Fréttablaðið - 20.08.2005, Page 62
ÞYKKAR BÓMULL-
ARSOKKABUXUR
Verða ómissandi
undir köflóttu pils-
in. Sock shop.
ÆÐISLEGA
fallegur köfl-
óttur skokkur
úr Zöru.
MJÖG SMART er að láta
tíglasokka gægjast upp úr
stígvélunum eða einfaldlega vera í
þeim við háhælaða skó.
Einn af kostunum við að búa í köldulandi er að þurfa ekki alltaf að vera ísandölum og hlírabol heldur geta
smeygt sér í notalegar rúllukragapeysur og
æðislegar ullarkápur þegar hausta tekur.
Það er alltaf jafn gaman að skoða í tískubúð-
irnar á þessum tíma þegar virkilega gerðar-
legar flíkur eru í boði. Ef litið er yfir haust-
tískuna í ár sést vel að rómantískur sveita-
blær svífur yfir vötnum og að þessu sinni
eru köflóttar flíkur hvað mest áberandi.
Sköpunarverk hönnuða á borð við Marc Jac-
obs, Önnu Sui og Karen
Walker minna á þau föt
sem hástéttarfólk
klæddist á sveitasetr-
um sínum fyrr á tím-
um þar sem fallegar
skyrtur með háum
kraga og síð ull-
arpils við upp-
hneppt stígvél
réðu ríkjum.
Áhrifa gætir
einnig frá
hinum góðu
þáttum um
Húsið á
sléttunni og
fötin myndu
sóma sér vel jafnt í fjallakofa í Ölpunum
eða bara heima fyrir framan arininn. Af-
slappað, kvenlegt og hástéttar-sveitó eru
einkunnarorðin og ef pils eða kjólar eru í
styttri kantinum er um að gera að skella sér
í þykkar bómullarsokkabuxur og jafnvel
köflótta sokka yfir þær. Líkt og fötin er fal-
legast að hárið sé afslappað og náttúrulegt
og förðunin í lágmarki.
soleyk@frettabladid.is
46 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A,
G
ET
TY
Sveitarómantík á
köldum vetrarkvöldum
SJAL ÚR ZÖRU Þegar vetrarhríðin hamast
á gluggunum er fátt þægilegra en að kúra
sig ofan í mjúkt sjal.
SÆT OG
SVEITALEG
peysa úr Vero
Moda.
ANNA SUI Naomi
Campbell í gamaldags
skyrtu við fallegan
köflóttan skokk.
HLÝTT OG KÓSÍ Anna Sui sýndi stórar
prjónaðar rúllukragapeysur við sveitaleg
pils í haust- og vetrarlínu sinni.
FLOTT að vera með gróf og
þykk belti við vetrarfötin.
ÆÐISLEG
stígvél úr
Vero Moda.
TREFILL úr Zöru.
SÍÐ OG VÍÐ Pils
úr Vero Moda (t.v.)
og Zöru (t.h.)
Þegar ég var yngri fannst mér haustið alltaf svo dásamlegur
tími. Ég hef reyndar ekki skipt um skoðun, áherslurnar hafa
bara breyst. Áður en skólinn byrjaði kviknuðu margar góðar
hugmyndir og var ég sérlega upptekin við að „pródúsera“
klæðnað komandi vetrar. Yfirleitt skutu þær hugmyndir upp
kollinum að ég ætlaði að vera sérlega dömuleg. Eitt síðsumarið
beit ég það í mig að flauel væri málið þann veturinn. Ég saum-
aði mér flauelsbuxur sem voru nokkuð vel heppnaðar. Við þær
klæddist ég tíglapeysu, rúllukragapeysu eða hneppri vínrauðri
V-hálsmálspeysu frá Guðsteini. Þegar ég var komin í þennan
dömulega klæðnað vantaði mig sárlega hælaskó og velti því fyr-
ir mér vel og lengi hvort ég ætti að stökkva. Ég var 15 ára og
gellugangur var í algjöru lágmarki í Árbænum nema náttúrlega
hjá þröngu kráti sem ég tilheyrði ekki. Mér fannst ég því tefla
heldur djarft að kaupa skóna sem voru nota bene með fimm sm
háum kubbahæl. Ég lét þó vaða eftir langa umhugsun og sé ekki
eftir því. Skórnir voru flottir þótt það hafi stundum verið svolít-
ið erfitt að hlaupa í þeim eftir strætó í hvaða veðri sem var.
Það sem er þó fyndið þegar maður lítur til baka er að þessi
klæðnaður er allt annað en gellulegur. Hann er meira í átt við
klæðaskáp vistmanna á Hrafnistu eða Hobbita sem reykja
vindla og safna frímerkjum í sínum litlu holum. Þar sem ég var
að vinna á Hrafnistu um sumarið hef ég því líklega orðið fyrir
óáþreifanlegum innblæstri. Ég get ekki greint hvort innblástur-
inn hafi komið frá A eða C-álmu eða bara úr matsalnum.
Þessi tilfinning að langa í tíglapeysur og flauelsbuxur á
haustin hefur þó elt mig síðan á Hrafnistutímanum. Öll tísku-
slys sem ratað hafa í fataskápinn hafa yfirleitt gerst á þessum
árstíma. Ég verð svo æst þegar haustvörurnar koma að ég missi
mig stundum í einhverja vitleysu sem ég er langt frá því að vera
stolt af. Það sem huggar mig er að ég er ekki eina manneskjan í
alheiminum sem tapa mér stundum og því vil ég brýna fyrir
þeim sem hafa þessa veikleika að fara hægt um gleðinnar dyr.
Unglingur í dömufíling?
GWEN er alltaf flott í tauinu og hér
er hún í gamaldags skyrtu með
háum kraga undir köflóttum jakka.
LOÐFELDIR Koma
alltaf sterkir inn á
haustin.
STÍGVÉL úr
Vero Moda