Fréttablaðið - 17.09.2005, Síða 21
21LAUGARDAGUR 17. september 2005
Mikil hækkun á Keops
Gengi bréfa í danska fasteignafélag-
inu Keops hefur hækkað yfir fimmt-
ung frá byrjun mánaðarins og um
340 prósent frá áramótum. Á dögun-
um hækkuðu forsvarsmenn Keops
áætlanir sínar á árinu um hagnað
fyrir skatt úr 240-260 milljónum
danskra króna í 300 milljónir.
Baugur Group eignaðist um þrjátíu
prósenta hlut í sumar fyrir sex millj-
arða króna. Telja má líklegt að hlutur
Baugs hafi hækkað yfir tvo milljarða
frá kaupunum.
Meginstarfsemi Keops felst í því að
kaupa og endurnýja íbúðar- og at-
vinnuhúsnæði til útleigu og sölu.
Heildareignir félagsins eru um það
bil áttatíu milljarðar króna. - eþa
KEOPS-FASTEIGNAFÉLAGIÐ Á þremur mánuðum hefur eignarhlutur Baugs í
Keops hækkað yfir tvo milljarða.
Bandaríska flugfélagið America West Airlines hyggst yfirtaka einn helsta
keppinaut sinn, US Airways. Með sameiningunni verður til sjötta stærsta
flugfélag í Bandaríkjunum sé miðað við fjölda farþega.
Hið nýja sameinaða lággjaldaflugfélag mun bera nafn US Airways og ráða
yfir um 400 farþegaþotum. Bæði félögin hafa átt við fjárhagsvanda að stríða
undanfarin misseri og hefur US Airways tvisvar farið í greiðslustöðvun síð-
ustu tvö ár.
Bandarísk flugfélög hafa átt í miklum rekstrarörðugleikum enda olíuverð í
sögulegu hámarki og samkeppni á markaðnum harðari en nokkru sinni.
- jsk
Sameining í loftinu
US AIRWAYS VÉLAR America
West Airlines hyggst yfirtaka US
Airways. Hið nýja félag mun starfa
undir merkjum US Airways.
Gengi› frá Merlinkaupum
Árdegi, Baugur og Milestone hafa
keypt dönsku raftækjake›juna Merl-
in. Verkefni› er a› snúa rekstrinum
úr tapi í hagna›.
Íslenskir fjárfestar hafa keypt dönsku raftækjaverslan-
irnar Merlin. Árdegi, félag í eigu Sverris Bergs Stein-
arssonar, fer fyrir hópnum, en aðrir kaupendur eru
Baugur og Milestone sem er í eigu Karls Wernerssonar
og systkina hans.
Kaupverðið er trúnaðarmál, en rekstur Merlin hefur
gengið illa að undanförnu. Sverrir Berg verður stjórn-
arformaður félagsins og segir hann margt á verkefna-
lista komandi mánaða. „Það þarf að byrja á að setja und-
ir lekann og síðan taka á innkaupamálum og vörudreif-
ingarmálum.“
Hann segir að breyta þurfi áherslum í verslununum
sjálfum og það hafi staðið keðjunni fyrir þrifum að
fyrri eigandi, danska fyrirtækið FDB, hafi haft í nógu
öðru að snúast og því ekki einbeitt sér að Merlin sem
skyldi. Hann segir það ögrandi verkefni að snúa rekstr-
inum við. „Það er ekkert hér um bil í þessu og ég mun
einbeita mér að þessu verkefni á næstunni.“
Merlin rekur 48 búðir í Danmörku og hyggjast nýir
eigendur hvorki fækka búðum né segja upp starfsfólki
heldur stefna að frekari uppbyggingu félagsins og end-
urbótum rekstursins.
- hh
ERFIÐUR REKSTUR Rekstur Merlin-búðanna hefur gengið illa
og stöðnun ríkt í mörgum þáttum rekstursins. Nýir eigendur
hyggjast endurnýja upplýsingakerfi, taka á birgðahaldi og gefa
keðjunni nýtt líf.