Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 29

Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 29
TAÍLAND Spennandi jólaferðir BLS 4 [ SUZUKINýr og breyttur Suzuki Grand Vitara. BLS 2 ] SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar H i m i n n o g h a f - 9 0 4 0 3 7 9 agstæð sumarhúsalán Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað? Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar- húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar- kostnaði. Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is. www.frjalsi.is 5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800 10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610 15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990 * Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00% Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* 60%veðsetningarhlutfall Góðan dag! Í dag er laugardagur 17. 09, 260. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 6.56 13.22 19.46 AKUREYRI 6.39 13.07 19.33 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Júlíus Vífill Ingvarson á einstaklega fallegan gamlan bíl. Bíllinn er af gerð- inni Chrysler Winsor og fær nafn sitt frá Winsor-fjölskyldunni. Þetta er sem sagt konunglegur bíll og hann fær svo sannarlega konunglega umönnun. „Þessi höfðingi er fæddur árið 1947 og fóst- urforeldrar mínir áttu hann alla tíð. Á þeim tíma keyptu menn ekki bíla til að skipta þeim út. Þetta var mikil fjárfesting og það að kaupa bíl var meira svona eins og að kaupa fasteign. Bíllinn var því eins og einn af fjölskyldunni og ég á margar góðar minningar tengdar honum,“ segir Júlíus Vífill sem hefur haft þann heiður að annast gripinn síðan fósturmóðir hans féll frá. „Það er ljúf skylda að annast þennan öðling og ég reyni að sjá honum fyrir góðu ævikvöldi. Ónáða hann ekki á rigningardög- um og geymi hann undir sérsaumuðu bómullarteppi á veturna. Ég keyri hann ekki mikið og hann er ekki ekinn nema 70 þúsund kílómetra. Hann fær samt að fara í nokkra bíltúra á hverju ári enda nauðsyn- legt að liðka hann dálítið. Það er til dæmis gaman þegar einhver vill hafa hann með í brúðkaupi. Ég finn að honum þykir skemmtilegt að fá að taka þátt í slíku og hann verður ákaflega glaður á eftir – enda hrifinn af veisluhöldum,“ segir Júlíus Vífill og það er greinilegt að honum þykir vænt um bílinn. „Ég hef oft verið spurður að því hvort hann eyði ekki óttalega miklu. Ég hef ekki hugmynd um það. Ég veit ekki heldur hvað hann er kraftmikill og hef ekki hug- mynd um hvað hann er mikils virði. Ég hef ekki áhuga á að finna svarið við þessum spurningum. Hann fær að drekka eins mik- ið bensín og hann vill og virðið er alfarið mælt í tilfinningum.“ Bíllinn er í góðu ástandi og Júlíus Vífill segist hafa skipt um eitt og annað í honum í gegnum tíðina. Hann segir að það sé gott að keyra bílinn sem þó er heldur þungur í stýri. „Fósturmóðir mín, sem var ekki stór kona, talaði alltaf um að hann væri svo létt- ur í stýri. Ég held að hún hafi stundum þurft að hanga í stýrinu til að fá hann til að beygja. En það er nú einu sinni þannig að ef manni þykir vænt um gripinn þá fyrirgefur maður honum allt. Hann er til dæmis of stór fyrir bílskúrinn minn þannig að ég þarf að leigja undir hann geymslu. Það þyk- ir mér alveg sjálfsagt og ég kvarta ekki undan því að þurfa að dekra við hann.“ thorgunnur@frettabladid.is Gamall ö›lingur sem lætur dekra vi› sig Samgönguvika2005 hófst ígær undir ein- kunnarorðun- um „rétta leið- in“. Samgöngu- vikan er haldin á sama tíma í ýmsum borg- um Evrópu og er meginmark- mið hennar að vekja fólk til umhugsunar um mengun af völdum umferðar og hvetja til breyttra og betri samgönguhátta. Hálkan gæti farið að segja til sín á næstunni enda farið að kólna í veðri. Enn er of snemmt að skipta yfir á vetrardekkin og nagladekk eiga ekkert erindi á göturnar strax. Það er þó fyllsta ástæða til að skoða dekkin vel og athuga hvort þau séu ekki í góðu standi. Léleg sumardekk geta verið hreinasta slysagildra þótt hálkan sé ekki mikil. Ferðaskrifstofa Akureyrar býður upp á beint flug frá Ak- ureyri til nokkurra borga í haust. Dagana 6. til 9. október verður farið til Dublin og þann 27. október verður flogið til Kaupmanna- hafnar. Akureyr- ingar og nær- sveitamenn geta líka skellt sér til Kaup- mannahafnar rétt fyrir jólin því farið verður þangað með beinu flugi frá Akureyri dagana 8. til 11. desember. Ferðafélagið Útivist er enn í fullu fjöri þótt farið sé að hausta. Á morgun verð- ur farið í gönguferð um gljúfur Stóru- Laxár. Lagt er af stað frá BSÍ kl. 8 á sunnudagsmorgun en gangan hefst við bæinn Kald- bak. Gengið verður meðfram Stóru-Laxá sunnan Núpsvatns upp að Hraunkrók og að gljúfrunum sjálfum. Gangan tekur um 6 til 7 tíma en gengnir eru 18 kílómetrar. Það getur kostað mikla fyrirhöfn að eiga svona gamlan bíl. Júlíus Vífill setur það ekki fyrir sig enda þykir honum ljúft að annast bílinn. LIGGUR Í LOFTINU [ BÍLAR - FERÐIR ] KRÍLIN Sjónarrönd er rönd þar sem himinn og jörð mætast en svo hverfur hún og er ekki til! SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Fr ét ta bl að ið /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.