Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 64
29. september 2005 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is>
fj
ör
ið
..
. Miklar mannabreytingar hafa átt sér sta› hjá fjölmi›lum landsins. fiessa
dagana vir›ast RÚV og Stö› 2 slást um bestu bitana en í vikunni byrja›i
Logi Bergmann Ei›sson á Stö› 2 og fiórhallur Gunnarsson úr Íslandi í
dag var rá›inn í starf Loga hjá RÚV. Ætli fleiri breytinga sé a› vænta?
Fréttabla›i› sko›a›i máli›.
HVA‹ GERIST NÆST
> Myndi einhver taka eft-
ir breytingunni? Báðir
eru þetta miklir reynslu-
boltar sem virka ábúðar-
fullir á skjánum.
> Það kom mörgum í
opna skjöldu þegar Logi
Bergmann skipti um lið á
síðustu stundu. RÚV
brást skjótt við og fékk
fyrirliða Íslands í dag til
liðs við sig, sjálfan
Þórhall Gunnarsson.
Töluverðar hræringar hafa átt sér
stað á fjölmiðlum að undanförnu.
Síðasta miðvikudag var tilkynnt að
Logi Bergmann Eiðsson hefði
gengið til liðs við 365 ljósvaka-
miðla og daginn eftir bárust þær
fregnir að sjónvarpsmaðurinn Þór-
hallur Gunnarsson væri kominn
yfir í Loga stað sem ritstjóri Opins
húss sem er nýr þáttur sem Logi
átti að ritstýra hjá Sjónvarpinu.
Atburðir þessarar viku hafa
minnt eilítið á félagaskipti knatt-
spyrnumanna og hafa spurningar
vaknað um hvort stjórnendur fjöl-
miðlanna þurfi ekki að koma sér
upp félagskiptaglugga sem aðeins
sé opinn í ákveðinn tíma. Þannig
hefur stjórnendum Ríkissjón-
varpsins vafalaust sviðið þegar
Logi ákvað að söðla um en rit-
stjórastaða nýja magasín-þáttar-
ins, Opið hús, hafði verið eyrna-
merkt honum. Ríkisfjölmiðillinn
þurfti því að bregðast skjótt við og
fékk til sín reynsluboltann Þórhall
Gunnarsson, sem um árabil hefur
verið sem klettur í Íslandi í dag.
> Hún var búin að ráða
sig aftur til 365 ljósvaka-
miðla eftir að hafa
stundað nám í Kaup-
mannahöfn í hálft ár.
Hún og Þórhallur voru
þétt saman í settinu.
Heimildir herma að
Jóhanna hafi nánast
orðið dóttir Þórhalls og
eiginkonu hans meðan
þau unnu saman. Nú er
spurning hvort hún elti
sinn fyrrum samstarfs-
mann og reyni að velta fyrr-
um félögum sínum úr sessi?
> Líkt og með þá Sigmund og Boga
tækju vafalaust ekki margir eftir
þessari breytingu. Sjónvarpsstöðv-
arnar skipta á jöfnu.
ELÍN HIRST & EDDA ANDRÉSDÓTTIR
SIGMUNDUR ERNIR & BOGI ÁGÚSTSSON
FÉLAGASKIPTI ÁRSINS?
JÓHANNA VILHJÁLMS
N‡tt Nylon-lag
Stúlknasveitin Nylon frumflytur
nýjasta lagið sitt á útvarpsstöð-
inni FM957 í dag.
Nylon hefur á skömmum tíma
eignast dyggan aðdáendahóp.
Stúlkurnar hafa meðal annars
staðið fyrir sölu vinabanda til
styrktar krabbameinssjúkum
börnum. Verður afraksturinn af-
hentur 14. október.
Flokkurinn er nú að leggja
lokahönd á sína aðra breiðskífu,
sem ber heitið Góðir hlutir, en hún
er væntanleg í nóvember. Fyrri
plata sveitarinnar seldist mjög
vel og því ljóst að aðdáendur
sveitarinnar munu bíða þeirrar
næstu með öndina í hálsinum. ■