Fréttablaðið - 01.10.2005, Síða 30
ABS-hemlakerfi er tölvustýrt og kemur í
veg fyrir að hjólin læsist við snögga hemlun.[ ]
VÖRUBÍLAVARAHLUTIR
SCANIA, VOLVO OG MAN
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000
Almenn smurþjónusta
Hjólbarðaþjónusta
Sjálfskiptingaþjónusta
Rafgeymaþjónusta
Ísetning bremsuklossa
Dempara – ísetningar o.fl.
Vegmúli 4 • Sími 553 0440
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000
Varahlutir ehf
Skemmuveg 6
Sími 587-1280
Neyðarsími 867-5698
Eigum ávallt á lager úrval
varahluta í flestar gerðir bifreiða
frá Land-Rover.
Höfum neyðarþjónustu utan vinnutíma
Hemlavörur fyrir flesta bíla
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Partur–Spyrnan–Lyftarar
Eldshöfða 10
s. 585 2500 og 567 8757
TRIO
G O L F H J Ó L
Haustbúna›ur bílsins
Þótt bíllinn fari ekki í vetrarfatn-
að eins og fólkið þarf að huga að
fylgihlutunum.
Kaldar nætur kalla fram hrím á rúður og
því er rúðuskafan algert þarfaþing. Vísa-
kortið er afkastalítið verkfæri þegar ráð-
ast skal gegn alhrímuðum gluggum og
gott að eiga tvær sköfur, aðra litla og með-
færilega, hina með lengra skafti og kústi á
endanum því stundum þarf að hreinsa snjó
af bílnum. Sérstakur íseyðir er til sem
leysir upp hrímið ef það er mjög fast og
þegar því er úðað á rúðurnar verður mun
auðveldara að skafa.
Þurrkublöðin eru mikilvæg öryggis-
tæki og í hausthretum er áríðandi að hafa
þau í lagi, svo eitthvað sjáist út. Ef blöðin
eru orðin slitin er tímabært að skipta um
en annars er nóg að hreinsa þau með því
að væta tusku í ísvara og þvo af þeim tjör-
una.
Þá er það frostlögurinn. Sjálfsagt er að
fara með bílinn á bensínstöð eða verkstæði
og láta mæla hversu mikið frost kælivök-
vinn á vélinni þolir og að sjálfsögðu bæta
frostlegi á ef þörf krefur svo kerfið springi
nú ekki. Vökvinn á kælikerfinu þarf helst
að þola mínus 26 gráður. Gott er að skipta
alveg um kælilög á nokkurra ára fresti því
frostlögurinn vill gufa upp. Það er gert á
smurstöðvum.
Nauðsynlegt er að nota ísvara í rúðupissi og hafa blönduna
góða svo vökvinn frjósi ekki um leið og hann snertir ískalda rúð-
una. Helst þarf hann líka að þola 26 gráðu frost.
Fátt er ergilegra en þegar bíllæsingin er frosin að morgni dags
og allir að verða of seinir. Því verður lásasprey að
vera tiltækt í verkfæraskúffu, í veskinu eða eldhús-
hillu, því ekki gagnast það innilokað í bílnum.
Spreyið gerir kraftaverk.
gun@frettabladid.is
nýtt }
Rúmgóður en
nettur
SPLUNKUNÝR MERCEDES-BENZ
KOMINN Á GÖTURNAR.
Askja frumsýndi á dögunum nýtt
afkvæmi í Mercedes-Benz fjöl-
skyldunni. B-Class er algjörlega
nýr bíll frá Mercedes-Benz og
höfðar til fólks sem vill rúmgóð-
an en samt nettan fjölskyldubíl
með skemmtilega aksturseigin-
leika. Hann er sportlegur en
samt hugsaður fyrir alla fjöl-
skylduna og farangurinn.
Ættarsvipurinn á nýja B-Class
leynir sér ekki, honum svipar
mjög til A-Class í útliti en er
mun stærri á alla kanta. Gólfið í
B-Class er svokallað samloku-
gólf, sem gerir það að verkum
að ökumaður situr hærra en
ella, en einnig felast ákveðnir ör-
yggisþættir í hönnun þess. Hol-
rými fyrir aftan vélina gerir að
verkum að við ákeyrslu gengur
vélin ekki inn í farþegarýmið
heldur undir það og er því
minni hætta á meiðslum.
Mercedes-Benz B-Class kostar
frá 2.690.000 kr. og fæst bæði
með bensín- og dísilvél.
Sýnishorn af því sem gott er að
hafa í bílnum þegar haustið hefur
læst í hann klónum. Myndin er
tekin í Bílanausti.