Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 58
42
Þegar ég opnaði ís-
skápshurðina um
daginn rann upp
fyrir mér að nú
væri að ganga í
garð sá tími árs-
ins sem reynist
mér hvað erf-
iðastur. Við
mér blasti full-
ur skápur af hráu
kjöti. Það var ekkert
annað í ísskápnum en
stór stykki af blóðugu hráu kjöti.
Restin af „óþarfa“ matnum stóð á
eldhúsborðinu og volgnaði meðan
kjötið kólnaði. Ég leit í kringum
mig til að sjá hvort einhver á
heimilinu hefði keypt sér mann-
ætuplöntu eins og í Litlu hryll-
ingsbúðinni. Sá nú hvergi slíka
plöntu, en gekk á slóð blóðdropa
og rann á undarleg hljóð sem bár-
ust úr bílskúrnum. Ég kíkti inn
fyrir bílskúrsdyrnar með annað
augað lokað í þeirri von að hryll-
ingurinn yrði minni ef ég sæi bara
smá. Inni í skúrnum var fjölskyld-
an mín, karlmennirnir tveir stóðu
útþandir af stolti, brýndu hnífa,
skáru skanka og sviðu hausa,
móðir mín sat svo í horninu og
þuldi upp uppskriftir úr Gestgjaf-
anum. Hreindýrið lá svo stein-
dautt á gólfinu á milli þeirra. Ég
fylltist mínu árstíðabundna von-
leysi. Veiðitímabilið skilaði ár-
angri, hreindýrið komið í hús og
þá víkur allt annað. Að fenginni
reynslu veit ég að næstu dagar
verða ekki auðveldir, þá þarf að
hakka og búta, vigta og pakka,
skrá og „shippa“ í frystikistur
ættingjanna. Húsfreyjan hverfur
svo út í móa að tína bláber í sós-
una og allt snýst um villibráð.
Þegar verkuninni er lokið taka við
endalausar villibráðarveislur sem
flestum myndi þykja hreinn unað-
ur, en ég er af x-kynslóðinni og vil
helst hafa mín matvæli erfða-
breytt og fá þau afhent úr lúgu.
En allt tekur enda um síðir. Og
það veit ég að þetta tímabil tekur
enda um leið og ekkert er eftir af
hreindýrinu nema baulið eitt ...
sumir þurfa að þrauka skamm-
degið, aðrir þrauka prófatíðir og
ég mun þrauka Litlu hryllingsbúð-
ina.
STUÐ MILLI STRÍÐA
JÓHANNA SVEINSDÓTTIR BÝR Í LITLU HRYLLINGSBÚÐINNI
VEIÐITÍMABILIÐ
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
5 1 6
6 8 3
2 7 4 3 5
5 2 7 3 4
9 5 1 8
3 1 6 9 7
3 7 2 9 8
4 9 1
8 6 2
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
7 9 1 5 6 2 8 3 4
4 5 6 3 8 9 7 1 2
3 2 8 7 4 1 5 9 6
6 8 2 9 7 5 1 4 3
9 4 5 1 3 6 2 8 7
1 3 7 8 2 4 6 5 9
8 7 4 2 5 3 9 6 1
2 1 3 6 9 8 4 7 5
5 6 9 4 1 7 3 2 8
Lausn á gátu gærdagsins
Gúndi, elskar
þú mig þó
ég sé gömul?
Já, Elsa!
Ég elska þig
þó þú sért
gömul.
Elskar þú
mig þó að
ég sé feit? Já, Elsa! Ég
elska þig þó
þú sért feit.
Finnst þér ég
semsagt feit? Ég verð
inni á baði.
Ertu búinn
að lesa kafla
11, Palli?
Nojjj!
Nýr vara-
salvi!
Hann er
of góður!
Ég held að
þetta sé kirsu-
berjalykt...
Eða er þetta
(sniff!) hind-
berja?
Eða (sniff!)
ástaraldin....?
Ertu að
hlusta á
mig?
Mmmm.....
hunang og
hrökkbrauð.
DÝRABYRGIÐ: EINKAMÁLADÁLKUR
Einmana? Ég líka – Nýlega munaðarlaus og þrái
að finna ást aftur. Er að leita að sálufélaga sem er
til í að byrja upp á nýtt. Þú gætir verið sá heppni.
Hringdu í 1234-233 og vertu vinur minn.
Vala, geturðu
gert mér greiða?
Gætirðu passað Bjarna í
klukkutíma eftir skóla?
Jaa...ég...
uuu
Það væri alveg æðislegt og þar
sem Bjarna og Sollu semur svona
vel þá veit ég að þetta verður
ekkert mál. Ég sæki hann þá
klukkan tvö.
Uuu....allt í lagi. Þykist Bjarni
stundum ennþá
vera risaeðla
og bítur fólk?
Bara þegar mamma
hans er ekki á staðnum.
17. september 2005 LAUGARDAGUR