvöld,“ segir Thor. Að sögn
Thors var Ísland eini staðurinn í
heiminum á þessum tíma, 1985, þar
sem hægt var að sjá allar myndir
Tarkovskís.
„Við fórum þrír í sendiráð Sov-
étríkjanna á Íslandi til að þrýsta á
þá. Sendiherrann talaði hins vegar
mest um hversu ástandið í Sovét-
ríkjunum væri nú gott, að matar-
verð væri þar lágt, hann ætti
ágæta íbúð í Moskvu, að rafmagns-
verð væri sérlega lágt og eitthvað
slíkt. Hann sagði að í Rússlandi
væru til 100 kvikmyndagerðar-
menn eins og Tarkovskí og hann
skildi ekki af hverju við værum að
standa í þessu. Við sögðum hins
vegar við hann að það væri bara til
einn Tarkovskí í heiminum og að
allur heimurinn þyrfti á slíku
skáldi að halda og að okkur langaði
að vita hvort bréf Laxness hefði
ekki örugglega komist til Gorbat-
sjovs,“ segir Thor og bætir því við
að á endanum hafi drengur Tarkov-
skís svo fengið að koma til þeirra
hjóna.
„Þessar myndir hans Tarkov-
skís gefa manni ævinlega svo mik-
ið því þær eru svo fallegar og ég
get horft á þær aftur og aftur og
því er maður svo glaður að vita af
svona framtaki eins og hjá stjórn-
endum Kirkjulistahátíðar,“ segir
Thor. ■
ANDREI TARKOVSKÍ Málþing verður
haldið um listamanninn næstkomandi
miðvikudag á vegum Kirkjulistahátíðar
2005. Tarkovskí átti í útistöðum við ráða-
menn í Moskvu þegar Sovétríkin voru og
hétu og gekk erfiðlega að fá leyfi til að fá
son sinn sendan þaðan.
Thor aðstoðaði Tarkovskí
THOR VILHJÁLMSSON Var einn þeirra
sem veittu Andrei Tarkovskí lið í að fá son
Tarkovskís frá Sovétríkjunum eftir að kvik-
myndagerðarmaðurinn hafði hrökklast
þaðan á fyrri hluta níunda áratugarins.