Fréttablaðið - 17.09.2005, Síða 24
Á sunnudag verður haldin
mánaðarleg æðruleysis-
messa í Dómkirkjunni í
Reykjavík, en slíkar mess-
ur hafa verið haldnar í
tæpan áratug. Séra Karl V.
Matthíasson hefur tekið
þátt í æðruleysismessum í
Dómkirkjunni frá upphafi.
„Messurnar höfða til fólks
sem er að upplifa jákvæð-
ar breytingar og endur-
skoða líf sitt í anda tólf
spora kerfis AA-samtak-
anna.“
Æ ð r u l e y s i s m e s s u r
hófust á Akureyri fyrir
tæpum tíu árum fyrir til-
stilli séra Jónu Lísu Þor-
steinsdóttur og stuttu síð-
ar var ákveðið að halda
slíka messu í Reykjavík.
Þá var séra Karl sóknar-
prestur á Grundarfirði, en
hann hugsaði sig ekki
tvisvar um að taka þátt
þegar til hans var leitað og
hefur allar götur síðan tek-
ið þátt í messunum, líka
þegar hann lét af prest-
skap til að fara á þing.
Æðruleysismessur eru
haldnar víða um land og
hefur séra Karl meðal ann-
ars messað á Akureyri,
Húsavík og Akranesi, en
fleiri prestar koma að
þeim. „Ásamt mér eru
þarna séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson, sóknarprest-
ur í Dómkirkjunni, séra
Hjálmar Jónsson, séra
Jóna Hrönn Bolladóttir og
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Við skiptumst á með mess-
urnar, en þrír prestar
messa í hverri athöfn: einn
leiðir, einn fer með hug-
vekju og einn með bæn-
ina.“
Reglan er sú að þriðja
hvern sunnudag í hverjum
mánuði er haldin æðru-
leysismessa í Dómkirkj-
unni klukkan átta. Rík
áhersla er lögð á þátttöku
leikmanna í messunum og
leitast er við að hafa þær
með léttu og líflegu yfir-
bragði. „Í hverri messu
kemur einhver nýr og seg-
ir frá reynslu úr sínu lífi.
Þá koma tónlistarmenn
fram hjá okkur og við höf-
um verið með alla tónlist-
arflóruna hjá okkur, til
dæmis Bergþór Pálsson og
Bubba Morthens.“
Séra Karl hvetur sem
flesta til að koma í æðru-
leysismessu og segir þær
hafa gefið honum sjálfum
mikið. „Í þessum messum
hef ég upplifað nýjar vídd-
ir í mínu lífi og starfi og ég
er þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri að taka
þátt í þeim.“ ■
24
KARL POPPER
(1902-1994) lést þennan dag.
ÆÐRULEYSISMESSUR FYRIR FÓLK Á TÍMAMÓTUM:
Nýjar víddir í lífi og starfi
„Góðar tilraunir eyða gölluðum
kenningum; við lifum til að læra.“
Karl Popper var austurrískur vísindaheimspekingur sem
bjó síðari hluta ævi sinnar í Bretlandi. Þar var hann
sleginn til riddara árið 1965 af Elísabetu drottningu.
timamot@frettabladid.is
SÉRA KARL VIÐ DÓMKIRKJUNA Kar segir messurnar hafa opnað nýjar víddir í lífi sínu og starfi. Tónlist setur
sterkan svip á messurnar sem og þátttaka leikmanna. Í hverri messu segir einhver frá reynslu úr sínu lífi.
Á þessum degi árið 1957 lýsti hinn víðfrægi djasstónlistarmaður Louis
Armstrong því reiðilega yfir að hann myndi ekki taka þátt í ferð á veg-
um ríkisstjórnarinnar til Sovétríkjanna. Armstrong var ævareiður yfir
uppákomunni í Little Rock í Arkansas stuttu áður þar sem hópar hvítra
borgara ásamt vopnuðum vörðum meinuðu níu svörtum námsmönn-
um leið inn í menntaskóla sem einungis var fyrir hvíta námsmenn.
Stuttu áður hafði fallið alríkisdómur þar sem kveðið var á um að
blökkumenn fengju inngöngu í skólann.
Reiði Armstrongs beindist helst að aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar sem
hann taldi að hefði átt að fylgja málinu eftir. „Eins og verið er að fara
með fólkið mitt í suðrinu þá má ríkisstjórnin fara til helvítis,“ sagði Arm-
strong og bætti við að Eisenhower forseti hefði „ekkert hugrekki“ til að
takast á við Orval Faubus, ríkisstjóra Arkansas, sem skipaði vörðum að
halda blökkumönnunum frá skólanum. „Ástandið er orðið það slæmt
að litaður maður á ekkert föðurland lengur,“ sagði hann við fjölmiðla.
Yfirlýsing Armstrongs kom sér illa fyrir bandarísk yfirvöld sem höfðu
með ýmsum ráðum reynt að bæta ímynd sína í jafnréttismálum gagn-
vart umheiminum. Ríkisstyrktar ferðir frægra blökkumanna um heim-
inn voru liður í þeirri herferð. LOUIS ARMSTRONG
ÞETTA GERÐIST > 17. SEPTEMBER 1957 MERKISATBURÐIR
1787 Stjórnarskrá Bandaríkj-
anna er samþykkt.
1939 Sovétríkin ráðast inn í Pól-
land.
