Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 59
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Hljómsveitin Benzín spilar á
Gauknum. Hljómsveitin leikur blúsað
rokk frá árunum í kringum 1970.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Þorbjörg Gunnlaugsdóttir
lögfræðingur fjallar um „Nauðgun frá
sjónarhorni kvenréttar“ í Hádeg-
issmelli Stígamóta, nýrri fundaröð
sem haldin verður annan hvern
fimmtudag í húsi Stígamóta að
Hverfisgötu 115.
12.15 Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, prófessor í mannfræði við HÍ,
flytur hádegisfyrirlestur á vegum
RIKK í Öskju, stofu N132. Erindið ber
yfirskriftina „Um móðurina í lífi og
störfum Ólafíu Jóhannsdóttur“.
■ ■ FUNDIR
20.30 Umræðufundur Náttúruvakt-
arinnar verður haldinn á Grand Rokk.
Flutt verða stutt erindi og síðan
verða almennar umræður um
áherslur í starfinu. Að því búnu spila
Megas og Súkkat.
■ ■ SAMKOMUR
17.00 Silja Aðalsteinsdóttir, Dag-
ný Kristjánsdóttir, Brynhildur Þór-
arinsdóttir og Sigþrúður Gunnars-
dóttir taka til máls á útgáfuhátíð,
sem efnt verður til í Hátíðarsal Há-
skóla Íslands í tilefni af útkomu bók-
arinnar Í Guðrúnarhúsi, sem er
greinasafn um bækur Guðrúnar
Helgadóttur. Einnig verður lesið úr
Óvitum, og Guðrúnu verður afhent
bókin, sem kemur út í tilefni af sjö-
tugsafmæli hennar.
■ ■ SÝNINGAR
15.00 Opinn skipulagsdagur verður
í Hafnarhúsinu til klukkan 22. Ráð-
gjafafyrirtækið Alta býður öllum
landsmönnum að taka þátt í fjöl-
breyttri hugmyndavinnu um framtíð-
arskipulag Vatnsmýrarinnar í tengsl-
um við sýninguna Hvernig borg má
bjóða þér?
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
FIMMTUDAGUR 29. september 2005
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari er gestur Antóníu
Hevesi píanóleikara á hádegistón-
leikum í Hafnarborg. Hádegistón-
leikarnir eru að jafnaði haldnir
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar,
en af óviðráðanlegum ástæðum
þurfti að færa hádegistónleika
októbermánaðar til síðasta
fimmtudags septembermánaðar.
Gunnar er einn helsti óperu-
söngvari þjóðarinnar og fer á
næstunni með hlutverk Peters
Quint í óperunni Tökin hert eftir
Benjamin Britten, sem frumsýnd
verður í Íslensku óperunni í
næsta mánuði.
Þau Gunnar og Antonía ætla að
flytja aríur og ljóð frá Ítalíu og
Frakklandi.
Gunnar syngur me› Antoníu
GUNNAR GUÐBJÖRNSSON Syngur á
hádegistónleikum í Hafnarfirði.