Fréttablaðið - 20.08.2005, Qupperneq 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!
95,-
BRATTBY
vasareiknir ýmsir litir
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Skóladagar
Dæmi sem
gengur upp.
50 02 .V .B s
met sy S
AEKI re tn I
©
95,-
KRILLE tölvuborð hvítt/silfurlitað
75x87x72 sm 2.990,- SVENNING
skrifstofustóll 2.950,-
DOKUMENT
pennastatíf 2 stk. 190,-
BRATTBY
pennabox ýmsir litir 95,-
150,-
BRATTBY
A5 stílabók
BRATTBY pennaveski ýmsir litir
KLUNSA
1.390,-vekjaraklukka
LINGO RAND box með loki
32x24x15 sm 2 stk.
295,-BRATTBY
skólatöskur ýmsir litir
490,-
290,-
Ferskt
pastasalat
Mannekla
Nú bárust fregnir af því í vikunniað svo mikill uppgangur væri í
þjóðfélaginu að það vantaði fólk til
þess að vinna störfin sem enginn
nennir að vinna, út af launum eða ein-
hverju öðru. Í sem stystu máli: Það
nenna ekki nógu margir að vera leik-
skólakennarar og karlmenn eru hætt-
ir að nenna að vera iðnaðarmenn.
ÞETTA leiðir annars vegar til þess
að nú verður líklega að senda ein-
hver börn heim til sín af leikskól-
um og þá er nú um að gera að
fjarlægja öll skæri af borðum og
hafa rafmagnsinnstungur í góðu
lagi, því ef börnin þurfa að vera ein
heima í þetta þrjá, fjóra, fimm
tíma verður að gæta þess að þau
vinni sér ekki mein. Aðalatriðið er
að blessuð skinnin geti ekki hlaupið
út á götu og því er áríðandi að hús-
in séu læst utan frá með slagbrandi
þangað til mamma og pabbi koma
heim. Svo er bara að setja mat í
skál og drykkjarvatn.
HINS vegar leiðir svo mannekla á
meðal iðnaðarmanna til þess að
stór hluti þjóðfélagsins situr uppi
með ónýt skolpræsi, sprungna og
ómúraða veggi, ókláruð ris, brotnar
rúður og óflísalögð baðherbergi.
Þetta segir manni það að í góðæri
er í mörg horn að líta. Góðærið fer
fyrir lítið ef maður getur ekki
kveikt á sjónvarpinu sínu og þar
með ekki horft á dvd vegna þess að
rafvirkinn hefur ekki tíma til að
laga rafmagnið. Og þá kannski
getur maður ekki heldur ristað
brauð, en þjóðin er einmitt komin á
það stig að nú þurfa heimilin ekki
lengur að velja hvort kaupa á
vídeótæki eða brauðrist og því
synd ef góðærið strandar á grund-
vallaratriðinu sem er rafmagnið.
EF svo fer fram sem horfir getur
hins vegar komið sér vel að nóg er
til af sálfræðingum, heimspeking-
um, bókmenntafræðingum,
íslenskufræðingum, sagnfræðing-
um, mannfræðingum, stjórnmála-
fræðingum og þjóðfræðingum. Á
þessum sviðum er engin viðvarandi
mannekla. Alla vega hafa ekki enn
þá borist neinar fregnir af því að
til dæmis svo aðkallandi tilvistar-
legar spurningar hafi hrjáð mörg
heimili að skortur hafi skyndilega
orðið á heimspekingum. Þeir eru
ekki eftirsóttir beinlínis sem slíkir.
Engin bráðavakt þar. Ekki heldur
hjá bókmenntafræðingum vegna
áleitinna vafamála í túlkun bók-
menntarita.
EN ég held að þetta geti breyst í
ljósi þess að þjóðfélagið er jú þrátt
fyrir allt þannig að það má helst
ekki vera að því að sjá um börnin
sín á daginn. Af þeim sökum gæti
vaxið upp kynslóð sem mun hafa
aukin not fyrir sálfræðinga.
OG þó svo að sagnfræðingur lagi
ekki rafmagnið hjá manni þá get-
ur hann kannski sagt manni sögur
af því hvernig fólk naut lífsins í
þjóðfélaginu áður en rafmagnið
kom til skjalanna. Sem gæti verið
intresant.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR