Fréttablaðið - 17.09.2005, Qupperneq 54
> Við mælum með ...
... að íslenskt knattspyrnuáhugafólk kveðji
Landsbankadeildina í ár með því að
fjölmenn á völlinn og bæta
áhorfendametið í dag.
Það verður enginn
enskur fótbolti í
sjónvarpinu og því er
um að gera að drífa sig
á völlinn hjá sínu félagi
því það eru átta mánuðir í
að það verði boðið upp á leik í Lands-
bankadeildinni á ný.
Heyrst hefur ...
... að FH-ingar ætli að gera allt til þess að
eignast ekki enn eitt metið í dag. Metið
sem um ræðir er að tapi þeir fyrir Fram í
lokaleik sínum í Landsbankadeild karla í
dag verða þeir fyrstu Íslandsmeistarar
sögunnnar sem tapa þremur síðustu
leikjum sínum. FH hefur tapað síðustu
tveimur leikjum sínum gegn ÍA og Fylki
eftir að hafa unnið þá fimmtán fyrstu.
sport@frettabladid.is
38
> Við hrósum ...
.... Blikum sem töpuðu ekki leik á Íslands-
móti meistaraflokkanna í sumar.
Karla og kvennalið félagsins
léku alls 32 leiki án þess að
tapa, karlarnir unnu 13 og
gerðu fimm jafntefli en
stelpurnar unnu 13 og gerðu
eitt jafntefli. Það verður því
örugglega mjög gaman á
uppskeruhátiðinni í Smáranum í kvöld..
KA vann Hauka í níu marka leik fyrir nor›an og
HK sá til fless a› Blikar bættu ekki stigameti›.
Víkingar fóru upp og felldu Völsung
FÓTBOLTI Það fór eins og flestir
spáðu að Víkingar fylgdu Breiða-
bliki upp í Landsbankadeild karla,
en lokaumferð 1. deildarinnar fór
fram í gær. Víkingar unnu Völs-
unga 2–0 í Víkinni og sendu um
leið Húsvíkingana niður í 2. deild.
KA-menn unnu Hauka 5–4 í
ótrúlegum leik þar sem gestirnar
komust 0–3 yfir og virtust vera að
bjarga sér sjálfir en KA-menn
tryggðu sér sigur með því að skora
fimm mörk á síðustu sextán
mínútum leiksins og því þurftu
Haukar að treysta á Víkinga, sem
unnu og felldu Völsung.
Víkingur úr Ólafsvík, Fjölnir og
HK voru öll í fallhættu fyrir
leikina en gulltryggðu sig af eigin
rammleik. Víkingar unnu Þór 1–0,
Fjölnir vann KS 4–1 fyrir norðan
og HK náði jafntefli gegn deildar-
meisturum Breiðabliks en fyrir
vikið náðu Blikar, sem töpuðu ekki
leik í 1. deildinni í allt sumar, ekki
að bæta stigamet Fylkismanna frá
1999. - óój
Gunnar Sigurðsson, markvörður Fram í
Landsbankadeild karla, verður seint
sakaður um að vera letiblóð. Gunnar,
sem er smiður að mennt, hefur alla tíð
unnið mikið og reynt að láta ekki knatt-
spyrnuiðkun sína koma í veg fyrir að
geta unnið almennilegan vinnudag.
Markvörðurinn er vaknaður fyrir allar
aldir og smíðar fram að æfingu og leik-
dagar eru með sama sniði.
Framarar taka í dag á móti Íslands-
meisturum FH á Laugardalsvelli í leik
sem liðið verður helst að vinna eða ná
jafntefli svo það falli ekki niður í 1.
deild. Á meðan flestir leikmanna lið-
anna koma sér líklega á fætur um
tíuleytið er Gunnar farinn út að smíða
en hann ætlar að vinna frá 7-12 í dag
og mætir síðan beint í þennan mikil-
væga leik. „Mér finnst langbest að hafa
þetta svona, því maður æfir og vinnur
alla daga og því væri það rangt að fara
að breyta út af vananum,“ segir Gunnar.
Mikið hefur verið rætt og ritað um um-
mæli Heimis Guðjónssonar, fyrirliða FH,
sem sagði að FH-ingar ætluðu að taka
á Frömurum þar sem Safamýrarliðið
hefði talað niður til FH-inga í allt sumar.
Gunnar hefur ekkert út á ummæli
Heimis að setja, „bara gott hjá honum
að láta þetta eftir sér. Ef Heimi langar
að verða einhver Mourinho Íslands þá
má hann það mín vegna,“ sagði Gunn-
ar, sem mátti lítið vera að því að ræða
við Fréttablaðið vegna anna við smíðar í
Grafarholtinu.
Gunnar, sem gekk til liðs við Framara
um mitt sumar 2001, hefur lent í úr-
slitaleik um fall í síðasta leik öll árin sín
hjá Framliðinu en
Fram hefur forðast
fall í lokaleik allt frá
árinu 1999 þegar
Anton Björn
Markússon
gerði
sigur-
mark á
elleftu
stundu
gegn Vík-
ingum í
eftirminni-
legum leik,
einmitt á
Laugar-
dalsvelli.
