Fréttablaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 27
ATVINNA
7SUNNUDAGUR 2. október 2005
KÓPAVOGSBÆR
LAUS STÖRF
Félagsþjónusta:
•Aðstoð við heimilisstörf
•Félagsleg heimaþjónusta
•Liðveisla
Íþróttamiðstöðin Versalir:
•Baðvarsla kvenna í íþróttahúsi
•Baðvarsla karla í íþróttahúsi
Sundlaug Kópavogs:
•Laugarvarsla/baðvarsla kvenna
GRUNNSKÓLAR KÓPAVOGS:
Hjallaskóli:
•Kennari íslensku/dönsku
•Forfallakennari
Kársnesskóli:
•Íþróttakennari 4 st. á viku
Kópavogsskóli:
•Skólaritari
•Forfallakennari
Lindaskóli:
•Starfsmenn í Dægradvöl
Salaskóli:
•Dönskukennari
Smáraskóli:
•Umsjónark. á unglingast. frá áram.
Snælandsskóli:
•Starfsmaður í Dægradvöl
•Gangavarsla/ræsting
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
Viðskiptafulltrúi
Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir að ráða viðskiptafulltrúa.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
www.usa.is.
Umsóknarfrestur er til 12. október 2005.
Kraftur stuðningsfélag fyrir
ungt fólk með krabbamein
og aðstandendur leitar eftir
ábyrgum, hugmyndaríkum
og duglegum starfskrafti til að
sinna ýmsum málum félagsins.
Um er að ræða starf verkefnastjóra í 50% stöðu.
Verkefnastjóri vinnur öll sín verk í umboði Krafts
og vinnur eftir samþykktum félagsins.
Meðal verkefna eru:
• skipulagning stjórnarfunda og opinna
fræðslufunda
• dagleg skrifstofustörf sem snúa að starfsemi
Krafts
• frekari uppbygging og efling félagsins
Áhugasamir sendi umsókn á netfangið
formadur@kraftur.org. Öllum umsóknum verður
svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknir berist fyrir mánudaginn 10. október
2005. Frekari upplýsingar um félagið má finna á
www.kraftur.org.
Tryggingamiðstöðin er framsækið fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu.
Hjá TM starfar rúmlega 100 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða
þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni. Það er
keppikefli starfsmanna Tryggingamiðstöðvarinnar að standa undir kröfum og væntingum
viðskiptavina og hluthafa og koma fram af heiðarleika og einlægni.
Starfsfólk í
úthringingar
Tryggingamiðstöðin auglýsir eftir kraftmiklu og þjónustulipru
starfsfólki í úthringingar. Vinnutími er kl. 18:00 – 22:00 mánudaga
til fimmtudaga en gert er ráð fyrir að starfsmenn vinni að hámarki
tvö kvöld í viku. Greitt er tímakaup fyrir hverja unna klukkustund
auk árangurstengdra greiðslna.
Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára en einstaklingar
um og yfir fimmtugt eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2005.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN · AÐALSTRÆTI 6-8 · 101 REYKJAVÍK · SÍMI 515 2000 · www.tmhf.is
Áhugasamir eru beðnir að senda umsóknir merktar, „Umsókn - úthringingar“
til Tryggingamiðstöðvarinnar, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti
til deildarstjóra söludeildar TM, Sólveigar Hjaltadóttur (solveig@tmhf.is), sem
jafnframt gefur nánari upplýsingar í síma 515 2000.
Rafhönnun hf. verkfræðistofa á rafmagnssviði
hefur áhuga á að bæta við sig fólki.
Leitað er eftir fólki sem sýnir frumkvæði í starfi og lipurð í samskiptum
ásamt því að hafa skipulagshæfileika og jákvætt hugarfar.
Starfssvið A
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit með uppsetningu á raf- og
stjórnbúnaði, einkum fyrir orkufyrirtæki. Kerfishönnun
stjórnbúnaðar og deilihönnun rafbúnaðar og iðnstýringa.
Einnig kemur til greina þátttaka í gerð hermilíkana á orku-
sviði.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnsverkfræðingur með framhaldsmenntun,
M.Sc.
• Góð þekking á stjórnbúnaði orkufyrirtækja æskileg
• Þekking á notkun verkfræðilegra líkana við hönnunar-
störf er æskileg
• Reynsla af forritun æskileg
Starfssvið B
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit með uppsetningu háspennu-
kerfa.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnstæknifræðingur eða –verkfræðingur af sterk-
straumssviði
• Reynsla æskileg
Starfssvið C
Ráðgjöf, hönnun, forritun, gangsetning og eftirlit með upp-
setningu raf- og stjórnbúnaðar.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnsiðnfræðingur, tæknifræðingur eða verk-
fræðingur
• Reynsla æskileg
Starfssvið D
Ráðgjöf, hönnun, og eftirlit með uppsetningu raflagna-
kerfa fyrir byggingar.
Hæfniskröfur:
• Reynsla æskileg
Nánari upplýsingar veitir Skapti Valsson
(skapti@rafhonnun.is) hjá Rafhönnun í síma 530 8000.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Rafhönnunar fyrir 12
október n.k. Umsóknir þurfa að innihalda nákvæma lýsingu
á menntun umsækjanda og fyrri störfum og aðrar upp-
lýsingar sem umsækjandi telur að komi að gagni við val
umsækjanda. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Verkfræðistofan Rafhönnun
Starfsmenn Rafhönnunar eru um 55. Fyrirtækið er
með vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt krö-
fum ISO 9001:2000. Stærstu verkefni Rafhönnun-
ar um þessar mundir eru m.a. stækkun Norðuráls
á Grundartanga og nýtt álver Alcoa á Reyðarfirði
einnig útboð og hönnun á rafbúnaði virkjana og
orkuveitna. Rafhönnun hefur um árabil unnið að
ráðgjöf og hönnun vegna uppsetningar stjórn-
kerfa fyrir orkuveitur. Hjá Rafhönnun hefur á und-
anförnum árum verið unnið að þróun herma,
einkum af jarðvarmaorkuverum. Hönnun á raf-
lögnum og sérkerfum fyrir byggingar er verulegur
hluti starfseminnar. Á fjarskiptasviði er m.a. unnið
við ráðgjöf fyrir stærri notendur og jafnframt
hönnun fjarskiptakerfa fyrir fjarskiptafyrirtæki.
Einnig er unnið að ýmsum iðnaðarverkefnum sem
fela m.a. í sér hönnun raflagna og forritun iðn-
tölva og skjákerfa. Starfsmenn Rafhönnunar ann-
ast margvísleg verkefni, jafnt áætlanagerð, út-
boðsgögn, raflagnahönnun, eftirlitsstörf, verkefna-
stjórnun og forritun allt eftir því sem við á.