Fréttablaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 6
6 26. september 2005 MÁNUDAGUR
Ísraelski herinn undirbýr árásir á Gaza-ströndina eftir sprengjuárás á Ísrael:
Handtóku 200 Palestínumenn
GAZA, AP Ísraelar handtóku í gær-
morgun yfir 200 eftirlýsta Palest-
ínumenn á Vesturbakkanum. Flestir
voru þeir meðlimir Hamas-samtak-
anna og Samtaka heilags stríðs. Á
meðan þessu stóð settu ísraelskir
hermenn upp vopn á landamærun-
um og skutu tilraunaskotum á auð
svæði. Þegar þeirri aðgerð lauk
dönsuðu hermennirnir í hring og
sungu hefndarsöngva úr biblíunni.
Aðgerðirnar eru liður í undir-
búningi fyrir hugsanlega árás á
Gaza-ströndina eftir að palestínskir
óeirðaseggir skutu sprengjum yfir
landamærin til Ísrael. „Við munum
beita öllum ráðum gegn hryðju-
verkamönnunum,“ segir Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
en ólgan á Vesturbakkanum getur
hæglega eyðilagt fyrir honum í
mikilvægri kosningu innan Líkúd-
bandalagsins.
Óeirðirnar eru hinar fyrstu í
tvær vikur síðan Ísraelsmenn
drógu herlið sitt frá Gaza-strönd-
inni eftir 38 ára hersetu. „Við erum
aftur á byrjunarreit og þurfum tíma
til þess að koma öllu í ró aftur,“
sagði Mahmoud Abbas í gær.
Ef Sharon geldur afhroð í kosn-
ingu hjá Líkúd-bandalaginu gæti
það orðið til þess að harðlínumenn
Benjamin Netanyahu næðu aftur
taumhaldinu í ísraelskum stjór-
málum. - saj
Látlaus átök Íraka og bandarískra hermanna:
Skotbardagi vi› herskáa sjía í Sadr
ÍRAK, AP Byssumenn hollir herskáa
sjíaklerknum Muqtada al-Sadr
veittu íröskum hermönnum á eft-
irlitsferð fyrirsát í austurhluta
Bagdad í gærmorgun. Bandarísk-
ir hermenn komu til liðs við þá
írösku í skotbardaga sem stóð í
einn og hálfan tíma. Um átta árás-
armannanna voru felldir.
Þetta var í fyrsta sinn í nærri
heilt ár sem kom til svo alvar-
legra átaka í þessum borgarhluta,
sem nefndur er Sadr-borg, en
flestir íbúarnir þar eru fátækir
sjíamúslimar.
Annars staðar í Bagdad var
brynvörðum peningaflutningabíl
rænt með um 850.000 Bandaríkja-
dali innanborðs. Ræningjarnir
drápu verðina. Þá var gerð sjálf-
morðsbílsprengjuárás á bílalest
sérsveitar íraska innanríkisráðu-
neytisins. Sjö liðsmenn hennar
féllu og tveir vegfarendur.
Spenna var viðvarandi á her-
námssvæði Breta í Basra í Suður-
Írak vegna handtökuskipunar
öryggismálayfirvalda þar á hend-
ur tveimur breskum hermönnum,
sem talsmenn breska hersins
segja að séu bornir röngum
sökum. - aa
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
95
05
09
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
TIL AÐ VIÐHALDA GÓÐRI HEILSU.
FYRIR TENNUR, TAUGAR, BEIN- OG BANDVEF.
C-500
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
C-vítamín hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða,
beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns. C-vítamín stuðlar að því að sár gróa og eykur viðnám
líkamans gegn sýkingum. Líkaminn þarfnast aukins C-vítamíns þegar hann er undir andlegu eða líkamlegu
álagi. C-vítamín er sindurvari (andoxunarefni) sem ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda,
en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum.
INNFLUTNINGUR MEÐ DHL
EITT FYRIRTÆKI
EINN GJALDMIÐILL
EINN REIKNINGUR
EINU ÁHYGGJUEFNINU
FÆRRA
Kannaðu málið á dhl.is eða í síma 535 1100.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Var eðlilegt að ýta rannsókn á
hópnauðgun til hliðar vegna
rannsóknar á líkamsárás?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er veturinn kominn?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
89,9%
10,1%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Kennarar óánæg›ir
me› vinnuveitanda
Fjór›ungur starfsmanna grunnskóla og Fræ›slumi›stö›var Reykjavíkur er
óánæg›ur me› vinnuveitanda sinn. Kennarar eru óánæg›ari en a›rir starfs-
menn. Óánægja hefur aukist frá 2002.
