Fréttablaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 20
20 2. október 2005 SUNNUDAGUR
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Sögurnar, tölurnar, fólki›.
Eins og allir vita á Kate Moss við
eiturlyfjavanda að stríða og hefur
rætt um hann opinberlega. Hún er
ekki sú eina sem hefur viðurkennt
veikleika sinn í fjölmiðlum.
Juliette Lewis, leikkona og
rokkari, hefur viðurkennt að hafa
barist við eiturlyfjadjöfulinn fyrr
á ferli sínum. Að hennar mati var
þó vandamálið blásið upp í fjöl-
miðlum. Nýlega var hún spurð í
viðtali í hvað hún eyddi peningun-
um núna þegar hún væri hætt að
taka eiturlyf og brást hún illa við.
„Eiturlyfjafíkn kostar miklu meira
en peninga. Hún eyðileggur sálina
mun meira en bankareikninginn,“
sagði hún reið.
Nicole Richie hafði sama djöf-
ul að draga á yngri árum og segist
hafa haft aðgang að sterkum efn-
um þegar hún var þrettán ára.
Hún hefur þó losað sig við fíknina
núna en í viðtali við Opruh játaði
hún, að hafa byrjað að drekka
áfengi og taka eiturlyf þegar hún
var þrettán ára. Þá hafi hún einnig
hangið á börum og ekki komið
heim fyrr en snemma á morgn-
anna. Hún barðist við fíknina í
fjögur ár og tók bæði pillur og
heróín. „Ég var eins og ruslafata,
ég tók allt,“ segir hún.
Árið 2002 játaði söngkonan
fagra Whitney Houston að vera
háð eiturlyfjum. Í viðtali spurði
Diane Sawyer: „Ertu háð áfengi?
Maríjúana? Kókaíni? Eða pillum?
Whitney svaraði: „Ég hef verið
það, já.“ Sawyer spurði þá hissa
hvort hún hefði verið háð þessu
öllu og Whitney svaraði játandi.
„Treystu mér, ég djammaði af mér
rassgatið. Svo kemur að því að
partíið er búið,“ sagði Whitney.
Bör›ust vi› fíknina
JULIETTE LEWIS Hún átti við eiturlyfja-
vanda að stríða og brást illa við þegar hún
var spurð um vandann í fjölmiðlum ný-
lega.
NICOLE RICHIE
Hún var aðeins þrettán ára þegar hún
drakk, tók eiturlyf og hékk á börum.
WHITNEY HOUSTON Hún játaði það í
viðtali við Diane Sawyer að hafa verið háð
áfengi, maríjúana, heróíni, kókaíni og pill-
um; öllu þessu á sama tíma.