Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 47
ársins 2007 verði það tvö þúsund manns of mikið, hvað gerum við þá?“ spyr hann. „Þá er betra að reyna að teygja þessa teygju svo- lítið frekar en að flytja inn fjölda fólks til að vinna þessi störf og sitja svo uppi með það þegar at- vinnuástandið versnar,“ segir Gissur. Innflutningur vinnuafls lausnin Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, er ekki fyllilega sammála Gissuri um að aukinn innflutningur erlends vinnuafls dragi dilk á eftir sér. Hægt sé að koma í veg fyrir að atvinnuvand- ræði skapist meðal erlends vinnu- afls þegar atvinnumarkaðurinn harðnar með því að senda það þá úr landi þegar aðstæður breytast eins og markmiðið sé með útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa. „Ég tel að Ísland eigi að manna þau störf, sem ekki tekst að ráða íslenskt starfsfólk í, með innflutn- ingi vinnuafls,“ segir Tryggvi. „Það er að mörgu leyti lausn fyrir Ísland þegar koma tímabil þar sem er mikill hagvöxtur og mikil þensla líkt og núna,“ segir hann. Gissur heldur því fram að auk- inn innflutningur erlends vinnu- afls komi í veg fyrir hækkun lægstu launa. „Það er ekkert óeðlilegt við það að borgararnir, sem taka á sig atvinnuleysi þegar það verður, fái notið einhvers þeg- ar þenslan er mikil. Það er ekki gott að lofta alltaf út þenslunni á vinnumarkaði með því að draga inn ódýrt vinnuafl sem heldur niðri laununum. Þá verður munur- inn á því að vera í vinnu og ekki vinnu svo lítill enda eru það verst launuðu störfin sem vantar starfs- fólk í,“ segir Gissur. Tryggvi er ekki á þessari skoð- un. „Það er alveg ljóst að það er ekki til að lækka launin að flytja inn erlent vinnuafl. Hins vegar er ljóst að það verður ekki jafnmikil þensla á vinnumarkaði og því létt- ir það á hagkerfinu. Gríðarlega mikill innflutningur á erlendu vinnuafli hefur átt sér stað frá því um 1997, með undantekningum 2001 og 2002. Kaupmáttur launa á Íslandi hefur á sama tíma vaxið gríðarlega mikið í alþjóðlegum samanburði. Kenningin um að innflutningur erlends vinnuafls þrýsti niður laununum stenst því ekki,“ segir hann. Skammtímahagsmunir ráða Spurður hvort megi eitthvað lag- færa í stefnu Íslendinga gagnvart innfluttu vinnuafli segir Gissur að við séum dálítið á valdi skamm- tímahagsmuna. „Miklar kröfur eru um það að bætt sé hratt úr vinnuaflsskorti án þess að hugsa til enda hvert það muni svo leiða. Við erum komin alveg í sama far- ið og hin Norðurlöndin voru fyrir 20 árum, með háu brottfalli inn- flytjendabarna úr framhaldsskól- um, innflytjendurnir eru farnir að móta samfélög og farnir að setjast að í ákveðnum hverfum. Þetta er verulegt umhugsunarefni,“ segir Gissur. Tryggvi segir að ekki sé hægt að bera ástandið hér við það sem gerðist í Danmörku á áttunda ára- tugnum. Danir hafi hleypt útlend- ingum inn í landið án atvinnu svo stór hluti þeirra hafi endað á því að þiggja félagslegar bætur. „Hér kemur hins vegar enginn til lands- ins sem ekki hefur atvinnuleyfi og það er stóri munurinn,“ bendir Tryggvi á. Gissur segir að margir hafi gagnrýnt það að atvinnuleyfi séu gefin út á fyrirtæki en ekki einstak- linga. „Því hefur verið haldið fram að það gefi fyrirtækjunum kost á því að halda erlendum starfsmönn- um í eins konar vistarbandi. Hið já- kvæða við þetta kerfi er hins vegar það að engum útlendingi er hleypt inn í landið án atvinnu og er at- vinnuleysi útlendinga á Íslandi því nánast ekkert,“ segir Gissur. LAUGARDAGUR 17. september 2005 31 Gríðarlega mikill innflutningur á er- lendu vinnuafli hef- ur átt sér stað frá því um 1997, með undantekningum 2001 og 2002. MANNFJÖLDI EFTIR RÍKIS- FANGSLANDI 2004 Pólland 1.903 Danmörk 890 Ríki í fyrrum Júgóslavíu* 670 Filippseyjar 647 Þýskaland 540 Bandaríkin 515 Taíland 490 Litháen 423 Portúgal 357 Bretland 341 Svíþjóð 306 Noregur 293 Víetnam 239 Ítalía 229 Kína 227 Rússland 195 Frakkland 131 Holland 119 Tékkland og Slóvakía 117 Úkraína 106 Spánn 100 Rúmenía 90 Lettland 89 Finnland 87 Kanada 73 Eistland 66 Búlgaría 64 Marokkó 63 Austurríki 57 Indland 51 Nepal 50 Önnur lönd færri en 50 Ísland 282.941 Alls 293.577 *Undir þennan flokk falla einstaklingar með ríkisfang í þeim löndum sem heyrðu undir Sambandsríki Júgóslavíu fyrir 1992, þ.e. Bosn- ía og Hersegóvína, Króatía, Makedónía, Serbía og Svartfjallaland og Slóvenía. Heimild: Hagstofa Íslands ERLENDIR STARFSMENN Á KÁRAHNJÚKUM Alls starfa um sjö þúsund útlendingar á Íslandi og er hlutfall erlendra starfsmanna með því sem hæst þekkist á Norðurlöndum, en er aðeins hærra í Svíþjóð. Tuttugasti hver starfsmaður á Íslandi er útlendingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.