GUNNAR SIGURÐSSON, MARKVÖRÐUR FRAM: HELDUR FAST Í HEFÐIRNAR
Smí›ar hús fram a› leiknum gegn FH
17. september 2005 LAUGARDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
1. deild karla í fótbolta:
HK–BREIÐABLIK 2–2
1–0 Ólafur Júlíusson (31.), 2–0 Árni Thor
Guðmundsson, víti (41.), 2–1 Ágúst Þór
Ágústsson (47.), 2–2 Kristján Óli
Sigurðsson (49.).
VÍKINGUR Ó.–ÞÓR AK. 1–0
1–0 Ragnar Smári Guðmundsson (52.).
KS–FJÖLNIR 1–4
0–1 Tómas Leifsson (9.), 0–2 Sjálfsmark
(38.), 1–2 Grétar Sveinsson, víti (39.),
1–3 Pétur Georg Markan (53.), 1–4 Atli
Guðnason (85.).
VÍKINGUR–VÖLSUNGUR 2–0
1–0 Daníel Hjaltason, víti (42.), 2–0 Jón
Guðbrandsson (67.).
KA–HAUKAR 5–4
0–1 Þorvaldur Már Guðmundsson (23.),
0–2 Þorvaldur Már Guðmundsson (32.),
0–3 Hilmar Rafn Emilsson (48.), 1–3
Kristján Elí Örnólfsson (74.), 2–3 Bjarni
Pálmason (82.), 3–3 Pálmi Rafn
Pálmason (85.), 4–3 Jóhann Þórhalsson
(86.), 4–4 Davíð Ellertsson (89.), 5–4
Bjarni Pálmason (90.).
Þrettán leikmenn og þjálfarar ÍA skrifuðu undir í gær:
Ólafur áfram á Skaganum
FÓTBOLTI Skagamenn buðu til blaða-
mannafundar í húsakynnum KB
banka í Borgartúni í gær þar sem
skrifað var undir samning við ell-
efu leikmenn og tvo þjálfara.
Stærsta fréttin er vitanlega sú að
Ólafur Þórðarson ákvað að fram-
lengja samning sinn um heil þrjú
ár, til 2008, en hann tók við ÍA
haustið 1999. Þá hafði hann þjálfað
lið Fylkis í tvö ár og var þrálátlega
nefndur sem arftaki Þorláks Árna-
sonar hjá Árbæingum. Ekkert
varð af því þar sem Ólafi rann
blóðið til skyldunnar.
„Vissulega skoðaði ég aðra
möguleika og þetta togaðist á í
manni, hvort það væri kominn
tími til að breyta til,“ sagði Ólafur
við Fréttablaðið í gær. „Það var
lagt hart að mér að halda áfram
þannig að ég ákvað að slá til og
leggja mitt af mörkum til að leiða
þetta félag á toppinn aftur.“
Þórður aðstoðar
Þórður Þórðarson, fyrrverandi
markvörður Skagamanna, verður
aðstoðarþjálfari Ólafs ásamt því
að vera markmannsþjálfari liðs-
ins. Þórður neyddist til að leggja
skóna á hilluna eftir aðeins einn
leik í vor vegna veikinda. Í kjöl-
farið ákvað hann að rifta leik-
mannasamningi sínum við félagið
þó svo að honum bæri engin
skylda til þess. Í gær skrifaði hann
hins vegar undir þjálfarasamning.
Reynir Leósson skrifaði þar að
auki undir tveggja ára samning
við ÍA en búist var við að hann
yrði ekki áfram hjá Skagamönn-
um. Félagi hans í vörninni, Gunn-
laugur Jónsson, er einnig með
lausan samning hjá ÍA og ætlar að
hugsa sín mál að mótinu loknu.
Hann hefur búið í Reykjavík
undanfarin sex ár og gæti því vel
hugsað sér að ganga til liðs við
félag í bænum til að spara sér
bensíndropana. Samningur Kára
Steins Reynissonar við ÍA rennur
einnig út í haust.
Þá skrifuðu tíu ungir leikmenn
ÍA, sem eru ýmist nýkomnir upp í
meistaraflokk eða spila enn í 2.
eða 3. flokki félagsins, undir
samninga sína í gær við ÍA, allir til
þriggja ára nema einn sem samdi
til tveggja. eirikurst@frettabladid.is
GOTT LIÐ Þessir drengir gætu með réttu stillt upp heilu byrjunarliði enda er meira að
segja einn markvörður þeirra á meðal. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÞRJÚ ÁR Í VIÐBÓT Ólafur Þórðarson skrifar
undir þriggja ára samning við ÍA. Eiríkur
Guðmundsson, formaður rekstrarfélags
meistara- og 2. flokks ÍA, fylgist með.
KOMNIR UPP Víkingar fögnuðu gríðarlega í leikslok þegar orðið var ljóst að þeir voru
búnir að vinna sér sæti í Landsbankadeild karla sumarið 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
LOKASTAÐAN
BREIÐABLIK 18 13 5 0 32–13 44
VÍKINGUR R.18 10 7 1 41–9 37
KA 18 10 4 4 40–20 34
FJÖLNIR 18 7 1 10 29–34 22
VÍKINGUR Ó.18 6 4 8 15–30 22
ÞÓR AK. 18 6 3 9 25–34 21
HK 18 4 8 6 18–21 20
HAUKAR 18 4 5 9 23–33 17
VÖLSUNGUR18 4 4 10 17–25 16
KS 18 2 7 9 14–35 13