Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 64
48 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
JUDE OG SIENNA Eitthvað virðist vera
að birta til í lífi Siennu og Jude. Þau hafa
sést saman í síauknum mæli en hvort þau
eru jafn hamingjusöm og á þessari mynd
skal ósagt látið
fií›a milli
Miller og Law
Það er heldur betur að þiðna milli
Jude Law og Siennu Miller. Þau
ætla að mæta saman í brúðkaup
systur Millers og nú sást til þeirra
arka eftir Hampstead Heath í
London. Ekki er langt síðan útlit
var fyrir að allt væri búið á milli
þeirra eftir að Law viðurkenndi
framhjáhald sitt með barnfóstru
barna sinna.
Það er götublaðið The Sun sem
greinir frá þessu og hefur eftir
heimildarmanni að Sienna sé ekki
alveg búin að taka Law í sátt.
„Hún er að gera sitt besta til að
bjarga sambandinu,“ er haft eftir
honum. „Hún elskar hann og er í
öngum sínum yfir því hvernig
hann sveik hana,“ heldur heimild-
armaðurinn áfram og bætir því
við að Jude Law reyni af öllum
mætti að sannfæra spúsu sína um
að þetta hafi verið mistök sem
ekki verði endurtekin. ■
BRITNEY OG BUMBAN Slúðurblaða-
menn í Bandaríkjunum eru að fara á lím-
ingunum yfir því af hvaða kyni barnið sé.
Þeir hallast að því að þetta sé strákur og
að hann eigi að heita Preston.
Ber Britney dreng
undir belti?
Kynið á barni Britney Spears er
mönnum mikil ráðgáta. Á tímabili
virtust flestir veðja á að barnið
væri stúlka en þeim hinum sömu
hefur snúist hugur. Bandarísku
slúðurblöðin segjast vera þess
fullviss að hún beri dreng undir
belti. Það sást nefnilega til hennar
í barnafatabúð í Beverly Hills þar
sem söngkonan eyddi miklum
peningum í strákaföt.
Götublaðið The Sun hefur eftir
heimildarmanni sínum að Spears
og eiginmaður hennar Kevin séu
mikið að velta strákanöfnum fyrir
sér og Preston á að vera í miklu
uppáhaldi. Hvað svo sem verður
þá kemur allt í ljós í næsta mán-
uði þegar Spears eignast loks sitt
fyrsta barn. ■
Josh Homme, forsprakki Ís-
landsvinanna í Queens of the Sto-
ne Age, þurfti að gangast undir
aðgerð á hné á dögunum eftir að
hafa meiðst á tónleikum í Ástral-
íu í síðasta mánuði.
Þrátt fyrir meiðslin ætlar
sveitin að halda tvenna tónleika í
London dagana 22. og 23. ágúst.
Liðsmenn Queens of the Stone
Age hafa þegar þurft að fresta
fimm tónleikum í Bretlandi á
þessu ári og vildu ekki bæta
tveimur í sarpinn. Í byrjun árs
var þremur tónleikum frestað
eftir að Homme veiktist og 7. júlí
voru tvennir tónleikar afboðaðir
vegna hryðjuverkaárásanna í
London. ■
Sýningin Rómeó og Júlía er að
gera góða hluti á leiklistarhátíð
í Finnlandi um þessar mundir.
Fréttablaðið náði tali af Rakel
Garðarsdóttur hjá Vesturporti.
Hún sagði viðtökurnar hafa
verið frábærar og forseti
Finna hefði meðal annars mætt
á eina sýninguna. „Þetta hefur
gengið mjög vel og það hefur
verið uppselt hjá okkur,“ sagði
Rakel.
Leikhópurinn er einnig með
leiksýninguna Brim á hátíðinni
sem sýndur var á sunnudag og
mánudag. Eftir það lá leiðin svo
aftur heim en þó í stutt stopp.
„Við erum að fara með Brim til
Moskvu í Rússlandi,“ sagði
Rakel og var hvergi nærri orðin
þreytt á ferðalögunum.
„Ef það væri ekki fyrir þau
væri þetta ekkert gaman.“ ■
Homme í hnéa›ger›
JOSH HOMME Forsprakki Queens of the
Stone Age þurfti að gangast undir hnéað-
gerð á dögunum.
Rómeó og Júlía heilla Finna
VESTURPORT Leiksýningin Rómeó og Júlía hefur fengið frábæra dóma hjá finnskum
blaðamönnum sem eru víst ekkert alltof duglegir við að vera jákvæðir.