MENNTAMÁL Í vinnustaðagreiningu
á grunnskólum og Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur kemur fram að
26 prósent svarenda sögðust ekki
ánægð með Reykjavíkurborg sem
vinnuveitanda og eru starfsmenn
grunnskóla borgarinnar því óá-
nægðari með vinnuveitanda sinn
en starfsmenn annarra fyrir-
tækja. Óánægjan hefur aukist frá
2002 og eru kennarar óánægðri en
aðrir starfsmenn skólans. Þá
kemur einnig fram að starfsfólk
grunnskóla og Fræðslumiðstöðv-
ar er ánægðara með ýmislegt sem
snýr að vinnuumhverfi og vinnu-
anda en starfsmenn samanburð-
arfyrirtækja.
Heildarniðurstaðan fyrir
grunnskólana er heldur betri en
hjá öðrum fyrirtækjum að jafn-
aði. Einnig er heildarniðurstaðan
nokkuð betri en í samskonar
greiningu sem framkvæmd var
árið 2002. Gerður Óskarsdóttir,
sviðstjóri menntasviðs Reykja-
víkurborgar, segist vera ánægð
með niðurstöður greiningarinnar,
en að sjálfsögðu komi fram þættir
sem þyrfti að vinna betur í.
Sú fullyrðing sem best kemur
út að þessu sinni er hvort starfs-
menn grunnskóla og fræðslu-
miðstöðar telja sig leggja mikið á
sig til að þjóna nemendum og for-
eldrum þeirra sem best. Sú full-
yrðing sem fær lægstu einkunn-
ina er hvort laun eru sanngjörn
miðað við ábyrgð í starfi.
Þá er áberandi í greiningunni
að starfsmenn í borgarhluta 1, þar
sem finna má Grandaskóla, Haga-
skóla, Melaskóla og Vesturbæjar-
skóla, hafa neikvæðasta matið á
því hversu vel starfsmönnum
finnst að vinnustaðnum sé stjórn-
að, markmiðin eru sögð óskýrust,
þar telja starfsmenn vera mesta
ágreininginn milli starfsmanna og
starfsandinn er lakastur.
Af 107 spurningum og fullyrð-
ingum í könnuninni var 22,1 pró-
sent svara greint í styrkleikabil
sem er jákvætt fyrir starfsemi
skólanna, 41,6 prósent svara voru
greind í starfshæft bil sem hvorki
er talið hvetja né letja starfsfólk
við dagleg störf. 36,4 prósent
svara voru greind í aðgerðabil,
sem er neikvætt fyrir starfsemi
skólanna. Þátttakendur voru
starfsmenn fræðslumiðstöðva,
grunnskóla og sérskóla Reykja-
víkur. Gallup gerði vinnustaða-
greininguna í apríl og maí á þessu
ári.
svanborg@frettabladid.is
Fimm hæstu einkunnirnar
• Ég legg mikið á mig til að þjóna
nemendum og foreldrum þeirra sem
best.
• Næsti yfirmaður minn sýnir mér
skilning þegar ég þarf að sinna fjöl-
skyldu eða einkamálum.
• Ég ber mikla virðingu fyrir samstarfs-
fólki mínu.
• Hversu góðan eða slæman aðgang
hefur þú að tölvu á þínum vinnu-
stað/skóla?
• Ég er stolt(ur) af starfi mínu.
Fimm lægstu einkunnirnar
• Mér finnst þau laun sem ég fæ sann-
gjörn miðað við ábyrgð mína í starfi
• Hversu mikið eða lítið er vinnuálag þitt?
• Hefur þig oft eða sjaldan skort tíma til að
sinna því sem mestu máli skiptir í þínu
starfi?
• Hversu mikinn eða lítinn sveigjanleika
finnst þér þú hafa í starfi þínu með vinnu-
tíma þinn?
• Hefur þér oft eða sjaldan fundist þú vera
þreytt(ur) sl. þrjá mánuði þegar þú hefur
farið á fætur að morgni og staðið and-
spænis nýjum vinnudegi?
ÁNÆGJA MEÐ STARFSANDA Starfsmenn grunnskóla og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur eru
almennt ánægðari með starfsanda en starfsmenn annarra fyrirtækja. Þeir eru þó almennt
óánægðari með vinnuveitanda sinn.
STYÐJA AL-SADR Kona úr hópi
fylgismanna herskáa sjíaklerks-
ins Muqtada al-Sadr heldur á
mynd af honum á mótmæla-
fundi við mörk Græna svæðis-
ins í Bagdad í gær.
M
YN
D
/A
P
FRÁ GAZA Palestínumenn safnast í kringum flak af bíl eftir tilraunasprengjur Ísraelsmanna
í gær.
M
YN
D
/A
P