1978 Leiðtogar Ísraela og
Egyptalands hittast í Hvíta
húsinu í Washington-borg
til að ræða frið milli þjóð-
anna.
1970 Borgarastyrjöld hefst í
Jórdaníu.
1992 Landsbankinn tekur eignir
Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga upp í skuldir.
1998 Ný brú á Gígjukvísl er
formlega tekin í notkun.
2001 José Carreras er vel fagn-
að í Laugardalshöll þar
sem hann syngur fyrir
fullu húsi.
Armstrong rei›ist bandarískum yfirvöldum
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Óli Bergholt Lúthersson
húsvörður, Ásbraut 21, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirku mánudaginn
19. september kl. 13.00.
Svana Svanþórsdóttir
Ragna Óladóttir Eiríkur G. Guðmundsson
Kristín Th. Óladóttir Óli Sævar Laxdal
Ásdís Óladóttir Lúther Ólason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,tengdamóðir, amma
og langamma,
María Pálmadóttir
Seljahlíð 3f, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Skafti Hannesson Elín Antonsdóttir
Einar Albert Sigurðsson Grazyna Wójtowicz
ömmu og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföðurs, afa og langafa,
Jóns Skafta Kristjánssonar
vélstjóra, Heiðargerði 19, Akranesi.
Erna Gréta Ólafsdóttir
Kristján Jónsson Lilja Hákonardóttir
Sigríður Jónsdóttir Þórir Gunnarsson
Óli Þór Jónsson Jóhanna B. Andrésdóttir
og afabörn.
Systir mín og mágkona,
Gróa Sólborg Jónsdóttir
frá Stóra-Sandfelli,
lést fimmtudaginn 15. september.
Jóna Kristbjörg Jónsdóttir Magnús Stefánsson
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Fjólu Baldvinsdóttur
Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði.
Guðni Ólafsson Ásdís Pálmadóttir
Ægir Ólafsson Guðný Ágústsdóttir
Sigurður Ólafsson Áslaug Sigurjónsdóttir
Jóakim Ólafsson Sæbjörg Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Björgvins Einars Guðmundssonar
Vinna
Faxabraut 27, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs og Garðvangs.
Jóhann Rúnar Björgvinsson Birna Jónsdóttir
Guðmundur Björgvinsson Ásdís Kristjánsdóttir
Magnús Ingi Björgvinsson H. Hjördís Guðjónsdóttir
Eygló Rut Björgvinsdóttir
Sigurður Björgvinsson Hildur Þóra Stefánsdóttir
Jóhanna Björgvinsdóttir Hannes L. Jóhannsson
Björgvin Arnar Björgvinsson Katrín M. Eiríksdóttir
Gréta Þóra Björgvinsdóttir Björn Finnbogason
og fjölskyldur
www.steinsmidjan.is
17. september 2005 LAUGARDAGUR
ANDLÁT
Orri Gunnarsson, Þórðarsveig 1,
Reykjavík, andaðist á Landspítal-
anum við Hringbraut 4. septem-
ber. Útför hefur farið fram í kyrr-
þey.
María Pálmadóttir, Seljahlíð 3f,
Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri miðvikudaginn
7. september. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Ásmundur Guðmundsson, mál-
arameistari, Hamraborg 18,
Reykjavík, lést á Landspítala Foss-
vogi föstudaginn 9. september.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Anna Margrét Guðmundsdóttir,
Björtuhlíð 8, Mosfellsbæ, varð
bráðkvödd þriðjudaginn 13. sept-
ember.
Gunnar Gunnlaugsson, frá
Syðri-Sýrlæk, Suðurengi 1, Sel-
fossi, lést þriðjudaginn 13. sept-
ember.
Helga Jónína Sigurðardóttir, Að-
algötu 2, (Kolku), Ólafsfirði, lést á
hjúkrunarheimilinu Hornbrekku,
Ólafsfirði, miðvikudaginn 14.
september.
JAR‹ARFARIR
11.00 Már Guðlaugur Pálsson,
frá Vestmannaeyjum, verð-
ur jarðsunginn frá Landa-
kirkju.
13.00 Matthildur Sigurðardóttir,
frá Hraunteigi í Grindavík,
verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju.
14.00 Guðrún Jónsdóttir, Birnu-
stöðum, Laugardal, verður
jarðsungin frá Ögurkirkju.
14.00 Guðrún Ólafsdóttir,
Hraunbúðum, Vestmanna-
eyjum, áður Austurgötu 17,
Keflavík, verður jarðsungin
frá Landakirkju.
14.00 Laufey Alda Guðbrands-
dóttir, Sleitustöðum,
Skagafirði, verður jarð-
sungin frá Hóladómkirkju.
14.00 Torfi Jónsson, skipstjóri,
Mýrum 6, Patreksfirði,
verður jarðsunginn frá Pat-
reksfjarðarkirkju.
AFMÆLI
Elísa G. Jónsdóttir, Haukshólum
3, Reykjavík, er áttræð í dag. Af
því tilefni tekur hún og eiginmað-
ur hennar, Jón Hannesson, á móti
ættingjum og vinum í Víkingasal,
Hótel Loftleiðum, milli klukkan
17 og 19 á afmælisdaginn.
Ragnhildur Ófeigsdóttir skáld er
54 ára.
Þorbjörn Á. Erlingsson kvik-
myndagerðarmaður er fimmtug-
ur.
Brynjar Karl Sigurðsson, þróun-
arstjóri og eigandi Sideline
Sports, er 32 ára.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI