Fréttablaðið - 17.09.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 17.09.2005, Síða 16
Stystu og fáránlegustu kosninga- baráttu í sögu þýska Sambands- lýðveldisins er lokið. Hún var fyrst og fremst háð af skoðana- kannanasmiðum og líktist mjög Formúlu eitt kappakstri. Angela Merkel byrjaði leikinn á ráspól og er að vísu enn í forystu, en það saxast á hana í hverjum eknum hring. Gerhard Schröder sækir á; hann slær ekkert af í beygjunum og tveir brotlendingarbílstjórar sem enginn hefði trúað til að kom- ast svo mikið sem í kassabíla- kappakstur – sósíalistarnir Gysi og Lafontaine – blanda sér í leik- inn. Þeir eru þeir einu sem munu standa uppi sem sigurvegarar hvernig sem leikar fara. Takist þeim með Vinstriflokknum að verða þriðji stærsti flokkurinn á þingi þvinga þeir SPD og CDU í „stóru samsteypu“. Og þá munu Gysi og Lafontaine sýna hvernig maður rekur stjórnarandstöðu: með hömlulausu lýðskrumi. Ef þeir skyldu enda með færri at- kvæði en Græningjar og Frjálsir demókratar geta þeir huggað sig við að hafa þó tekist að krafsa þau atkvæði af SPD sem dugði til að koma Schröder frá völdum. Því það eru fyrst og fremst óánægðir SPD-kjósendur sem munu hjálpa Vinstriflokknum yfir fimm pró- senta þröskuldinn. Að arftaka austur-þýska kommúnistaflokksins, PDS, skyldi undir nýju nafni allt í einu takast að verða stjórnmálaafl sem taka verður alvarlega er fyrst og fremst Gerhard Schröder og því snilldarbragði hans að þakka að boða snemma til kosninga. Kansl- ari sem biður fyrst um að van- trausti sé lýst á hann og biður því næst um að vera endurkjörinn er álíka trúverðugur og skurðlæknir sem missir starfsleyfið vegna læknamistaka en vill síðan ólmur halda áfram að skera fólk upp. Það sama gildir um stjórnarand- stöðuna, sem lét Schröder bjóða sér upp í þennan dans eftir að hún sýndi að hún var ófær um að fella kanslarann. Þetta var tækifærið fyrir elli- hrumu síðkommúnistana í PDS. Því að baki mælsku atkvæða- veiðurunum Gysi og Lafontaine er heill her pólitískra uppvakn- inga. Dæmi: Diether Dehm, sem leiðir lista Vinstriflokksins í Neðra-Saxlandi. Hann var eitt sinn SPD-maður en eftir að flett var ofan af því að hann hafði árum saman starfað með austur- þýsku leyniþjónustunni Stasi fór hann beint í flokksforystu PDS. Í Bremen er hin rúmlega sjötuga Antonie Brinkmann efst á lista, en hún er helst þekkt fyrir að hafa verið meðal þeirra sem skrifuðu undir áskorunina „Frelsi fyrir Milosevic“. Sem sagt: þeir sem greiða Gysi og Lafontaine atkvæði sitt kjósa í raun skrautlegt samsafn vafa- samra einstaklinga sem telja sig hafa köllun til að láta á sér bera, ellilífeyrisþega með fram- kvæmdadellu og flokkshesta með brenglaða sýn á söguna. Spurn- ingin er ekki hvort þeir komast á þing, heldur aðeins hve margir þeir verða. Þessi kosninganótt verður nótt uppvakninganna. Höfundur er blaðamaður í Berlín. HENRYK M. BRODER UMRÆÐAN ÞÝSKU KOSNINGARNAR Nótt uppvakninganna 17. september 2005 LAUGARDAGUR H blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag Bls. 28 Íslands Svanhildur kosinsjónvarps- stjarna Lilja Pálmadóttir Bls. 16-17 KYNNTIST BALTASAR Í BARCELONA Allt sem þú vissir ekki um Idolið DAGBLAÐIÐ VÍSIR 211. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 Helgarblað Bls. 62 Bls. 8 Harmleikurinn við Viðey Idolstelpurnar stíga fram Ólétt leikkona! Lára á von á jólabarni Kvíðinn ofviða varð syni mínum i í Sjálfsmorð á Íslandi Sigurjóna Kristinsdóttir er fimm barna móðir. Eitt barna hennar, Hjalti Skagfjörð Svavarsson, tók sitt eigið líf aðeins 21 árs gamall. Sigurjóna segist aldrei munu jafna sig að fullu. Helgarblað DV reynir að rjúfa þögnina um sjálfsvíg á Íslandi. Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, þekkir sorgina vegna sjálfsvígs ástvinar af eigin raun. Dóttir hans, Ágústa Helga Sig- urðardóttir, tók líf sitt fyrir fimmtán árum, þá 29 ára gömul. BÖRNIN ÞEIRRA TÓKU EIGIÐ LÍF Bls. 32, 33, 34 og 35 Líklegast að Jónas hafi verið fullur við stýrið Bls. 24 Ungfrú Ísland djammar á netinu Bls. 22-23 Hjalti var 21 árs þegar hann tók sitt eigið líf Sjálfsmorð á Íslandi Ólafur Jóhannesson hefur átt góðu gengi að fagna sem þjálfari meist- araflokks karla í knatt- spyrnu hjá FH undanfar- in ár en hann hefur orðið Íslandsmeistari með lið- inu tvö ár í röð, í fyrsta skipti í sögu félagsins. Flestum ber saman um að samtakamátturinn sem einkennt hefur knattspyrnustarfið hjá FH sé ekki síst Ólafi að þakka. Þrjú orð komu fyrst upp í huga góðvina Ólafs sem beðnir voru um að lýsa honum sem persónu: Dugnaður, hreinskilni og traust. Í ofanálag er Ólafur svo einstaklega kappsfullur og reynir oftar en ekki að einfalda alla hluti eins og mögu- lega er hægt, til þess að það fari ekki framhjá neinum hvað hann er að tala um. Stundum getur kappið hlaupið með hann í gönur á kostnað skipu- lagsins, en það heyrir þó til undantekninga. Ólafur var sjálfur góður knattspyrnumaður og ber flestum saman um að dugnaður og áreiðan- leiki hafi verið hans helsti styrkur sem knatt- spyrnumanns. Hann gafst aldrei upp og sá eiginleiki hefur hjálpað honum mikið í þjálfun- inni, þar sem hann er duglegur að láta heyra í sér frá hliðarlínunni og fær þannig leikmenn til þess að leggja sig alla fram hvern fyrir annan. Það má því með sanni segja að sterk persónueinkenni hans fylgi honum inn á knatt- spyrnuvöllinn. Þeir sem umgangast Ólaf mikið eru allir sammála um að hreinskilni hans og skopskyn gefi af sér einstaklega notalega nærveru, þótt hann sé harður nagli eins og stundum er sagt. Þannig leyfir Ólafur sér að tala um hlutina eins og þeir eru, en ekki eins og hann vill endilega hafa þá. Og einmitt í þessu kem- ur hreinskilni hans fram sem er oft á tíðum einstaklega skemmtileg og gamansöm. En þrátt fyrir kappsemina, og oft fljótfærni, er gott að tala við Ólaf sem að sögn vina er ein- staklega traustur og skemmti- legur maður. Hann tekur lífinu ekki of alvarlega og það þarf mikið til þess að koma honum úr jafnvægi. Líkt og annað fólk er Ólafur þó ekki gallalaus. Dugnaður hans í vinnu skilar sér sjaldan inn á heimil- ið, þar sem eigin- kona hans ræður ríkjum. Þar lætur Ólafur oftar en ekki fara vel um sig. Að auki er nokkuð erfitt að fá hann til þess að eyða tíma með sínum nánustu, enda með eindæm- um upptekinn. Dugnaður hans er ósjaldan bundinn við það sem honum finnst skemmtilegt og svo þolir hann engan veginn að tapa. Það á ekki einungis við um k n a t t s p y r n u n a , heldur einnig þegar hann spilar á spil með fjölskyldunni. Þar spilar hann ávallt til sigurs þar sem það er með öllu óásættanlegt að vinna ekki, hvort sem andstæðingur- inn er dóttir hans eða heilt knatt- spyrnulið. Ólafur er mikið náttúrubarn og sækist sérstaklega eftir því að fylgjast með fuglum. Þeir sem standa honum næst geta vel séð hann fyrir sér sem bónda eða trillukarl í framtíðinni, en hann verður þó að koma sér þannig fyrir að hann geti leikið sér svo- lítið – og að sjálfsögðu tekið þátt í einhverri keppni. Það þarf ekkert endilega að vera fótbolti. Heldur keppni þar sem sá vinn- ur sem tilbúinn er að leggja meira á sig en andstæðingurinn. Þar stendur Ólafur uppi sem sigurvegari, líkt og hann hefur gert svo eftirminnilega með FH undanfarin tvö ár. ■ MAÐUR VIKUNNAR Kappsfullur dugna›arforkur ÓLAFUR JÓHANNESSON SMIÐUR OG KNATTSPYRNUÞJÁLFARI HJÁ FH TE IK N IN G : H EL G I S IG U RÐ SS O N – H U G VE R K A. IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.